Morgunn - 01.06.1989, Page 40
FYRSTI MIÐILL RAYMONDS
MORGUNN
sem þau hjónin höfðu á neðra lofti. Hún hafði vaknað á sama
tíma sem hún var vön, þegar hún lagði sig út af á daginn. Hún
fór þegar að segja manninum sínum, hvað fyrir sig hefði
borið.
Fyrst sagði hún honum frá manninum við dyrnar. Maður-
inn hennar kannaðist við hann ,,en þú getur hafa verið milli
svefns og vöku og heyrt til mín, þó að ég talaði lágt“, sagði
hann. f*au reyna, hjónin, að varðveita hvort annað gegn allri
trúgirni og staðlausum hugarburði. Og að sjálfsögðu er
ævinlega mikilsvert að vera á verði gegn slíku, en ekki síst
þegar og þar sem mikið er að gerast af furðulegum atburð-
um. Frú Leonard sagðist líka hafa hugsað um það, en hún
hefði gert meira en heyra, því að hún hefði séð einkennis-
búning gasmannsins.
Fví næst sagði hún honum frá stúlkunni af efra loftinu og
að hann hefði rétt henni pening. Þá varð hann að kannast
við, að hún hefði séð hann, þó að hann hefði áreiðanlega
ekki séð hana. Hann sagði, að þetta hefði verið gasmaðurinn
og meðan þeir hefðu verið að tala saman, hefði hann fengið
stúlkunni sex pence fyrir einhvern smágreiða, sem hún hefði
gert honum fyrir tveimur eða þremur dögum. Hann hafði þá
ekki haft neina smápeninga á sér, og hann hafði ekki minnst
á þetta við konu sína — hafði gley mt því, þar til er stúlkan fór
fram hjá honum þarna í dyrunum.
Þá sagði hún honum frá ókunna manninum, að hún hefði
séð hann hjá hjónunum og heyrt þau bjóða honum á
fundinn, sem átti að verða þá um daginn. Maðurinn hennar
sagði, að þarna hlyti henni að hafa skjátlast, því að hún vissi
það vel, að þau mundu aldrei hleypa neinum manni inn á sína
fundi, enda hefðu þau aldrei gert það. Hún kvaðst búast við,
að sér hefði skjátlast, en hún hefði samt séð hann svo ein-
staklega greinilega.. Hún lýsti þessum ókunna manni ná-
kvæmlega, og sagði honum líka af Philip ogþessari Geiþrúði,
sem hún vissi engin deili á.
Nú var dyrabjöllunni hringt, húsbóndinn fór fram til þess
að taka á móti gestunum og vísaði þeim inn. Hann kom til
konu sinnar í geðshræringu, sagði henni, að hjónin væru
38