Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Blaðsíða 52

Morgunn - 01.01.1978, Blaðsíða 52
50 MORGUNN orkunni ríkari, ef svo mætti að orði komast. Tugþúsundir manna leita árlega á fund lækningamiðla og dæmið, sem hér er greint frá er þvi aðeins eitt dæmi af þúsundum sem gerast á hverju ári. Þetta dæmi sýnir með hverjum hœtti fram- liðnir menn sanna tilvist sína eftir leiðum raunvísinda. Enginn vafi er á því, að við höfum nú þegar yfir þeirri tækniþekkingu að ráða sem nauðsynleg er til vísindalegs sam- bands við framliðna menn. Tæknilega séð er ekkert þvi til fyrirstöðu að rannsökuð verði nú þegar sú geislaskothríð, sem hér um ræðir. En hér skal tekið fram, að á frumstigi rann- sóknar þessa fyrirbrigðis hefur það enga þýðingu að vera með bollaleggingar um það, hvar framliðnir menn eru niður komnir. Við þurfum að rannsaga eðli þessarar geislaskot- hríðar. f efnishyggju nútímans úir og grúir af alls konar hjátrú og hleypidómum. Háttskrifaðir vísindamenn strita við að smíða margs konar fullyrðingar um líf og efni, sem enginn fótur er fyrir. Ein þessara alhæfinga er á þá leið, að það sé nánast rökleysa að tala um efni án tíma. Þetta er auðvitað ekki annað en heilaspuni þeirra manna er dregið hafa rangar ályktanir af augljósum staðreyndum. Tímanlegt efni er að sjálfsögðu ekki til nema í tímarúminu. En það útilokar ekki þann möguleika að efnisheimurinn haldi áfram innan við hið tímanlega svið með ákveðna verðandi þótt ekki sé þar neinn tími. Þannig gæti sólkerfið verið margbrotið og stórkostlegt undur, þótt blind efnishyggja neiti því að svo sé í hinni nýju heimsmynd. Við getum þó liklega verið sammála um, að hinn ósýnilegi múr milli okkar og framliðinna manna sé sjálf grundvallar- staðreynd efnisheimsins, þótt ágreiningur sé um hvernig skilja beri þessa staðreynd. Múrinn á milli okkar og framliðinna manna er tímamúrinn. En hvar er hann þá þessi grátmúr dauðans, þessi grundvall- arstaðreynd, sem enginn hefur séð eða þreifað á? Tímamúrinn er alls staðar og hvergi, hann er allt i öllu en þó samt óendanlega fjarlægur. Hann er í hverri frumeind,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.