Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Side 73

Morgunn - 01.01.1978, Side 73
RADDIR LESENDA 71 aí dulargáfum, önnur en lækningar, hef ég ætíð talið sálfarir eða tvífaraferðir, sem ég tel eitt og hið sama. Þær hafa sannað mér það aðalatriði, að andi mannsins eða sál er sjálfstæð efn- ísverund. Að vísu samofin lioldslikamanum meðan samband þeirra varir, og þó þannig, að hún getur að mestu leyti yfir- gefilð lioldslíkamann og farið sinna ferða utan hans. 1 þessu lífi þó eingöngu undir stjórn annarra sálfarenda eða tvífara, þroskaðri vera að handan. Nú alveg nýlega eignaðist ég tvö kver sem heita „Islend- mgabyggð á öðrum hnetti“, eftir Guðmund Daviðsson, Hraun- um, Fljótum. Þar eru tveir fyrirlestrar' er höfundur hélt á Sauð- árkróki 29. og 30. des. Fyrirlestrarnir eru útdráttur úr dulrænni skrift Guðmund- ar, en hann vann sig í það að ná sambandi við látinn föðrvr sinn, frændur og fleiri. Sambandið virðist liafa verið mjög gott, enda fátt, sem hefur truflað, þar sem hann var einn að verki, hafi hann getað hamið eigin hug. Hvíslendur hans, en svo kallast þeir, er fræða Guðmund handan að, lýsa æði mörgu frá framlifi sínu, sem mjög fróðlegt er, þó fátt verði talið hér. Þeir kalla hnöttinn sinn Fjörgyn, en vísindaheiti hans er Karitatata. Þeir skýra það hvernig þeir eignast nýjan holds- líkama, er þroskast upp af efnum, er sálin her í sér héðan *ueð hjálp handan að. Með því athyglisverðasta, er þeir skýra frá, virðist mér það, að vegna aukins þroska þeirra eru þeir langtum frjálsari en hér að fara ferða sinna utan líkamans í sálförum eða tvifara- ferðum. — Og þannig fara þeir „með meir en leifturhraða hnatta á milli“. Einn endar pistil sinn með þessum orðum: 55Ég sit hér í hægindastól heima hjá mér og tvífari minn er hjá þér og hvíslar að þér“. Það virðist mér mjög athyglisvert m. a. að verund fram- hðinna, er hér hirtist, virðist mjög svipuð verund sálfarenda °kkar að gerð og getu. Er ég las bók J. Þ. „Lif er að loknu þessu“, vöktu sérstaka athygli mína orð Finnu þá hún lýsir framlífi sínu, bls. 214:

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.