Morgunn


Morgunn - 01.06.1989, Page 32

Morgunn - 01.06.1989, Page 32
FYRSTI MIÐILL RAYMONDS MORGUNN berginu voru, heföu fest hugann við. Henni tókst það nokkr- um sinnum, og einhverjum varð að orði, að hún mundi geta orðið góður miðill. Tilraunin virtist ganga nærri henni, og þegar hún kom heim, var hún eitthvað veikluleg. Móðir hennar spurði hana, hvað hún hefði verið að gera. Og nú var henni bannað að nýju að fást nokkuð við slík efni. Móðir hennar leitaði stuðnings hjá sóknarprestinum sínum, bað hann að tala við stúlkuna um það, hvað þetta væri syndsam- legt. En sú málaleitun hafði ekki þann árangur, sem móðir hennar hafði búist við. „ Ég get ekki gert það“, sagði prest- urinn. ,,Ég held, að í þessu sé meiri sannleikur fólginn en svo, að ég eigi að gera það“. Pá var þeim stælum lokið um stund. Um þetta leyti fór hún til dvalar til bæjar eins, sem var 20 til 30 mílur þaðan sem hún hafði verið. Skömmu eftir mið- nætti 19.des. 1906 vaknaði hún, og sá þá móður sína greini- lega. Daginn eftir fékk hún símskeyti um það, að móðir hennar hefði andast um nóttina. Hún hafði verið meðvit- undarlaus frá 9.30 og hafði dáið fyrir 2.30. Gladys sá hana með opnum augum. Eitthvað — hún veit ekki hvað — hafði vakið hana, og hún sá hana með hendurnar lagðar yfir brjóstið, og eins og hún héngi uppi yfir rúminu og horfði niður til dóttur sinnar. Hún var unglegri en hún hafði verið, þegar dóttir hennar sá hana síðast, svo að munað hefði getað 10 árum. Hún leit mjög vingjarnlega til dóttur sinnar. Petta fékk mjög á Gladys, og hún ásetti sér að leita sambands við arinan heim, hvenær sem hún gæti fengið með sér hentuga samverkamenn. Árið 1910 fór hún að sinna rannsóknunum af alvöru. Hún hitti, af tilviljun, að því er virtist, tvær systur, og önnur þeirra spurði hana, alveg inngangslaust, hvort hún væri spíritisti, sagðist halda að hún væri það. Henni fannst þetta nokkuð kynlegt, en sagðist vera það, og spurði hina, hvort hún væri það líka. Hún fékk það svar, að þær systurnar tryðu á spírit- ismann, en að þær hefðu enga reynslu í þeim efnum, og að nú hefði þeim komið til hugar að spyrja hana, hvort hún vildi gera tilraunir með þeim. Frú Leonard hafði þá verið tvö ár í hjónabandi og hún bar þetta undir manninn sinn. Hann var 30

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.