Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 72

Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 72
Gordon Brown, fjármálaráðherra Breta, er aldavinur Tony Blairs. Fremur stirt er á milli þessa gamla tvíeykis. Brown er sagður telja dagana þar til hann tekur við forsætisráðherrastólnum. ÁTÖK GAMALLA FÉLAGA Gordon Brown vill stól Blairs Cherie Blair sótti Island heim á dögunum. Hún hefur eðlilega ríkan metnað fyrir hönd mannsins síns, Tony Blair, og gaf sjálf upp pólitískan feril þegar eiginmaðurinn komst á skrið. En það er sótt að Blair heima f>rir. Sá sem það gerir er gamall vinur þeirra hjóna, Gordon Brown flármálaráðherra. Efitír Sigrúnu Davíðsdóttur í London Gordon Brown ætlaði að verða skoskur prestur eins og pabbinn. Hann fékk ekki forsætisráðherrann í magann fyrr en hann komst á táningsaldurinn. Meðan Tony Blair var bara venjulegur táningur og lék sér í Edinborg var Gordon Brown heima á prestsetrinu að æfa innsetningar- ræðu sína sem forsætisráðherra. Og hann hefur endurskrifað hana og æft síðan. I upphafi stjórnmálaferilsins var alltaf talað um Brown og Blair, eða Gordon og Tony meðal félaganna, svo Tony og Gordon. Stóra spurningin í breskum stjórnmálum er hvort pólitíska tvíeykið leysist nokkurn tíma upp og Gordon fái að halda ræðuna góðu. Skotar eru útkjálkaþjóð eins og Islendingar og Brown gæti alveg verið íslenskur stjórnmálamaður. Hann fiíkar ekki tilfinningum sínum eins og nú er í stjórnmálatísku. Presturinn faðir hans var næstum í dýrlingatölu meðal sóknarbarna og Brown og bræður hans tveir ólust upp við eldheitar ræður hans á hverjum sunnudegi. Brown er ekki Pilsa-Skoti Það sem helst varpar tilfinninga- slikju á Brown er þegar hann ræðir um föður sinn en nú á hann líka son, sem veitir honum tilfinningaútrás. Brown er ekki pilsa-Skoti eins og Karl Bretaprins - Brown gengur alltaf í dökkurn jakkafötum, en hreimur og fas er skoskt. Bak- grunnurinn skýrir djúpa félagslega réttlætiskennd hans. Aberandi ívaf í skosku kirkjunni er sterk réttlætiskennd, ekki bara trúarleg, heldur líka félagsleg. Tvíeykið Brown og Blair er svo samannjörvað að það er erfitt að íjalla um annan án þess að nefna hinn. Brown fæddist 1951, Blair 1953. Margaret Thatcher varð forsætisráðherra 1979, Blair og Brown voru kosnir á þing 1983 og deildu skrifstofu í þinginu. Brown varð fljótt leiðtogi yngri þing- manna, bæði sökum einstakrar elju og af því að hann er hugs- uður og gruflari. Blair og Brown alltaf saman Tony og Gordon voru alltaf saman, hugsuðu saman - eða kannski frekar að Brown hugsaði 72

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.