Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Page 83

Morgunn - 01.01.1978, Page 83
RADDIR LESENDA 81 mitt sú, að margt af því, er þér hafið mælt, örvar mig á ýmsan hátt til að fá frekari skýringar, á sama hátt og þegar ég — sautján ára — sat við hlið vinar míns, í Fríkirkjunni í Reykja- vík, veturinn 1918 til 1919 og veitti athygli hverju því orði er séra Haraldur Níelsson mælti. Ég hreifst af orðgnótt hans °g þó sérstaklega af því hve margar samlíkingar hans voru sannfærandi. Þann sama vetur kynntist ég einnig — örlítið — afa yðar — Einari Hjörleifssyni rithöfundi, en skoðunum hans hetur síðar, þegar hann og Sigurður Nordal prófessor gengu á hólm fyrir opnum tjöldum. — Ein mynd af afa yðar, Einari Hjörleifssyni og séra Haraldi, frá fyrrnefndum vetri er enn fycwlifandi í spegli minninga minna. Það var snemma dags, í sólskini, sennilega i mars, að leið mín lá fram hjá Eymund- sens bókabúð, í suðvestan hvassviðri. Ég nam staðar í skjóli, því tveir menn, sem ég veitti sérstaka athygli, komu vestan gangstéttina og stefndu á mig. Þetta voru þeir Einar Kvaran °g sr. Haraldur. Þeir töluðu óvenju hátt, til að yfirbuga storm- tnn og notuðu ofurlitlar handahreyfingar, svo jafnvel mér gat ekki dulist að efnið, sem þeir voru að tala um, tók hug þeirra allan. Mér varð litið framan í þá og ég minnist ekki að hafa seð nein augu leiftra eins og er þeir litu hvor á annan og létu orð falla um það, sem öllu var æðra. 1 því sambandi nefndu þeir einhvern horfinn vin. Rann þá upp fyrir mér ljós, sem varð til þess, að ég þóttist fara nærri um umræðuefnið. Mér hitnaði inn að hjartarótum. Móðir mín var mjög trúuð kona og treysti á miskunnsaman guð og Meistarann fró Nazaret. Ég held einnig að hún hafi ottast eldana í helvíti. En því vík ég að þessu síðastnefnda, að þegar ég var sex ára kom til okkar trúboði, skömmu fyrir )ólin. Seint um kvöld prédikaði hann fyrir heimafólkinu á Hafursstöðum i öxarfirði, þar sem ég átti lieima. Það sátu allir á rúmum sínum hljóðir með hátíðasvip. Eg hjúfraði mig við hlið móður minnar, sem hélt um mig. Mér varð fljótt um °g o að horfa á prédikarann, hvernig hann hagaði sér. Hann benti með höndunum, ýmist upp i loftið eða niður í gólfið og brýndi svo raustina, að mér fannst hann öskra, þegar hann 6

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.