Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 56

Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 56
Forstjórasaga 10 stórfyrirtækja Hér birtíst forstjórasaga tíu stórra fyrirtælq’a sem öll hafa verið mjög áberandi í íslensku atvinnulífi. Reynt eftir föngum að segja stuttlega frá því hvað einkenndi stjórnartíma hvers og eins. Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndin Geir Ólafsson og Páll Stefánsson SÍF Tólf menn hafa gegnt starfi framkvæmdastjóra eða forstjóra hjá SÍF á rúmlega 70 ára starfsaldri félagsins og hafa þeir gjarnan gegnt því tveir eða þrír samtímis nema síðasta ára- tuginn eða rúmlega það. Þessir menn eru: Kristján Einarsson 1932-1962 RlCHARD Thors 1932-1936 ÓLAFUR ProppÉ 1932-1947 THOR Thors 1936-1940 Helgi Þórarinsson 1947-1978 JÓHANN Þ. JÓSEFSSON 1950-1952 Friðrik PÁLSSON 1978-1985 Valgarð J. Ólafsson 1978-1985 Magnús Gunnarsson 1986-1993 Sigurður Haraldsson 1992 Gunnar Örn Kristjánsson 1994-2004 Jakob Ó. Sigurðsson 2004- Helgi Þórarinsson er sá sem lengst hefur gegnt starfinu eða í 32 ár. Samtíða honum var Jóhann Þ. Jósefsson sem leysti hann af um tveggja ára skeið í byijun sjötta áratugarins. Kristján Ein- arsson kemur næstur Helga með sín samfelldu 30 ár í stólnum. Hann tók við starfinu strax eftir stofnun SÍF 1932 ásamt Ólafi Proppé og Richard Thors. Þessir menn gegndu starfinu áfram næstu árin nema að Thor Thors tók við af Richard, bróður sín- um, 1936. Friðrik Pálsson og Valgarð J. Ólafsson voru fram- kvæmdastjórar saman en eftir það var framkvæmdastjórinn bara einn, fyrst Magnús Gunnarsson, svo Sigurður Haraldsson sem leysti Magnús af í eitt ár, þá Gunnar Örn Kristjánsson og loks núverandi forsljóri, Jakob Ó. Sigurðsson. Þegar SIF voru mynduð var saltfisksalan í vörn og var svo allan Jjórða áratuginn. Fór því fram mikil markaðsleit utan Mið- jarðarhafslandanna. A stríðsárunum missti SIF hlutverk sitt og þurfti að vinna upp markaði eftir stríðið. Um og upp úr 1960 Gunnar Örn Kristjánsson. Jakob O. Sigurðsson. Magnús Gunnarsson. styrktust fiskviðskipti íslendinga og var byggt upp samskiptanet og góð sam- bönd, ekki síst við Miðjarðarhafsríkin. Á valdatíma Friðriks og Valgarðs urðu miklar breytingar á framleiðsluháttum, saltfiskurinn varð lúxusmatur og losnaði um þær hömlur sem Fiskmat ríkisins hafði haft. Níundi áratugurinn var ára- tugur útrásar. Á tíma Magnúsar áttu sér stað fyrstu eignakaupin erlendis, keypt var verksmiðja í Frakklandi og byggt upp net skrifstofu- og um- boðsmanna. SIF leitaði nýrra leiða, t.d. í dreifingu og vinnslu. Starfstími Gunnars Arnar einkenndist helst af markaðsvæð- ingu og djarfri útrás. Islandssíld var stofnuð sem arftaki Síldarútvegsnefndar um Friðrik Pálsson. 56

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.