Árroði - 01.04.1935, Qupperneq 18

Árroði - 01.04.1935, Qupperneq 18
18 Á R R 0 Ð I verk Guðs verk. Pað hefir Jesús sannað, þegar hann sýndi sig sem {>á persónu, er öll feðrunum gefin fyrirheit áttu fulikomlega heima hjá: Pegar hann í vina og óvina augsýn gjörði guðdómleg krafta- verk: Þegar hann, eftir krossins dauða, uppreis endurlifnaður úr sinni gröf: Pegar bann meú sínum 12, í heimsins augum svo veiku, en með krafti af hæðum útbúnu vottum, útbreiddi sinn náðarlær- dóm um heiminn, f>rátt fyrir aila mótstöðu myrkranna rikis. Og þetta sannar bann enn í dag, þareð hans kirkja, ásókt af svo mörgum og mektugum óvin- um hennar, hefir staðið stöðug um margar aldir, og stendur enn nú, eftir hans fyrirheiti hjá Matth. 16, 18, án þess að belvítis makt fái henni raskað. Já, viljir þú, kristinn maður, fá hina sterkustu röksemd fyrir Jesú lærdóms guðdómlega upp- runa, þá röksemd, sem engin efasemi getur hrundið, þá fylgdu Jesú eftir á þeim vegi, sem hann hefir vísað þér á. Og þegar þú sjálfur reynir hversu Jesú Evangelíum megn- ar að forlíka þig við Guð, betra þitt hjarta, hugga þig í hörinum þínum og staðfesta von eilífa lífsins í þinni sálu, þá muntu' viðurkenna með postulanum Páli (Rótn. 1, 16), að það er kraftur Guðs til sálubjálpar sérhverjumi sem trúir. Pá muntu finna sann- leika þess, sem Jesús vottar hjá Jóh. 7, 17: Ef nokkur vill gjöra vilja þess, som mig sendi, bann kemst að raun um hvort lærdómurinn er af Guði, eða ég tala af sjálfum. mér. Án þess að véð höfum í hjarta voru þennan pant upp á Jesú lærdóms guðdómlega uppruna, notast oss ekki aðrar röksemdir þess, hversu sterkar og órækar sem þær eru í sjálfu sér, vér látum oss þá feykja af sérhverj- um lærdóms vindi. En hafir þú, kristinn maður, sjálfur reynt Jesú Evangelí kraft i sálu þinni, þá stendur þin trú stöðug í öllum áhlaupum. Þá mun enginn spottari fá svift þig þeirri hjartans sannfæringu, að Jesús er oss af Guði gefinn tii vísdóms, réttlætis, helgunar og endurlausnar. Bygg því trú þina á Jesú Kristi. Og þegar þú veist að hans orð er Guðs orð, þá veizt þú líka að Spámennirnir, sem spáðu um hann, og Postularnir, sem vitnuðu um hann, kunngjöra oss Drottins orð. Því Kristur er höfuð-innihald allrar Bibliunnar,

x

Árroði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árroði
https://timarit.is/publication/757

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.