Morgunn - 01.06.1989, Síða 22
DRAUMAR
MORGUNN
III. Droparnir.
Seint um sumarið 1904 fór tengdasystir mín, frú Hólm-
fríður á Sauðanesi, til Kaupmannahafnar að leita sér lækn-
inga; enhún andaðistþar 8. septemberum haustið. Þávarég
á Sauðanesi. Dreymir mig þá sömu nótt, að ég heyri ein-
hverja vera að tala ofurlágt inni í svefnherberginu, þar sem
við hjónin sváfum. Heyri ég að einhver segir: ,,Ætli hún sofi
ekki? — ég ætlaði að fá dropana hjá henni“. Pá er svarað af
öðrum; „Ég held hún sé vakandi“. Ég þykist þá líta upp og
sjá Jóhann sáluga bróður minn standa hjá kommóðunni
minni, — og kvenmann í náttkjól þar hjá; hún snýr bakinu að
mér, en hann horfir á mig; ég ætlaði að segja við hann: æ, ert
þú þá kominn? en finn að ég get ekkert talað fyrir magnleysi.
Hann brosir til mín. Pá heyri ég, að kvenmaðurinn í nátt-
kjólnum segir aftur: ,,Ég ætlaði að fá Valerianadropana hjá
henni, þeir eru hérna í efstu skúffunni“ (kommóðunnar). En
nú finn ég, að ég get talað, og segi: „Nei þar geymi ég þá
aldrei, ég hefi þá ævinlega í hornskápnum; annars hefi ég
ekki brúkað þá eða séð nú lengi“. Við þessi orð mín snýr
konan sér við og gengur að rúminu mínu. Pekki ég þá strax,
að þetta er tengdasystir mín, og þykist af útliti hennar fullviss
um að hún sé dáin. — Vaknaði ég þá.
Morguninn eftir leituðum við hjónin að glasinu með Val-
erianadropunum; það var ekki í hornskápnum, en innst í
efstu kommóðuskúffunni, var það, látið þangað af einhverj-
um öðrum en mér sjálfri. Og tengdasystir mín hafði aldrei
vitað þá annars staðar geymda en í hornskápnum.
IV. Svarta flaggið.
Árinu áður, eða sumarið 1903, dreymdi mig, að ég þóttist
standa hjá kirkjunni áSauðanesi, þaðan sem sést út yfir allan
Þistilfjarðarflóann. Sé ég þá gufuskip koma austan fyrir
20