Morgunn - 01.01.1978, Blaðsíða 57
YFIRSKILVITIÆG REYNSLA
55
það er lífsnauðsyn hverjum manni að láta heilann starfa sem
mest, fást við eitthvað, annars hrörnar hann. Þannig var haft
eftir þýzkum vísindamanni í þessum efnum fyrir nokkru,
mig minnir að það birtist í tímaritinu „Spiegel“, að það væri
t. d. ágætt heilastarf að glíma við krossgátur, en ég hef allt
til þessa nánast haft hálfgerða fyrirlitningu á krossgátum.
Það var og talið að betra væri að læra t. d. símaskrá utan að
en að læra ekki, því það væri vítavert að láta heilann vera
aðgerðarlausan. Að mínu mati er æskilegra heilastarf að læra
t. d. nýtt tungumál eða ljóð utan að.
1 þessu ljósi virðist mér hugmyndir þeirra, sem eru að tala
um hugleiðslu, til bóta fyrir heilastarfið, en hún gengur út
á það að reyna að halda huganum kyrrum eða tómum, svo-
kölluð yoga, nánast vera í andstöðu við það, sem segir að
ÍTaman, enda er mér vitanlega ekkert sem ennþá hefur sann-
að ágæti slíkra hugleiðslna tómleikans.
Umburðarlyndi fólks gagnvart því, sem ekki fæst skýrt á
eðlilegan hátt, er miklu meira en áður. Nú er svo komið, að
forsvarsmenn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vilja fara
að viðurkenna lækningamátt svokallaðra huldu- eða anda-
lækna, óvenjulegra manna, sem lækna með huga sínum líkt
og t. d. Einar á Einarsstöðum. Miðilshæfileikar eru ekki leng-
ur eins dregnir í efa og áður var af vísindamönnum og fjöldi
þeirra viðurkennir þá sem sérstaka hæfileika.
I ljósi þeirra staðreynda, er áður greinir, þótti mér rétt að
verða við tilmælum forseta Sálarrannsóknafélagsins og því
hefur erindi þetta orðið til. Þar verður vikið lítillega að dul-
rænum hæfileikum föður míns, Þórðar Sveinssonar og einnig
að nokkru af því litla yfirskilvitlega, sem fyrir mig hefur
borið.
Maður, sem elst upp við það að heyra föður sinn í alvöru
fala jöfnum höndum um það, að hann hafi hitt þennan eða
hinn manninn i svefni, menn sem ýmist voru í tölu lifenda
eða látnir, kemst varla hjá því að taka afstöðu með sjálfum
ser, hvort slíkt geti verið hugarburður einn eða hvort einhver
fótur geti verið fyrir þessu.