Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 64
stjórí og þægilegur í umgengni. Hann þótti góður diplómat,
mannasættir, ákveðinn, farsæll og skemmtilegur. Hann hélt
vel utan um reksturinn og þróaði Sambandið áfram, hafði
forgöngu um ýmsa nýbreytni, m.a. stofnun Samvinnu-
bankans.
Guðjón Olafsson tók við Sambandinu við erfiðar aðstæð-
ur. Guðjón kom frá Iceland Seafood í Bandaríkjunum. Hann
þótti fær leiðtogi og starfsandinn þar ytra ákaflega skemmti-
legur. Fjárhags- og skipulagslegir erfiðleikar Sambandsins
voru þó gífurlegir á síðari hluta níunda áratugarins og
byijun þess tíunda. Innviðirnir fúnir og tókst með naum-
indum að forða gjaldþroti.
A árunum 1990 til 1995 var Sigurður Markússon stjórnar-
formaður Sambandsins í fullu starfi og kom í hans hlut að
vinna að stofnun hlutafélaganna og í framhaldi af því að
skuldaskilum Sambandsins. Þeim lauk síðla árs 1995. [£]
OLÍS
w
Aýmsu hefur gengið hjá Olís frá því félagið var stofnað
árið 1927. Síðustu árin hafa þó einkennst af stöðugleika
og velmegun en undir stjórn Einars Benediktssonar for-
stjóra hafa tengslin við útgerðina verið efld enn frekar, bens-
ínstöðvar byggðar og endurbættar auk þess sem OB-stöðv-
ar eru komnar út urn allt land.
Héðinn Valdimarsson 1927-1948
HREINN PÁLSSON 1948-1966
ÖNUNDUR ÁSGEIRSSON 1966-1981
Þórður Ásgeirsson 1981-1986
ÓLI Kr. Sigurðsson 1986-1987
Jón Atli Kristjánsson 1987-1988
Óli Kr. Sigurðsson 1988-1992
Einar Benediktsson 1992-
Olíuverslun Islands hf. var stofnuð árið 1927 og er elst ís-
lenskra olíufélaga. Stofnandinn, Héðinn Valdimarsson, var
forstjóri fýrirtækisins frá upphafi þar til hann dó á besta
aldri árið 1948. Mikill drifkraftur var í þessum fýrsta for-
stjóra félagsins og framsýni eins og bygging olíustöðvarinn-
ar á Klöpp var merki um. Héðinn var hugmyndaríkur frum-
kvöðull og starf hans einkenndist af uppbyggingu fýrirtæk-
isins. Hreinn Pálsson tók við af Héðni. Hreinn var skip-
stjórnarlærður maður og gamall síldarskipstjóri. Hann efldi
mikið viðskipti við útgerðarmenn sem Héðinn hafði reynd-
ar gert líka. Hreinn var forstjóri þegar olíustöðin í Laugar-
nesi var tekin í notkun en hún var langstærsta olíustöð
landsins á þeim tíma, með 12 olíutönkum. I forstjóratíð Ön-
undar Ásgeirssonar hrundi síldarstofninn og varð kreppa í
efnahagslífi landsmanna. Þetta kom sérstaklega illa við Olís
enda félagið í miklum viðskiptum við sjávarútveginn auk
þess sem verðbólga gerði Olís lífið
leitt eins og öllum öðrum í landinu.
Önundur efldi bensínstöðvarnar,
færði þær til og stækkaði. Hann stóð í
ströngu við borgaryfirvöld með að fá
úthlutað lóðum. Á hans starfstíma tók
að halla undan fæti ijárhagslega og
gerði það að lokum að verkum að
hann fór frá árið 1981. Þórður Ásgeirs-
son tók ekki við góðu búi í Olís og
endaði með því að selja varð fýrirtæk-
ið. Óli Kr. Sigurðsson keypti Olís árið 1986 og varð strax for-
stjóri. Hann réð til sín forstjóra, Jón Atla Kristjánsson, sem
aðeins starfaði hjá félaginu í tæpt ár og tók Óli Kr. þá aftur
við forstjórataumunum. Óli Kr. var og er enn goðsagnaper-
sóna í íslensku viðskiptalífi. Hann reif fýrirtækið upp úr fjár-
hagsvandræðunum, m.a. með því að gera enn betur en áður
út á viðskipti við útgerðarmenn. Eftir að Óli Kr. féll frá árið
1992 var félagið um tíma forstjóralaust og stýrðu því þá Ósk-
ar Magnússon stjórnarformaður og Hörður Helgason. Nýr
forstjóri, Einar Benediktsson, var síðan ráðinn haustið 1992
og er hann enn forstjóri félagsins. S5
Einar Benediktsson. Óli Kr.
Sigurðsson.
Jón Atli Hreinn Pálsson. Héðinn
Kristjánsson. Valdimarsson.
Önundur
Ásgeirsson.
64