Morgunn


Morgunn - 01.06.1989, Page 45

Morgunn - 01.06.1989, Page 45
MORGUNN SPÍRITISMINN nokkru sinni frætt um samband lifandi manna og framlið- inna. ,,Margar syrgjandi sálir hafa orðið sér þess meðvitandi, meðan á ófriðinum mikla stóð, að framliðnir menn, sem þær höfðu unnað, stóðu nær þeim en þeir höfðu áður gert. „Feður, mæður og ekkjur, sumar þeirra ungar brúðir, hafa þráð, í sínum hræðilega einstæðingsskap, að fá að vita, hvort ekkert væri, sem þau gætu gert fyrir þá, sem þau hafa unnað og misst. Sú eðlishvöt að biðja fyrir hinum látnu hefur orðið óviðráðanleg. Öll trúarbrögð eru háð mannlegu eðli; og ef þau misbjóða svo mjög mannlegu eðli, að þau banni fyrir- bænir fyrir framliðnum mönnum, þá er ég hræddur um, að karlar og konur muni hverfa frá þeim, eða að minnsta kosti snúi bakinu við hverri þeirri kirkju, er bannar jafn eðlilegan sið, eins og fyrirbænir fyrir framliðnum mönnum, og leiti til þeirra kirkna, sem hvetja menn til slíks. „Sannlega má líta svo á, sem slíkar bænir séu einmitt fólgnar í eðli þess, sem nefnt er samfélag heilagra. En opin- beranir frá ósýnilegum heimi, eins og þær, sem mér hefur sjaldan verið skýrt frá, stefna að því að sýna, að framliðnir menn þrái ákaft fyrirbænir jarðneskra manna; og þær opin- beranir veita ósegjanlega huggun viðkvæmum sálum, sem skyndilega hafa misst ljós vona sinna eða fagnaðar. „Hugsanlegt er, að spíritisminn leiði ekki eingöngu í ljós gildi fyrirbænanna fyrir framliðnum mönnum, heldur og að einhverju leyti, hvers eðlis það líf er, sem framliðnir menn lifa, í ósýnilegum eilífðarheimi. Ef unnt er að fá slíka opin- berun, mundi hún veita óumræðilegri birtu inn í sálir sumra manna og vekja þar nýjan, andlegan þrótt. „Sannleikurinn er sá, að kreddufesta ætti aldrei að vera til í hugum trúaðra manna. Allra síst er hún fýsileg, þegar hún lokar úti færið, sem menn kunna að eiga á því að fá ljósi varpað yfir hin helgustu áhugamál mannkynsins. „Vorir tímar eru — eða voru á undan ófriðinum — kyn- lega og raunalega mikil efnishyggjuöld. A slíkri öld kann það að vera vilji guðs að efla að nýju með einhverjum nýjum ráðum hina þverrandi meðvitund um andlegan veruleik. Að 43

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.