Morgunn - 01.06.1989, Qupperneq 34
FYRSTI MIÐILL RAYMONDS
MORGUNN
aðrir leiðsagnarandar ætluðu að hjálpa. Feda virtist ekkert
skilja í þeim tilraunum, sem til var stofnað. Til dæmis að taka
var það á einum fundi, að einn fundarmanna hafði áhyggjur
út af fjarstaddri vinkonu sinni, sem eitthvað gekk að. Feda
var beðin að fara til þessarar vinkonu og gera viðvart um,
hvernig henni liði. Feda lofaði að fara, og daginn eftir var
fundur. Fedu var þá mikið niðri fyrir og sagði: „Ég fór
þangað!“ En hún minntist ekkert á það erindi, sem hún hafði
verið beðin fyrir, fór að segja frá konu, sem hún hefði séð og
áður hefði verið svarthærð, en nú væri hárið á henni gullslitt.
Þetta fannst henni kraftaverk. Sjúku konunni, sem hún átti
að vitja um, hafði hún steingleymt. Nú varð að venja hana
við að sinna því, sem tilraunirnar áttu að stefna að. En Feda
reyndist alls ekki auðsveipinn nemandi, heldur mjög
þrálynd, og enn þurfti 18 mánuði til þess að koma inn í hana
hugmyndum um það, sem hún ætti að gera. Mikil áhersla
virðist hafa verið á það lögð að fá hana til þess að finna menn
í fjarlægð, og henni fór að takast það snilldarlega. En þegar
Feda fór loksins að verða fær um það verk, sem hún hafði
tekið að sér, sagði hún frú Leonard, að hún yrði að gera þetta
starf að atvinnu sinni. Ekkert gagn væri að því að frúin léti
við það sitja að sinna miðilsstarfi fyrir fáeina vini sína, því að
von væri á mikilfenglegum atburðum á jarðarsviðinu, og þá
þyrfti á frú Leonard að halda. Það var eitthvað ári áður en
ófriðurinn mikli hófst, og við hann var átt, sagði Feda síðar.
En frú Leonard skildi þá ekkert í þessu. Hún byrjaði á
miðilsstarfi sem atvinnu fjórum mánuðum áður en ófriður-
inn hófst. Hún gerði það nauðug, hafði ekki trú á því, að
þetta gæti orðið að gagni, þegar hún ætti að inna verkið af
hendi, hvenær sem um það væri beðið af öðrum. En Feda
hafði sitt mál fram, og lofaði sinni aðstoð.
Hún byrjaði með því að vera miðill í „hringum“ í vestur-
hluta Lundúnaborgar, og svo virðist sem allir hafi getað
komist þar að, að svo miklu leyti sem rúm leyfði. Þetta gekk
vel að því leyti, að aðstreymið var mikið, og hún fékk kostn-
að sinn borgaðan. En þá skall ófriðurinn á, og eftir fáeina
32