Frjáls verslun - 01.07.2004, Qupperneq 91
Auðun Gunnarsson, framleiðslustjóri Kartöfluverksmiðj-
unnar í Þykkvabæ, við jeppa sinn, Mercedes Benz ML 430,
sem hann keypti á Netinu. Mynd: Geir Ólafsson
Halldór Jóhannsson, sölumaður í varahlutaverslun, og son-
ur hans, Fannar Þórhallsson, hafa keypt mikið af varahlutum
í Porsche bíla sína á Netinu, bæði frá Bandaríkjunum og
Þýskalandi. Mynd: Geir Ólafsson
Kaupa varahluti og bíla á Netinu
Kaup á bílum á Netinu frá Bandaríkjunum hafa tvöfaldast á þessu ári frá því í fyrra. Gengi dollarans
heíur verið lágt og auldn eftirspurn er eftir amerískum bílum sem voru lítið fluttir inn árin 2001-
2003. í flestum tilfellum eru bílarnir keyptir hjá Ebay.com og fluttir inn á vegum ShopUSA.is.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Halldór Jóhannsson, afgreiðslumaður í varahlutaverslun,
og sonur hans, Fannar Þórhallsson, eiga sex Porsche
bíla, þar af tvo á götunni og hina í langtíma uppgerð.
Halldór á Porsche 924 og Fannar á Porsche 944. Báðir hafa
þeir keypt varahluti í bílana í gegnum Netið. Halldór hefur átt
regluleg viðskipti í gegnum Netið frá því í ágúst 2001 og hann
hefur keypt samtals 169 varahluti og aukahluti í bíla, td. vélar,
gírkassa, Ijöðrunarkerii og ýmsa hluti í afmælis- og jólagjafir,
t.d. bílamódel sem margir safna. Halldór og sonur hans keyptu
sinn íyrsta Porsche fyrir nokkrum árum og gerðu upp. Alla
varahlutina í bílinn keyptu þeir á Netinu.
Nota þýðíngarvélar „Ég hef notað Netið mikið í sambandi við
áhugamál mitt, bíla, og til að aðstoða vini og kunningja því að
margir hræðast það að eiga viðskipti á
Netinu. Ég hef einkum átt viðskipti við
Bandaríkjamenn en líka Þjóðverja.
fjóðveijum finnst oft að allir flutningar
innan Evrópu verði að eiga sér stað
með bíl og það hefur stundum verið
vandamái. Ég hef leyst þetta með því
að notfæra mér þýðingarvélarnar á
Netinu. Það gengur oft betur að nota
þýskuna. Svo eru margir Bandaríkja-
menn sem vilja ekki eiga viðskipti utan
Bandaríkjanna en ég hef sent þeim
stöðluð bréf þar sem ég útskýri fyrir
þeim að það sé bandarísk herstöð
hérna og segi frá landi og þjóð og þá
blíðkast þeir oft. Að undanförnu hef ég
svo snúið mér frekar að þvi að senda
vöruna á Shopusa. Það er þægilegra
og sparar tima,“ segir Halldór.
Öryggismálin hafa verið í góðu lagi í þeim viðskiptum sem
Halldór hefur átt á Netinu. „Maður byggir upp mannorð. Um
leið og maður kaupir vöru hjá einhveijum getur maður séð
hvort honum er treystandi eða ekki. Um leið og maður sér að
viðkomandi hefur fengið léleg meðmæli þá verslar maður
ekki við hann,“ segir Halldór og kveðst aðeins einu sinni hafa
lent í veseni og það hafi verið vegna þess að hann hafi ekki
lesið smáa letrið nógu vel. „Þetta var eitt af þremur fyrstu
viðskiptunum mínum og skipti svo sem engu máli. Myndin
sýndi tvo hluti en í smáa letrinu kom fram að verðið gilti bara
um einn hlut.“
Keypti Benz „Dollarinn var svo hagstæður og ég var að leita
mér að Land Cruiser þvi að ég átti svoleiðis bíl. Ég bauð í
nokkra Mercedes Benz jeppa á
Ebay.com og fékk ekki en endaði á því
að kaupa þennan Mercedes Benz ML
430 jeppa með öllu, árgerð 2000 og
keyrður 60 þúsund kílómetra. Það
gekk ótrúlega vel og ég bara bauð í
hann 20 þúsund dollara, eða tæpar 1,5
milljónir króna miðað við gengi
dollarans upp á 70 krónur - hringdi í
bankann og lét ganga frá þessu. Ég lét
setja undir hann ný dekk úti og dráttar-
krók og svo þurfti ég ekki að hugsa
meira um þetta fyrr en bíllinn var
kominn heim tveimur til þremur
vikum síðar. Samtals kostaði hann mig
því um 3 milljónir króna kominn á
götuna heirna," segir Auðun Gunnars-
son, framleiðslustjóri Kartöfluverk-
smiðjunnar í Þykkvabæ. S!]
6 RÁÐ í NETVIÐSKIPTUM
1 Skráðu þig inn á eBay.com og búðu til
þína eigin síðu, „My eBay".
2 Láttu síðuna fylgjast með fyrir þig og
senda þér ábendingar um öll tilboð.
3 Fylgstu með tilboðunum í nokkra daga
eða vikur til að sjá hvaða viðskipti eru
að eiga sér stað og hvaða verð er lægst.
4 Ákveddu fyrirfram hvaða upphæð þú
ætlar að bjóða og ekki víkja frá því.
5 Ekki bjóða í neina vöru fyrr en örfáum
mínútum áður en lokað er fyrir upp-
boðið. Annars færðu boð á móti þér.
6 Affarasælast er að bjóða í hluti á
morgnana að íslenskum tíma, rétt áður
en uppboði lýkur, því að þá eru Banda-
ríkjamenn sofandi.
91