Frjáls verslun - 01.07.2004, Blaðsíða 61
Flugleiðir/lcelandair
Alfreð Elíasson 1973-1979
ÖRN Ó. JOHNSON 1973-1979
SlGURÐUR HELGASON ELDRI 1974-1985
SlGURÐUR HELGASON YNGRI 1985-
Alfreð Elíasson var brautryðjandi og baráttumaður, þótti hlý-
legur yfirmaður með persónulegan stíl, stórhuga fram-
kvæmdamaður og kjarkmikill. Hann veiktist á besta aldri og
tók því þunglega þegar ekki varð kom-
ist hjá sameiningu við Flugfélag Is-
lands. Örn Ó. Johnson var sömuleiðis
brautryðjandi og vinsæll yfirmaður.
Hann leit á hlutverk Flugfélagsins sem
þjónustu við Islendinga og sumir hafa
sagt að FI hafi verið „one man
company“ á meðan Örn stýrði því.
Hann var lipur samningamaður og var
í lykilhlutverki við sameiningu félag- Alfreð Elíasson.
anna. Sigurður Helgason eldri kom úr
allt öðru umhverfi en Afreð og Örn. Þeir voru flugmenn en
hann ekki. Sigurður innleiddi nýja og alþjóðlega stjórnunar-
hætti sem menn voru óvanir. Hann þótti ákveðinn og tví-
mælalaust rétti maðurinn til að stýra Flugleiðum í gegnum
einna erfiðustu tímana í sögu fýrirtækisins 1978-1981.
Sigurður Helgason yngri. Örn Ó. Johnson.
Sigurður Helgason yngri hefur stýrt Flugleiðum frá 1985. Til
að byrja með helgaðist starfstími hans af gjörnýtingu á
eignum félagsins. Frá 1987 hefur orðið mikil endurnýjun á
flugfélagakosti og allri aðstöðu félagsins og síðan hefur hann
stýrt endurskipulagningu innan félagsins á síðustu árum. SH
SKELJUNGUR
Olíufélagið Skeljungur var stofnað árið 1928. A þeim áratug-
um sem liðnir eru frá stofnun félagsins hefur það tekið
stakkaskiptum enda viðskiptaumhverfið óvíða breyst jafn
mikið. Aðeins fimm forstjórar hafa verið hjá Skeljungi. Núver-
andi forstjóri er Gunnar Karl Guðmundsson.
Hallgrímur Tulinius 1928-1935
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson 1935-1971
Indriði Pálsson 1971-1990
Kristinn Björnsson 1990-2003
Gunnar Karl Guðmundsson 2003-
Hlutafélagið Shell á Islandi, forveri Skeljungs, var stofnað í árs-
byijun 1928 og á lýrstu árum félagsins var róðurinn nokkuð
þungur vegna kreppunnar sem skall á árið 1930. A árunum fyr-
ir stríð var verðlagseftirliti komið á og það einkenndi olíuversl-
unina um áratuga skeið. Um og eftir strið jukust umsvif Skelj-
ungs, m.a. vegna striðsins og vaxandi útgerðar og stækkandi
bílaflota landsmanna. í forstjóratíð Hallgríms Fr. Hallgrímsson-
ar óx félagið og stóð að uppbyggingu og miklum framkvæmd-
um víða um land. Þegar Indriði Pálsson var forstjóri hélt vöxt-
urinn áfram en margvísleg höft settu sinn svip á reksturinn. 01-
íufélögin keyptu öll saman olíu frá Rússlandi samkvæmt á-
kvörðun stjórnvalda og verðlagsstjóri ákvað sameiginlegt verð
allra olíufélaganna. I forstjóratíð Kristins Björnssonar tók mjög
að losna um hömlur og Skeljungur beitti sér fyrir ýmsum nýj-
ungum, stofiiaði meðal annars fyrsta olíufélagið sem byggðist
á sjálfsafgreiðslu og lægra verði. Gunnar Karl Guðmundsson
tók við stjórnartaumunum árið 2003. Undir hans stjórn hefur
félagið flutt í nýjar höfuðstöðvar og ýmsar breytingar verið
gerðar á rekstrinum. Sh
Gunnar Karl Guðmundsson. Indriði Pálsson.
61