Morgunn - 01.01.1978, Blaðsíða 94
92
MORGUNN
Erlendir miSlar. Joan Rolcl, brezki lækningamiðillinn, starf-
aði hjá félaginu í júnímánuði 1977.
Skrifstofa félagsins er opin frá kl. 13.30—17.30 alla virka
daga. Bima Halldórsdóttir vinnur á skrifstofunni og tekur á
móti bókunum á miðilsfundi, innritun í félagið og svarar
fyrirspurnum í síma 18130.
MORGUNN, tímarit félagsins, kom út tvisvar á árinu að
vanda og vill stjórn SRFÍ ítreka að talsvert er til af eldri ár-
göngum tímaritsins, sem er til sölu á skrifstofu félagsins.
Elinnig eru bækur til sölu á skrifstofu félagsins, svo og minn-
ingarkort SRFÍ.
Framvegis verður MORGUNN eingöngu sendur til skuld-
lausra áskrifenda. Þeir félagsmenn, sem skulda 2 ár eða meir
í félagsgjöld, falla út af félagaskrá.
A sl. aðalfundi var stjórninni heimilað að hækka félags-
gjöld og áskriftargjald að Morgni úr kr. 1000,00 í kr. 1500,00
fyrir hvort um sig.
IJm það bil 200 nýir félagsmenn gengu í félagið á sl. ári.
Félagið lét gera silfurskjöld til minningar um Hafstein
Björnsson, miðil, og var hann afhentur ekkju Hafsteins, Guð-
laugu Elísu Kristinsdóttur.
TVEIR LÆKNINGAMIÐLAR
starfa nú hjá SRFl í Garðastræti 8, Unnur GuSjónsdótt-
ir og Jóna Rúna Iívaran. Upplýsingar gefur skrifstofan
í Garðastræti 8, sem er opin alla virka daga nema laug-
ardaga kl. 13,30 til 17,30. Sími 18130. Fundir SRFl eru
venjulega haldnir fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Kvennadeild félagsins selur kaffi eftir fundi til ágóða
fyrir starfsemina.