Morgunn - 01.06.1989, Page 7
MORGUNN
RITSTJÓRARABB
staðar hér á landi er að finna meira efni saman komið á
einum stað, þar sem fjallað er um spíritisma og dulræn
málefni yfirleitt. í Morgni er að finna einhverjar bestu heim-
ildir fyrir því hvernig þessi mál hafa þróast á íslandi og
jafnframt hvað oft á tíðum við var að fást hjá frumkvöðlun-
um þegar þeir voru að byrja að kynna spíritismann fyrir
samlöndum sínum.
Eins og fram kemur í inngangsorðum Einars H. Kvaran,
fyrsta ritstjóra Morguns og jafnframt fyrsta forseta Sálar-
rannsóknafélagsins, þá höfðu þeir sem að ritinu stóðu í upp-
hafi ráðgert um nokkuð langan tíma að hefja útgáfu slíks rits
áður er varðaði „sambandið við annan, æðri heim,“ eins og
segir í fyrrgreindum formála og á þeirri línu hefur ritið haldið
sig í gegnum áratugina.
Þó nokkrir eiga öll rit Morguns frá upphafi og einn núver-
andi stjórnarmanna félagsins hefur stundum haft á orði að
hann sé orðinn vel á annan meter í innbundnu formi og á
hann þar að sjálfsögðu við það hillupláss sem Morgun tekur.
Það segir sig því sjálft að þar er um allmikinn fróðleik
varðandi dulræn málefni að ræða og sem við munum nú
glugga í okkur til gagns og ánægju vonandi, í þessu og næsta
hefti auk einstakra kafla í þeim næstu þar á eftir.
Með góðri kveðju,
Guðjón Baldvinsson.
5