Sjómaðurinn - 01.12.1939, Blaðsíða 33
SJÓMAÐURINN
27
Orustuskipið „Nelson", eitl stœrsta herskip breska flotans.
„reyklaust púður“, sökum þess, live litill reyk-
ur myndast, er það springur. Auk þessa hefur
reyklausa púðrið ýmislegt annað til síns ágæt-
is fram yfir hitt, svo að nú er það nær eingöngu
notað um horð í herskipum, nema í einu tilfelli,
og það er þegar skotið er í heiðurs skyni fyrir
einhverjum (,,saluterað“). Þá er alltaf notað
svart púður, sökum þess, að þá þykir reykjar-
mökkurinn „fínn“.
Á síðuslu öld komu fram ýmsar nýjar tcg-
undir sprengiefna. Þessi nýju efni hafa öll það
eitt sameiginlegt, að þau eru mikið sterkari en
púðrið, — sum þeirra springa allt að 20 sinnum
hraðar en það, og eru þess vegna nær eingöngu
notuð i sprengikúlur, tundurskeyti og tundur-
dufl. Sökum þess, ltvað þau springa hratt, þola
fallhyssur þau ekki. Eitt það sterkasta, sem nú
þekkist, er liið svokallaða „Bonit“, sem var
fundið upp fyrir nokkrum árum af Bofors-verk-
smiðjunni í Svíþjóð.
Eiturgas.
I þessu sambandi má minnast á eitt efni til,
sem hægt er að nota i sprengikúlur, þótt það
í raun og veru sé ekki sprengiefni, — og það
er eiturgas. Eins og við vitum, þá var eiturgas
fyrst notað sem vopn í heimsstyrjöldinni, og
síðan hefur óttinn við verkanir þess legið eins
og mara á öllum þjóðum. Þó að menn viti, að
eiturgas, í því formi, sem það er notað nú, verði
varl notað með miklum árangri í lijóhernaði,
þá hefir mönnum staðið svo mikill stuggur af
þvi, að hvert einasta stórt herskip er þannig út-
búið, að því má loka algerlega loftþéttu, um
leið og lagt er til orustu. Til þess að endurnýja
andrúmsloftið er svo dælt inn nýju, hreinsuðu
lofti með rafmagnssnældum.
Tundurduflin og tundurskeytin.
Auk fallhyssa og annarra minni skotvopna
eru tvö önnur tæki, sem mikið eru notuð i sjó-
her.naði vorra daga, og það eru tundurskeytin
og tundurduflin, sem flestir kannast við af af-
spurn.
Tundurduflin komu fyrst við sögu í amerisku
borgarastyrjðldinni, er það heppnaðist að
sprengja orustuski])ið „Albemerle“ í loft upp
með slíku skeyti. Fyrstu tundurskeytin voru þó
mjög ófullkomin og gátu aðeins farið örstutt-
an spöl sjálf, en síðan hafa þau tekið miklum
framförum. Þau tundurskeyti, sem ófriðarþjóð-
irnar nota mesl nú, eru 53 cm. í þvermúl og