Árroði - 01.04.1935, Side 20

Árroði - 01.04.1935, Side 20
to Á R R OÐ I var í Kristóc. Sá drambsami segir: Petta skil ég ekki, pað er því ekki satt. Sá auðmýktar- fulli þenkir þar á mót þannig: Ég megna ekki svo mikið sem að þekkja sjálfan mig, mína etgin sálu, — bvernig skyldi ég þá vænta að geta útgrundað hinn óútgrundanlega? Yér finnum í Biblíunni frá- sögur um furðuverk. Sá hofmóð- móðugi þenkir þannig: Slíkt hefi ég aldrei séð, það getur því ejSki satt verið. En sá auðmýkt- arfulli, sein finnur þörf sína fyrirguðdómlega opinberun,íhug- ar einnig, að ef trú vor á slíka opinberun skyldi verða staðföst, þá hlaut Guð að opinbera sig oss með óvenjulegum atburðum. Hver fær þá ekki hæglega Séð, að auðmýktin er hinn fyrsti eiginlegleiki hjá réttkristnum Biblíulesara ? Pó finnum vér enn betur, hversu þessi eiginleiki er nauð- íynlegur, þegar vér aðgætum í hvaða tilgangi Guð heíir gefið ass þá heilögu Ritningu. Til hvers er oss gefin Biblían? Hún á að vera oss minnismerki Um Guðs heilögu nærveru meðal sinna bama, og hversu föður- lega hann hefir lernpað sig eftir breyskleika þeirra. Vér sjáum Guð einnig í nátt- tirunni. Vér heyrum þar einnig bans rau3tu. En manneskjan er breysk og holdlega sinnuðskepna. Henni er svo hætt við að gleyma þeim ósýnilega Guði. — Petta kennir oss gjörvöll mannkyns- sagan. Guð opinberaði sig fyrir þeim fyrstu mönnum, sem þeirra skap- ara og viðhaldara, sem þeirra löggjafara og dómara. En hversu fljótt varð ekki ljósið undirþrykt af myrkrinu! Peir gleymdu þeim sanna Guði. Peir niðursöktu sér í viðbjóðslega afguðadýrkun og tilbáðu skepnurnar í staðinn fyrir Skaparann. Guð miskunnaði sig því yfir sín villuráfandi börn. Og þegar spillingin fékk yfirhönd, fráskildi hann sér eitt fólk á jörðunni, nefnilega Israelsfólk, til að við- halda hjá því sannleikans ljósi með sinni undursamlegu forsjón, þar til sú tímans uppfylling kom, að þetta ljós forklárað gæti út- breiðst um allan heim. Guð opinberaði sig þess vegna frumfeðrum þessa fólks. Hann opinberaðist þeirra ríkisskiptara Móse, og þar eftir spámönnun- unum. En eins og einn forsjáll faðir, sem í undirvísun barna sinna smámsaman leiðir þau til fullkomnari þekkingar, gaf hann þeim ekki alt í einu það skæra Ijós, heldur setti hann það sem lampa á myrkum stað, og þeg-

x

Árroði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árroði
https://timarit.is/publication/757

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.