Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 73
MORGUNN
HITT OG ANNAÐ
þetta voðalegra, og að lokum gat ég ekki verið svona lengur.
Ég reis því upp og vakti stúlkurnar. Þær segja svo frá síðar,
að þá hafi þær orðið hræddar við mig — svo hafi ég verið
ægileg, sögðu, að sér hefði dottið í hug, að ég væri ekki alveg
með öllum mjalla.
En ég æddi fram og aftur; og til þess að hafa eitthvað fyrir
stafni, fór ég að rífa lyng, kveikja upp eld og hita kaffi. í þetta
gekk töluverður tími.
Nú leiddist stúlkunum þetta og báðu mig að koma og
leggjast fyrir aftur. Ég gerði það fyrir þær og lagðist nú enn til
svefns.
Þá fann ég, að einhver stóð uppi yfir mér. Ég leit upp, og sá
þá gamla komu standa hálfbogna á tóttarveggnum og horfa á
okkur voðalega illilega. Hún var með röndótta svuntu, í
stuttu pilsi, með gulan skýluklút, bundinn yfir sig. Ég sá að
hún vildi okkur burt, og nú varð ég þess vör, að myrkrið
voðalega var allt frá henni. Ég sá, að hún var umkringd af
einhverjum fleiri voðalegum verum. Þá hvarf hún allt í einu
af veggnum og ég lagðist fyrir aftur. Samt leið mér ekki betur
en áður. Ég reyndi aftur að sofna, en þá fann ég að konan
stóð aftur á veggnum. Þetta endurtókst þrisvar sinnum, svo
að svefni var auðvitað alveg lokið fyrir mér.
Undir morguninn fannst mér ég einu sinni sjá niður á
veginn, sem lá dálítið fyrir neðan okkur. Fjárgötuslóði lá frá
veginum upp að selinu. Nú fannst mér ég sjá tvo menn koma
eftir götuslóðanum. Þeir báru byrðar á bakinu og voru illa til
fara. Annar var í bláum jakka eða peysu; hinn var dekkri.
Þetta hvarf rétt strax aftur. Rétt á eftir sá ég fyrstu geisla
sólarinnar gægjast upp fyrir hæðina, og ég man, að aldrei hef
ég orðið fegnari sólargeislunum. Mér fannst þeir frelsa mig
frá einhverju voðalegu. Þá hvarf allt saman; ég var eins og
áður glöð, en dálítið máttlaus. Það hvarf líka bráðlega.
Þegar við vorum farnar úr selinu, sagði ég frá því, sem ég
hafði séð og fundið. Þá sagði stúlkan, sem fylgt hafði mér að
málum, að hún hefði þegar um kvöldið fundið eitthvað
voðalegt færast til sín; en það hefði alveg horfið, þegar við
sátum á hæðinni um kvöldið. Hún sagði líka, að þegar hún
71