Morgunn


Morgunn - 01.06.1989, Page 7

Morgunn - 01.06.1989, Page 7
MORGUNN RITSTJÓRARABB staðar hér á landi er að finna meira efni saman komið á einum stað, þar sem fjallað er um spíritisma og dulræn málefni yfirleitt. í Morgni er að finna einhverjar bestu heim- ildir fyrir því hvernig þessi mál hafa þróast á íslandi og jafnframt hvað oft á tíðum við var að fást hjá frumkvöðlun- um þegar þeir voru að byrja að kynna spíritismann fyrir samlöndum sínum. Eins og fram kemur í inngangsorðum Einars H. Kvaran, fyrsta ritstjóra Morguns og jafnframt fyrsta forseta Sálar- rannsóknafélagsins, þá höfðu þeir sem að ritinu stóðu í upp- hafi ráðgert um nokkuð langan tíma að hefja útgáfu slíks rits áður er varðaði „sambandið við annan, æðri heim,“ eins og segir í fyrrgreindum formála og á þeirri línu hefur ritið haldið sig í gegnum áratugina. Þó nokkrir eiga öll rit Morguns frá upphafi og einn núver- andi stjórnarmanna félagsins hefur stundum haft á orði að hann sé orðinn vel á annan meter í innbundnu formi og á hann þar að sjálfsögðu við það hillupláss sem Morgun tekur. Það segir sig því sjálft að þar er um allmikinn fróðleik varðandi dulræn málefni að ræða og sem við munum nú glugga í okkur til gagns og ánægju vonandi, í þessu og næsta hefti auk einstakra kafla í þeim næstu þar á eftir. Með góðri kveðju, Guðjón Baldvinsson. 5

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.