Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 26
DRAUMAR
MORGUNN
VIII. Á leið til Bœgisár.
Nóttina fyrir þ. 10. nóv. 1915, dreymdi mig, að ég gengi
hér út á tröppurnar. Sé ég þá tvo aðkomumenn á hlaðinu,
annan svarthærðan og dökkan yfirlitum, hinn ljósan og
bjarihærðan. Ég kannast við að hafa séð dökka, skuggalega
manninn; man þó ekki hvenær. Hann stekkur upp tröppurn-
ar til mín, en í sama bili er bjarleiti maðurinn þar kominn,
þrífur til hans og segir höstuglega: „Þú hefir ekkert hér að
gera. Komdu strax. Þú veist við þurfum að fara að Bægisá í
kvöld.“ — Þá vaknaði ég.
Um kvöldiðþ. 10. nóv. kom hér maður frá Akureyri; sagði
hann, að þá um daginn hefði Valdemar læknir Steffensen
verið sóttur til Valgerðar dóttur sr. Theódórs á Bægisá, sem
lægi við dauðann. Um veikindi hennar hafði enginn maður
heyrt getið. Hún dó um kvöldið þ. 10. nóv. af heilabólgu,
eftir stutta legu.
IX. Sálmasöngurinn á Skagaströnd.
Nóttina fyrir 21. des. 1912 dreymdi mig, að ég væri komin
á Skagaströnd til Kristjönu systur minnar og Velschows
manns hennar, áður verslunarstjóra þar; ég átti þar heima
hjá þeim eitt ár, eftir að ég var fermd. Ég þóttist eiga þar
heima enn; geng inn í „salinn“, sem nefndur var, að finna
systur mína; hún er þar ekki, en ég heyri þá þangað mikinn
söng innan úr skrifstofunni; þekkti glöggt rödd Velschows,
sem söng ágætlega, og ég heyrði margoft syngja, bæði þar
heima og fyrri í Grafaósi; og fleiri syngja þarna inni. Ég opna
hurðina að skrifstofunni, og sé þar þá allt uppljómað og
skínandi bjart. Þar situr Velschow og hjá honum tveir menn
ungir; fleira var þar ungt fólk, og söng flest eða allt, og söng
yndislega. Tveir sálmar voru þar sungnir, annar: „Tænk naar
engang“, o.s.frv., og þann sálm þekkti ég vel; hinn sálmurinn
byrjaði svona: „Den er slet ikke af Gud forladt, hvem han
24