Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 38
FYRSTI MIÐILL RAYMONDS
MORGUNN
sig og sá þegar, að hún var ekki í rúminu, jafnvel ekki í
svefnherberginu, heldur í einhverju herbergi, sem hún hafði
aldrei séð áður. Merkilegast þótti henni það, að hún sá að
hjónin, sem væntanleg voru til hennar um daginn, voru
þarna inni, og þau voru að tala við mann, sem hún hafði ekki
áður séð. Hún heyrði frúna nefna hana, en annars gat hún
ekki náð í samtalið að öðru leyti en því, að hjónin myndu
vera að bjóða þessum ókunna manni á fundinn hjá henni. Nú
fór hún að hugsa um það, að þetta hlyti að vera draumur, því
að þesssi hjón mundu aldrei hleypa neinum að þeim einka-
málum, sem á fundum þeirra gerðust og voru þeim svo
heilög. Hún athugaði óþekkta manninn vandlega í því skyni
að muna hvernig hann hefði verið ásýndum, þegar hún yrði
komin í venjulegt ástand. Pá datt henni í hug að flýta sér
heim og segja manninum sínum frá þessu tafarlaust, því að
það væri góð sönnun, ef maðurinn kæmi nú með hjónunum.
Nú bjóst hún við að komast tafarlaust inn í jarðneska
líkamann, en í stað þess veit hún af sér í miðjum stiga, sem
hún hélt fyrst, að væri stiginn heima hjá henni. Áður en hún
gat áttað sig á þessu, heyrði hún söng og hljóðfæraslátt, sem
hún hélt að kæmi úr svefnherberginu sínu. Pá varð henni
ljóst, að þaðan gat þetta ekki komið, og að hún var ekki
heldur í stiganum heima hjá sér. Hún leit upp og sá framlið-
inn son hjónanna, sem hún átti von á um daginn, standa á
stigabrúninni. Hún vissi, að þetta var þeirra sonur, því að á
einum fundinum með þeim hafði hún séð hann og lýst
honum fyrir þeim.
Þegar hún leit á hann, virtist hann líka þekkja hana, og
hann brosti: „Sæll, Philip“, sagði hún, „hver er að spila og
syngja þarna í svefnherberginu mínu?“ Enn var hún þess
ekki fullviss, að þetta væri ekki í hennar hergbergi. „Petta er
ekki svefnherbergið þitt, frú Leonard“, sagði hann. „Jæja,
hver er að spila og syngja?“ sagði hún. „Það er Geirþrúður“,
sagði hann. „Geirþrúður?“ sagði hún — „hver er Geir-
þrúður“,? Hún vissi að hann átti enga systur. Hann svaraði
þá þessu: „Þegar hún var á jarðarsviðinu, var hún vön að
36