Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 50
ÝMISLEGT UTAN ÚR HEIMI
MORGUNN
Barrett, og er hann þó ekki vanur að vera harðorður í garð
andstæðinga sinna. í erindi, sem hann flutti um ódauð-
leikann 17. október komst hann meðal annars svo að orði:
„Það er engin furða, þó að hugsandi menn í öllum stéttum
missi virðingu fyrir kenningum kirkjunnar, þegar þeir verða
varir við slíka vanþekking og umburðarleysi hjá kenni-
mönnum, sem mjög mikið ber á. Ef þeir, sem þykjast vera að
fræða aðra um þetta mál, vildu verja eins mörgum stundum
til þess að kynna sér það eins og sumir okkar hafa varið
mörgum árum til þess, þá mundu þeir ekki fara með annan
eins þvætting og þeir hafa látið sér um munn fara. Þessu máli
er svo háttað, að það þarfnast sérstaklega gagnrýninnar
rannsóknar. Ómótmælanlega færir það sönnur á framhalds-
líf eftir dauðann. Spíritistiskar rannsóknir, sem reknar hafa
verið með lotningarfullum hug, hafa ótal sinnum orðið sakn-
andi og sorgmæddum hjörtum til huggunar“.
Einn af prestum biskupakirkjunnar, Ellis G. Roberts,
magister artium frá Oxford, er afar gramur fyrir spíritismans
hönd. Hann segir, að það sé gersamlega fráleitt að hugsa sér
það, að spíritistar muni eftirleiðis láta sér nægja að verja sig
og hrinda frá sér þeim ásökunum, sem að þeim sé beint.
„Rétta bardagaaðferð spíritistanna er sú sem stendur“, segir
hann, „að koma með ákveðna spurningu og krefjast ákveð-
ins svars. Spurningin er þessi: Stendur kirkjan sjálf við
kenningar sínar?“
En rétt virðist oss að minna á það í þessu sambandi, að þó
að mörgum þyki enska biskupakirkjan hafa verið sein á sér í
þessu máli, og þó að mikið sé þar um vanþekking á því og
hleypidóma gegn því, þá hefir aldrei af kirkjustjórnarinnar
hálfu verið gerð nokkur tilraun til þess að amast við neinum
prestum, sem hafa boðað spíritismann kappsamlega á pré-
dikunarstólunum, í fyrirlestrum og í prentuðum ritum.
Auk nefndar þeirrar, sem getið er um hér að framan, að
erkibiskupinn í Kantaraborg ætli að skipa, er nú talað um
aðra enska kirkjumannanefnd, sem rannsaka eigi spíritism-
ann. Lúndúna-blaðið „Star“ segir frá því, að miklar líkur séu
48