Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 9
MORGUNN
.MORGUNN"
líkamlega þroska, sem þeim er áskapaður í þessu lífi. Miklar
blóðsúthellingar og aðrar hörmungar hefir það kostað, hvað
örðugt mönnunum hefir veitt að láta sér skiljast þetta. Eng-
inn veit, hvað eftir kann að vera af þeirri sáru reynslu
mannanna. En víst er um það, að aldrei hefir þessi hugsjón
verið jafnbjört og nú.
Nokkuð líkt er um þá hugsjón, sem í mínum augum er
mikilvægust og Morgni er einkum ætlað að halda á lofti —
sambandið við annan, æðri heim. Sú hugsjón er mikilvægust
allra hugsjóna í mínum augum fyrir þá sök, að þegar hún
verður orðin veruleg eign almennings þjóðanna, þá hlýtur
hún að ýta öllum öðrum fögrum og nytsömum hugsjónum
mannkynsins lengra áfram en nokkur fær nú gert sér í
hugarlund. Þegar mönnunum verður það ljóst af reynslu-
þekking, að þetta líf er framar öllu undirbúningur undir
annað líf, þá eru fengin skilyrðin fyrir verulega traustum
framförum. Pá verður hvötin rík til þess að sýna öðrum
mönnum góðgirni og leggja stund á réttlæti. Fyrir þessari
hugsjón hefir mannkynið órað, að því er virðist síðan er vér
höfum nokkrar sögur af því, og allir trúarbragðahöfundar
hafa boðað hana. En venjulegast hefir glampinn af henni
verið meira en daufur í margskonar villumyrkri. Nú er dag-
urinn runninn.
Þrátt fyrir allt og allt eru þetta óumræðilega merkilegir og
góðir tímar. Fleiri mannssálir en nokkru sinni áður sjá nú
glöggt margar af dýrmætustu hugsjónum mannsandans. Og
ekki síst þá hugsjónina, sem ég tel mikilvægasta. Óhætt er að
fullyrða, að þeir eru nú margfalt fleiri en fyrir örfáum árum,
sem hafa komið auga á hana og lært að treysta henni og unna
henni, af því að þeir hafa fengið að vita, að hún er sannreynd
— enda má segja, að hlið annars heims hafi opnast með
dásamlegum hætti fyrir mönnunum á tveim síðustu manns-
öldrunum. Bönd hinna og annara villukenninga eru að
hrökkva sundur. Mennirnir eru milljónum saman að verða
frjálsir í anda — ekkert síður hér á landi en í öðrum löndum.
Hugsjónir eru að rætast. Fyrir því hygg ég, að tíminn sé
kominn til þess að bjóða mönnum þetta tímarit.
7