Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 47
Einar H. Kvaran:
ÝMISLEGT
UTAN ÚR HEIMI
Conan Doyle. - Systir kirkjuhöfðingjans. - Rannsóknarnefnd
erkihiskupsins. - Allsherjarnefnd. - Haraldur Níelsson.
Sir A. Conan Doyle læknir, skáldsagnahöfundurinn
heimsfrægi, er mestur postuli spíritismanns í heiminum um
þessar mundir. Það hefir verið eftir honum haft, að hann telji
sig hafa öðlast lýðhylli sína til þess að honum skyldi gefast því
betra færi á að koma því málefni til eyrna almennings, sem
hann telur mikilvægast í heimi. Og víst er um það, að hann
notar það færi. Hann fer borg úr borg til þess að flytja erindi
um sambandið við annan heim og þann mikilvæga sannleika,
sem hann telur það samband hafa leitt í ljós. Ávallt eru
honum útvegaðir stærstu salirnir, sem til eru í borgunum, en
venjulega verða margir frá að hverfa, sumstaðar mannfjöldi,
sem skiptir þúsundum, án þess að geta komist inn.
Eina af þessum samkomum sínum hélt hann í borginni
Leicester á sama tíma, sem enska biskupakirkjan var að
heyja þar þing. Þá sagði hann eftirfarandi sögu:
Tveir vinir hans, prestur að nafni Crewe og lögmaður, sem
heitir Phillips, báðir frá New-York og félagar í amerísku
deildinni af K. F. U. M., voru á gangi um Oxfordstræti í
Lundúnum, og sáu þar ungan Englending, mjög drukkinn.
Presturinn er skyggn, og sá svip konu ganga við hliðina á
þessum unga manni og horfa á hann meðaumkunaraugum.
Prestur réð þegar af að forvitnast um, hvort hann gæti enga
hjálp veitt, gekk til hins unga manns og bað hann að koma
með sér og félaga sínum og tala við þá. Þeir komu honum
45