Morgunn - 01.06.1964, Side 38
32
MORGUNN
dauðans ofboði gripið um leirtauið á borðinu til þess að forða
því að það brotnaði, enda orðið lítið eftir um slíkan varning
á heimilinu. Síðan þá hefðu þau einskis orðið vör.
Eftir að hafa rætt við fólkið, sem yfirleitt tók okkur mjög
vingjarnlega, fórum við öll, sem fyrr eru nefnd, inn í bað-
stofuhúsið ásamt Hafsteini Björnssyni. Sofnaði miðillinn til-
tölulega fljótt. Engra hreyfinga urðum við vör á hlutum
þarna inni, hvorki meðan á fundi stóð, né heldur á undan
honum eða eftir. Það eina einkennilega, sem gerðist í þá átt
var, að Sigurlaugur Þorkelsson, sem sat á dívan næst dyr-
um, kvaðst, á meðan miðillinn var að sofna, finna, að gripið
væri þéttingsfast um handlegg sér. Ennfremur sýndist svo
um stund, að nokkur átök ættu sér stað á milli Helga Vig-
fússonar, sem þá hafði misst meðvitund um skeið, og ein-
hverra afla, er virtust vilja toga hann fram á gólfið. Aðal-
stjórnendur Hafsteins miðils komu þarna fram og kváðust
mundu reyna að leysa upp þær orkustöðvar, er þeir sögðu,
að búið væri að koma fyrir þar í bænum víðar en á einum
stað. Gáfu þeir von um, að þessum fyrirbærum mundi brátt
linna, eða að minnsta kosti draga kraft úr þeim. Ennfremur
lýsti miðillinn í hálftrance allmörgu framliðnu fólki, er
hann sæi þar inni og nafngreindi það flest. Kannaðist bæði
heimilisfólk, svo og sóknarpresturinn, séra Pétur Ingjalds-
son, sem kom á heimilið nokkru eftir að fundur hófst, við
flest þetta fólk. Hafði það átt heima í sóknum hans flest allt,
og var sumt dáið fyrir skömmu, en aðrir fyrir alllöngu farnir
af þessum heimi. Það skal tekið fram, til þess að fyrirbyggja
misskilning, að með öllu er rangt að draga þá ályktun, að
það framliðna fóik, sem miðillinn lýsti, hafi átt þátt í að
hrinda af stað þeim fyrirbærum, er átt höfðu sér stað á
heimilinu.
Eðlilegt er, að ýmsir kunni að spyrja um það, hvort þessi
ferð hafi leitt til nokkurrar skýringar á þessum fyrirbærum
eða nokkurs árangurs yfirleitt. Þessum spurningum get ég
aðeins svarað fyrir sjálfan mig. Er þess þá fyrst að geta, að
eftir að hafa rætt við heimilisfólkið og athugað aðstæður, er