Morgunn - 01.01.1978, Blaðsíða 31
ALDAHVÖBF
29
því á hvaða tíma sem er eitt eða annað stig í hringrás. Hvað
er himinbláminn, hvað eru hin myrku og björtu ský, hvað
er morgunroði og kvöldroði? — Er þetta ekki einmitt vatn á
ákveðnu skeiði hringrásar? — Er það ekki einmitt þetta sama
vatn, sem stundum streymir um rennur og holræsi, en verður
síðar að kristalstæru drykkjarvatni lífverum til svölunar og
svirefnisauka í blóðið? — Er ekki hið sama að segja um öll
þau efni önnur, sem við þekkjum úr daglegu lífi? — Eru ekki
hinir ýmsu málmar: gull, silfur, kopar og járn efni á ákveðnu
stigi i hringrás? Geta ekki öll þessi föstu efni orðið fljótandi
og jafnvel að gufu? — Eru ekki öll efni háð hitabreytingum?
— Geta ekki öll fljótandi efni orðið föst og öll föst efni fljót-
andi eða loftkennd fyrir áhrif hitabreytinga? — Ekki er til það
efni, sem er með öllu óumbreytanlegt. öll efni eru breyting-
um háð og eru aðeins í tímabundnu ástandi sökum jafn tíma-
bundins hitastigs. Breyting hitans hefur í för með sér sam-
svarandi breytingar á sérhverju efni. Þessi breyting eða um-
myndun efnisins er ákvarðað form, haldið uppi af sérstökum
ákveðnum lögmálum, og þessi sama umbreyting er skilyrði
fyrir lífsskynjun lífverunnar. Væri ekki svo, ætti heldur engin
sköpun sér stað, og þar með ekki heldur neitt form lifsskynj-
unar eða tíma.
XX.
/
Hvorki er til eilíf æska né alger dauði.
Lífsskynjun lífverunnar er því eingöngu skynjun hinna
mismunandi stiga efnanna í hringrásinni, jafnt i eigin lík-
ama sem umhverfinu. Það er þess vegna, að enginn getur
haldið áfram að vera sífelll ungur eða gamall, sífellt í barn-
dómi eða manndómi. Allar lífverur eru óhjákvæmilega hver
Um sig eilíflega á breytilegu lífsskeiði, stig tekur við af stigi
°g hvert stig getur þvi aðeins verið timabundið. Þar sem efn-