Frjáls verslun - 01.07.2004, Síða 86
Fyrir utan skrifstofur American Express.
Sigríður er með skrifstofu á 14. hæð og sér yfir Suður-Kína-
haf en Singapúr hefur eina stærstu höfn í heimi.
inum skipt upp í nokkra hluta, í fyrsta lagi í Bandaríkin,
Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríku, í öðru lagi Asíu og í
þriðja lagi í Suður-Ameríku og Kanada. Bandaríski markað-
urinn er langstærstur enda er American Express bandarískt
fyrirtæki og höfuðstöðvar þess í New York. I Singapúr er
stór markaðsskrifstofa sem sér um allt markaðssvæðið sem
Sigríður vinnur á. „Hlutverk mitt er að safna upplýsingum frá
hverju markaðssvæði, vita hvað virkar og hvað ekki og deila
því svo með starfsmönnum á þessum mörkuðum svo að þeir
geti nýtt sér þessa vitneskju. Jafnframt er ég í nánu sambandi
við teymið á skrifstofunni í London. Það hefur allan heiminn
sem vinnusvæði og fær alltaf bestu upplýsingar um það hvað
hefur verið prófað og hvað ekki og hvað hefur reynst best.
Innan fýrirtækisins er mjög sterkt upplýsingaflæði og við
deilum þessum upplýsingum hvert með öðru.“
Stöðuhækkun að koma hinyað Sigríður er í talsverðum
ferðalögum í starfi sínu og ferðast reglulega um markaðs-
svæðið. Hún fer að jafnaði árlega til London þar sem hún
hittir þá sem sjá um markaðsmálin fýrir utan Bandaríkin. Hún
segist hafa mikla ánægju af þessu starfi og
hafi því hugsað sér að vera í því í að minnsta
kosti eitt til tvö ár í viðbót. Kerfið innan
American Express virki þannig að viðkom-
andi starfsmaður þurfi að sækja um flutning
með því að sækja um nýtt starf og þurfi þá að
fara í gegnum umsóknarferilinn og viðtöl eins
og allir aðrir umsækjendur. Ekki sé víst að hann fái flutning
þó að hann sæki um það. „Það var stöðuhækkun fýrir mig að
koma hingað frá Ástralíu og mér finnst þetta mjög spennandi
tækifæri. Við höfum hugsað okkur að vera hér næstu eitt til
tvö árin. Fyrir mig persónulega er Singapúr ekki staður til að
setjast að til langframa, frekar á íslandi eða í London. Maður-
inn minn starfar hjá svissneskum hótelskóla og sér um
markaðssetningu í Asíu svo að við munum skoða í samein-
ingu hvert við förum næst,“ segir hún.
Sigríður segir mjög ólíkt að búa í Ástralíu og Singapúr. „Það
voru töluverð viðbrigði að flytja hingað. Hér er 32 stiga hiti og
raki allt árið um kring. Við erum alveg á miðbaug og því eru
engin árstíðaskipti. Það venst og manni finnst ósköp notalegt að
hafa sólina og geta verið á sandölum komandi frá íslandi.
Singapúr er mjög þægileg borg, hér er allt snyrtilegt og skipu-
legt Það er auðvelt að flytja hingað því hér virkar allt og auðvelt
að komast inn í hlutina. Við höfum mest samskipti við fólk frá
öðrum löndum, einhvern veginn kynnist maður minna fólki
héðan. Sífellt fleiri fýrirtæki flytja höfuðstöðvar sínar hingað
enda er þetta mjög alþjóðlegt samfélag. Hér er líka ofsalega
þægilegt að búa, þetta er lítið land og
auðvelt og ódýrt að ferðast til annarra
landa í nágrenni. Við vorum t.d.
nýlega eina helgi í Víetnam. Það er
kostur við að búa hér að maður hefur
tækifæri til að skoða þetta svæði sem
er svo frábært og ljölbreytt.“ 09
„Markaðirnir eru geysilega
ólíkir innbyrðis, t.d. eru
Astralía og Nýja-Sjáland svipuð
Norður-Evrópu, meðan Filipps-
eyjum, Indlandi og Indónesíu
svipar meira til þróunarlanda."
86