Morgunn - 01.12.1970, Síða 47
MORGUNN
125
Annað atvik beit sig fast í barnshuga minn. Og enda þott
það sé ómerkilegra en margt annað, þá hef ég ekki getað
gleymt því. Mamma átti yndislegan kanarífugl. Henni þótti
afar vænt um hann og raunar okkur öllum. Hann var svo gæf-
ur, að við lofuðum honum að flögra um eins og hann vildi. Oft
sat hann á hendinni á mömmu eða þá á öxlinni og söng þá
fullum hálsi. Kvöld eitt var fuglinn horfinn og búrið autt. Við
leituðum og leituðum, en fundum hann ekki, og mamma var
mjög döpur. Pabbi var ekki heima þetta kvöld, og ég naut góðs
af þvi og fékk að sofa hjá mömmu. Klukkan fjögur um nóttina
vakna ég við það, að mamma er að læðast fram úr rúminu.
Hún gengur rakleitt að fótagaflinum, lyftir upp sængurtjald-
inu og dregur þar fram vesalings fuglinn dauðan. Ég stökk
fram úr rúminu, greip í mömmu og sagði i dauðans ofboði:
„Hvernig fórstu að finna hann, mamma? Hvernig vissir þú,
að hann væri þarna? Ekki vissir þii það í gærkveldi“.
Hún strauk mjúklega aumingja gula söngfuglinn sinn. Og
svo sagði hún:
„Ég sá það allt áðan, hvcrnig það var. Og svo fór ég á fætur
til þess að taka fuglinn og ganga frá honum. Það var óhræsis
kötturinn. Hann drap fuglinn og faldi liann hérna á bak við
tjaldið, þegar hann heyrði, að við værum að koma. Mér þótti
verst, að ég vakti þig, blessunin. En farðu nú upp i aftur og
reyndu að sofna“.
Svo breiddi hún ofan á mig, vafði fuglinn í bómull og lét
hann ofan i litlar öskjur.
Smátt og smátt fór mér að skiljast, að mamma var gædd
þeim hæfileika að „sjá“ sitt af hverju, án þess þó að gera sér
grein fyrir þvi, að þetta væri neitt merkilegt, né heldur gerði
hún neitt til ])ess að þroska þennan hæfileika. Hún var mjög
Irúuð kona og ég held, að fáir þurfandi hafi farið frá henni án
þess að hafa fengið mat, einhverja þarflega spjör, peninga eða
þetta allt í senn. Hún hvatti mig til þess að koma á fót smá-
utsölu á ýmsu dóti heima hjá okkur og verja ágóðanum til
styrktar fátækum börnum. Hún lét mig hjálpa til að skreyta
kirkjuna fyrir jólin, en þá kirkju sóttum við á hverjum sunnu-