Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 78

Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 78
Hilmar Már Aðalsteinsson, markaðsstjóri erlends markaðar, Elmar Freyr Vernharðsson, markaðsstjóri innlends markaðar, Hermann Sigursteinsson framleiðslustjóri, Þórarinn Elmar Jensen forstjóri, Gestur Már Þórarinsson fjármálastjóri, Markús Örn Þórarinsson, forstöðumaður erlendrar starfsemi. Myndir: Geir Ólafsson Útivist í tísku! Sjóklæðagerð, vinnufatnaður og útívistarfatnaður. Þannig hefur þróunin verið hjá 66° Norður sem í dag flokkast sem tískufatnaður í hæsta gæðaflokki. Fatnaðurinn sem Islendingar snobba fyrir. Flott merki. Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Allir muna eftir sjóhöttunum stóru og sterku á sjöunda ára- tugnum og allir kannast við Kraftgallana og flispeysurnar sem annar hver íslendingur hefur klæðst síðustu árin. Margir þekkja Vinyl-glófann sem 66°Norður hefur framleitt í 45 ár fyrir íslenska sjómenn en færri þekkja sögu Sjóklæða- gerðarinnar hf. - 66° Norður. Sjóklæðagerðin var stofnuð af Hans Kristjánssyni frá Súgandafirði og fleirum í Reykjavík árið 1926. Arið 1966 sameinuðust verksmiðjurnar Max hf. og Sjó- klæðagerðin hf. og framleiddi sameinað fyrirtæki sjó- og regn- fatnað, vinnufatnað og almennan útivistarfatnað fyrir íslenskan markað. I verksmiðjunni störfuðu nokkuð á annað hundrað manns þegar flest var. Árið 1977 skildu Sjóklæðagerðin og Max að skiptum og urðu keppinautar á markaðnum fram til 1997 að fyrirtækin sameinuðust á ný. Þórarinn Elmar Jensen, framkvæmdastjóri 66° Norður, kom inn í fyrirtækið árið 1966, þegar Verksmiðjan Max keypti þáver- andi starfsemi Sjóklæðagerðar Islands hf., og hefur verið starfandi þar síðan. Hann og fjölskylda hans eiga fyrirtækið. Tveir synir Elmars, Gestur Már og Markús Örn Þórarins- synir, hafa starfað með honum í fyrirtækinu sl. 30 ár. Aðrir starfsmenn síðustu ára við stjórnun eru Hermann Sigur- steinsson framleiðslusljóri, Hilmar Aðalsteinsson, markaðs- stjóri útflutnings, og Elmar Freyr Vernharðsson, markaðs- stjóri innanlandsmarkaðar. Þórarinn E. Þórarinsson, einnig sonur Þórarins Elmars, stýrir Silkiprentsdeild. Sársaukaríh ákvörðun Islenskur fataiðnaður átti í erfið- leikum á seinni hluta tíunda áratugarins og það gilti líka um 66° Norður þegar fyrirtækið var með framleiðslu á fimm stöðum á landinu og yfir 200 manns í vinnu. Aukin samkeppni var frá nýfrjálsum Balkanlöndum og samskonar vörum inn- fluttum frá Austur-Asíulöndum og var af þeim sökum ákveðið að flytja framleiðsluna til Lettlands því að þessi samkeppni var farin að skapa fyrirtækinu veruleg rekstrarvandræði. Keypt var 3.000 fermetra húsnæði í „rússnesku ástandi“ og það gert upp. Markús Örn stýrði meðal annarra uppbyggingunni í Lettlandi. „Þessi ákvörðun var ekki auðveld eða sársaukalaus en var nauðsynleg og tekin á réttum tíma. Um sama leyti og flutt var af Skúlagötu 51 í Reykjavík í nýtt, eigið húsnæði í Garðabænum var framleiðslan flutt til Lettlands. í verksmiðju okkar þar vinna nú um 160 manns og er fyrirhuguð fram- leiðsluaukning í nýrri verksmiðju á næstu mánuðum. I fyrir- tækinu á Islandi starfa Fataiðnaðurinn er óneitanlega á einum erfiðasta markaði í heimi, vegna mikillar offram- leiðslu. Þórarinn Elmar telur lykilinn að góðu gengi við þær aðstæður vera góða hönnun, stöðuga þróun og mikil gæði. nú um 80 manns,“ segir Þórarinn Elmar Jensen. Utflutningur til Banda- ríkjanna útflutn- ingur 66°Norður á sjó- fatnaði hófst fyrst á níunda áratug síðustu 78

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.