Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 33
MORGUNN
FYRSTI MIÐILL RAYMONDS
þess fýsandi, og systurnar komu heim til hennar til borðtil-
rauna. Tuttugu og sex tilraunir gerðu þær, án þess að nokkuð
gerðist. Pá var önnur systirin orðin þreytt á þessu, sem ekki
var heldur nein furða, og sagði: „Við fáum aldrei neitt“.
Jafnskjótt sem hún hafði sleppt orðinu, fór borðið að
hreyfast. Þær fengu skeyti frá ýmsum vinum sínum, þar á
meðal frá mæðrum sínum. Og þar á eftir kom nafn, sem þær
skildu ekkert í, langt nafn með upphafsstafnum F, og 10
stafir í því. Pær gátu ekki kveðið að því, svo að þær sögðu við
gestinn: „Hver sem þú ert, þá ættum við að geta valið úr
þessu fáeina stafi og nefnt þig því nafni“. Borðið stafaði
„já“, og þær völdu úr stafi F-E-D-A. Þann veg er til orðið
nafn á verunni, sem stjórnar frú Leonard í sambandsástandi,
og nú er heimsfræg orðin.
Feda sagðist hafa verið Hindúa-stúlka og gifst 13 ára
gömul manni, sem hafði heitið Hamilton; og hún sagðist líka
hafa verið langömmumóðir frú Leonard. Frúin kannaðist þá
við hana, því að móðir hennar hafði sagt henni frá þessari
langömmu sinni. Feda sagði henni, að hún ætlaði sér að
koma henni í sambandsástand og tala gegnum hana. Frúin
sagði henni, að það vildi hún ekki. Hún vildi verða skyggn, fá
sýnir í venjulegu ástandi. Feda svaraði, að í sambandsástand
yrði hún að fara, því að heila hennar væri svo kynlega háttað,
að ef hún gerði það ekki, mundi hún sjálf rugla allt, sem reynt
yrði að koma gegnum hana. Og frúin yrði að gera sérstakar
tilraunir til þess að lofa henni að koma þessu fram. Hún fór
þá að gera þetta fyrir Fedu. En 18 mánuðir liðu frá því er þær
tilraunir byrjuðu, þangað til Feda náði stjórninni. Pað tókst
ekki fyrr en frúin var hætt að reyna að hjálpa neitt til og var
orðin þreytt á þessu þófi. Feda sagði henni síðar, að örðug-
leikinn hefði einmitt verið í því fólginn, hvað frúin hefði fest
hugann mikið við það að hleypa henni að.
Nú kynnu einhverjir að ætla, að helstu örðugleikunum
hafi verið lokið, þegar Feda hafði náð stjórninni og var farin
að tala af vörum frúarinnar. En það var nú eitthvað annað.
Fyrst gat Feda ekki talað nema mjög lágt, og hún virtist ekki
skilja, hvaða erindi hún ætti þangað, en stagaðist á því, að
31