Frjáls verslun - 01.07.2004, Síða 57
mitt ár 1998 og sameinuð SÍF 1. október sama ár. Fram-
kvæmdastjóri íslandssildar og þar áður Síldarútvegsnefndar
var Gunnar Jóakimsson 1993-1998. Framkvæmdastjórar Síld-
arútvegsneíndar voru fyrir utan Gunnar:
Sophus A. Blöndal 1935-1936
Erlendur Þorsteinsson 1939-1946
Jón Stefánsson 1946-1973
Gunnar Flóvenz 1959-1989
Einar Benediktsson 1990-1993
Undanfari ÍS var sjávarafurðadeild Sambandsins. Sjávar-
afurðadeild Sambandsins varð til 1957 þegar Útflutningsdeild
var skipt í tvær deildir; Sjávarafurðadeild og Búvörudeild.
Framkvæmdastjórar Sjávarafurðadeildar voru þessir:
Valgarð J. Ólafsson 1957-1964
Bjarni V. Magnússon 1965-1968
GUÐJÓN B. ÓLAFSSON 1968-1975
SlGURÐUR MARKÚSSON 1975-1990
Benedikt Sveinsson 1990
í desember 1990 voru Islenskar sjávarafurðir hf., IS,
stofnaðar upp úr Sjávarafurðadeild Sambandsins og varð
Benedikt Sveinssom forstjóri IS. Það félag tók til starfa í árs-
byrjun 1991. Forstjórar IS voru tveir:
Benedikt Sveinsson 1991-1998
Finnbogi Jónsson 1999
SÍF og ÍS voru sameinuð í árslok 1999. Hið sameinaða
fyrirtæki starfaði undir nafni SÍF frá 1. janúar 2000. H3
EIMSKIP
eir hafa verið sjö forstjórarnir hjá Eimskip og hafa flestir
þeirra setið áratug eða lengur í stóli. Það hefur þó verið
meira rót á stjórninni síðustu árin og hefur verið skipt þrisvar
um forstjóra með stuttu millibili.
Emil Nielsen 1914-1930
Guðmundur Vilhjálmsson 1930-1962
Óttarr Möller 1962-1979
Hörður Sigurgestsson 1979-2000
Ingimundur Sigurpálsson 2000-2003
Erlendur Hjaltason 2003-2004
Baldur Guðnason 2004-
Starfsemi Eimskips hefur einkennst af geysilegri festu. Það er
ekki fyrr en síðustu misserin sem rót kemst á félagið.
Guðmundur Vilhjálmsson var forstjóri í 32 ár, Emil Nielsen í 16
ár, Hörður Sigurgestsson í 21 ár og Óttarr Möller í 17 ár. Aðrir
skemur.
Emil var frumkvöðullinn, með í ráðum við stofnun Eimskips
og fékk titilinn útgerðarstjóri. Guðmundur kom inn í félagið
meðan það var íhaldssamt og öflugt stórveldi og hélt þeirri
stefnu álram. Hartn var snjall rekstrarmaður og það kom sér vel
á kreppuárunum, í stríðinu og í uppbyggingunni eftir stríð. Hann
þótti góður samningamaður og hafði lag á því að festa enn betur
þá upphaflegu hugmynd frumkvöðlanna að Eimskipafélagið
væri óskabarn þjóðarinnar. Hann þótti yfirburðamaður á sínu
sviði þó að stundum þætti hann lítið fyrir djarfar ákvarðanir og
lítt hrifinn af því að skipta um kúrs. Óttarr tók við af Guðmundi
og hann hélt áfram þýðingarmiklu uppbyggingar- og endurnýj-
unarstarfi á vaxtartíma í íslensku efnahagslífi.
Á seinni tíma hefur gjarnan verið sett samasemmerki milli
Eimskips og nafns Harðar Sigurgestssonar enda var Hörður þar
í brúnni í rúm 20 ár. í upphafi tók Hörður sér tíma til að skilja fé-
lagið og átta sig á því. Hann fór svo í talsverða útþenslu sem
byggðist á því að taka meiri þátt í fjárfestingum í öðrum félögum.
Hann jók hlut Eimskipafélagsins í Flugleiðum, á starfstíma hans
var Burðarás stofnað og félagið var með umsvifamestu fjái'iest-
um á hlutabréfamarkaðnum sem var að stíga sín fyrstu spor á
þessum tíma. Ingimundur Sigurpálsson tók við af Herði. Undir
forystu hans jókst starfsemin mikið og útgerðarfélagið Brim
varð sjálfstæð rekstrareining undir hatti hf. Eimskipafélagsins. Á
þeim tíma tók Erlendur Hjaltason við rekstri skipafélagsins sem
var þá ein af þremur einingum félagsins.
Baldur Guðnason, núverandi forstjóri, tók við stjórnar-
taumunum vorið 2004 eftir að nýir eigendur náðu meirihluta í
félaginu.H!]
Baldur Guðnason. Hörður
Sigurgestsson.
Óttarr Möller. Guðmundur Emil Nielsen.
Vilhjálmsson.
57