Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 12
Ólöf frá Hlöðum:
DULRÆNAR FRÁSAGNIR
ÚR EIGIN REYNSLU ÓLAFAR Á HLÖÐUM
Mig langar til að leitast við að gera nokkra grein þess, sem
gefið hefur mér fullvissuna þá góðu; að við „lifum þótt við
deyjum“, ef einhverjum þeim mætti að gagni verða reynsla
mín í því máli, sem enn eru að klífa í ógöngum efans og
óvissunnar, þar sem ég sjálf kleif, mestan hluta ævinnar. Nú
er ég algjörlega sloppin þaðan, fyrir aðstoð hinna ósýnilegu
vina minna, sem hafa gefið mér leyfi til að birta það úr miðils
sambandi mínu við þá, sem sannanlegt er, og líklegast er til
að sannfæra aðra.
í 10 - 12 ár hef ég lagt alla stund á að kynna mér eilífðar-
málin nýju frá öllum þeim hliðum, sem ég hef átt kost á, en
einkum lagt áherslu á að ná ábyggilegu sambandi við ósýni-
lega heiminn, sem næstur er okkur. Og í sífelldu sambandi
við hann er ég, eftir því sem ég nú veit, þó að ver gangi mér að
færa öðrum sönnur á, svo sem ég vildi. Fyrst lengi vel hafði ég
ekki aðra miðla en þá, sem „hreyfðu borð“, og er það
samband næsta óábyggilegt og ófullkomið, þó að furðulegt
fyndist mér það þá, og fegin yrði ég þeim undrum.
Árið 1917 barst óvænt upp í hendurnar á mér 14 ára
piltur, gætinn og vandaður, sem ég held, að sé með afbrigð-
um ábyggilegur skrifmiðill. Af honum hef ég haft hið mesta
gagn nú áþriðja ár. Tveir framliðnir menn stýra sambandinu
til skiptis, annar þeirra þó einkum, og hann virðist vaka yfir
piltinum og varðveita hann, eins og einhverja gersemi. Báðir
þessir menn voru málvinir mínir góðir, meðan þeir voru í
jarðlífs-gervinu, og er persónulegt sérkenni beggja
10