Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 78
SAMBANDSÁSTAND
MORGUNN
er þú fórst á fætur um morguninn, að minnast af ásettu ráði
þess, er gerst hefir þann daginn eða þá vikuna. Svo lengi sem
þinn eigin vilji er starfandi, getur engin vitsmunavera utan
við þig náð stjórn á þér.
Annar örðugleiki, sem fyrir mig kom, var sá, þegar sam-
bandsástand var að byrja að þroskast hjá mér, að mér var
einu sinni fleygt á gólfið. Ég hefi megna óbeit á því að nokkur
misbjóði líkama mínum, og ég vil ekki líða neinum framliðn-
um manni að fara með hann með öðrum hætti en ég myndi
vilja fara með hann sjálfur (nema það sé gert í einhverjum
viturlegum undantekningartilgangi). Afleiðingin af þessu
varð sú, að ég gerði samning við aðal-leiðsagnaranda minn,
að ekki skyldi nema ein vera taka mig í sambandsástand. Sá
sem til þess var valinn var ekki sá, sem mest talar af vörum
mínum, heldur sá, sem mest segulafl hafði í hópnum um-
hverfis mig. Hann var Hindúi af háum stigum, og ég gerði
það að fastri reglu, að enginn annar en hann skyldi mega
svæfa mig. Það var sömuleiðis í samningnum, að hann skyldi
bera ábyrgð á því, hverjir fengju að nota mig, þegar ég væri
sofnaður. Svo að Hindúinn svæfði mig og skilaði mér svo til
þeirra, sem nauðsynlegir voru til þess að fá því framgengt,
sem til var stofnað, og hann tók að sér ábyrgð á þeim, sem á
eftir honum komu. Hann stóð undantekningarlaust við
samning sinn, og árangurinn af þessu fyrirkomulagi var sá,
að öll þau ár, sem ég fékkst við miðilsstörf, leið mér aldrei illa
nokkura stund, né heldur svaf ég illa nokkura nótt fyrir mína
sálrænu starfsemi.
Hindúinn talaði aldrei. Hann var kynlegur maður. Hann
leit með fyrirlitningu á allar tilraunir til þess að fá hann til
þess að tala ensku. Það þótt honum ósamboðið stétt hans; en
hann kunni sitt verk og leysti það vel af hendi.
Smám saman fór ég að verða var við margar verur, og ég
þekkti hverja þeirra af áhrifunum, sem návist þeirra hafði á
mig. Meiri hluti þeirra var Englendingar og flokkurinn virtist
hafa safnast saman vegna þessa sérstaka verks, sem mér var
ætlað.
Starf miðilsins Mrs. Osborne Leonard í sambandsástandi
76