Morgunblaðið - 27.01.2009, Page 1
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
og Pétur Blöndal
MINNIHLUTASTJÓRN Samfylk-
ingar og Vinstri grænna (VG) verð-
ur að öllum líkindum mynduð í dag.
„Það stefnir allt í vinstri stjórn,“
sagði viðmælandi Morgunblaðsins í
Samfylkingunni. Viðræður milli
flokkanna hófust í gærkvöldi en
heimildir Morgunblaðsins herma
að fulltrúar þeirra hafi rætt óform-
lega saman síðustu daga um mögu-
legt samstarf ef fyrra ríkisstjórn-
arsamstarf héldi ekki.
Vilja að Jóhanna leiði stjórn
Þegar ljóst var að ríkisstjórnin
væri sprungin stóð vilji VG fyrst til
þjóðstjórnar. Fljótlega varð þó
ljóst að slík stjórn var ekki líkleg
þar sem Samfylkingin vildi að Jó-
hanna Sigurðardóttir leiddi hana,
en Geir H. Haarde taldi að það ætti
að vera fulltrúi stærsta stjórnmála-
flokksins. Stjórn VG fundaði síðan
í gærkvöldi um stjórnarmyndun og
í kjölfarið var boðaður flokksráðs-
fundur klukkan 20.30 í kvöld, en
hann er æðsta vald flokksins milli
landsfunda. Á þeim fundi verður
farið fram á samþykki fyrir nýrri
ríkisstjórn.
Baldur og bankastjórar víki
Helstu áherslur VG í nýrri ríkis-
stjórn eru þær að hert verði á
rannsókn bankahrunsins og að
fleiri erlendir sérfræðingar verði
fengnir til verksins. Flokkurinn vill
að hreinsun eigi sér stað innan
stjórnsýslunnar og í eftirlitsstofn-
unum. Bankastjórar Seðlabankans
verði því látnir víkja og nýtt skipu-
lag tekið upp í bankanum. Auk
þess verði Baldur Guðlaugsson,
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu, látinn hætta störfum.
VG mun einnig fara fram á
stjórnarskrárbreytingu þess efnis
að ákvæði um þjóðaratkvæða-
greiðslur verði sett þar inn. Þá vill
VG að ráðherrum verði fækkað, að
eftirlaunalögin verði afnumin að
fullu og að boðaðar skipulagsbreyt-
ingar í heilbrigðiskerfinu verði
endurskoðaðar. Flokkurinn vill
einnig að rætt verði við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn um að endur-
skoða stýrivaxtastefnu fyrra sam-
komulags með það fyrir augum að
vextir lækki hraðar en áður var
áætlað.
16.00: Geir H. Haarde 18.59: Steingrímur J. Sigfússon 20.17: Sigmundur D. Gunnlaugsson 21.24: Guðjón Arnar Kristjánsson
Upp úr stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar slitnaði eftir 615 daga
Viðræður um rauðgræna stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna líklega í dag
Munu leggja áherslu á bráðaaðgerðir, breyttan Seðlabanka og hreinsun í stjórnsýslunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á leið í stjórn? Forystusveit Vinstri grænna fundaði í húsnæði þingflokks VG í Vonarstræti í gærkvöldi. »2
Allt stefnir í vinstristjórn
17.58: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir telur
ekki útilokað að í dag takist að
mynda stjórn undir forystu Jóhönnu
Sigurðardóttur með stuðningi VG,
Framsóknar og Frjálslyndra. »4
Samfylkingin stefnir á
nýja ríkisstjórn í dag
Sjónarmið forsetans um að misskiln-
ingur sé að forsætisráðherra hafi
þingrofsréttinn einn og sér gengur
þvert á það sem ætla má að stjórn-
arskráin feli í sér, segir Björg Thor-
arensen, prófessor í stjórnskip-
unarrétti. »6
Sjónarmið forsetans
þvert á stjórnarskrána
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. J A N Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
25. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Leikhúsin
í landinu >> 37
PÁLÍNA ÓSK GRÆNLANDSFARI
ÚTIVIST DREGUR
ÚR KREPPUKVÍÐA
ÍÞRÓTTIR
Allt í rugli hjá
Reggina á Ítalíu
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
SAMFYLKINGIN vill kjósa um hvort sækja eigi um Evr-
ópusambandsaðild samhliða þingkosningum hinn 30. maí,
að stjórnarskránni verði breytt til að greiða fyrir ESB-
aðild og að tillaga um stjórnlagaþing verði lögð fram.
Þetta kemur fram í tíu liða aðgerðaáætlun flokksins sem
Morgunblaðið hefur undir höndum. Samfylkingin vill
skipta út yfirstjórn Seðlabankans, að lögum um bankann
verði breytt með þeim hætti að yfir honum verði einn
bankastjóri sem skipaður verði út frá alþjóðlegum hæfnis-
kröfum og að komið verði á fót peningastefnuráði. Þá
verði skipuð sérstök nefnd um endurskoðun peninga-
málastefnu bankans. Í áætluninni er einnig gert ráð fyrir
því að gripið verði til bráðaaðgerða til að koma heimilum
og fyrirtækjum til hjálpar og að komið verði á fót upplýs-
ingamiðstöð um aðgerðir til að mæta afleiðingum banka-
hrunsins. Þó er lögð áhersla á að efnahagsáætlun Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins verði fylgt áfram. | 2
Vilja kjósa um ESB 30. maí
Samfylking vill þing- og Evrópusambandskosningar 30.
maí Vilja skipta út í Seðlabanka en halda IMF-áætlun
Aðeins hafa verið myndaðar þrjár
minnihlutastjórnir hér á landi. Allar
áttu þær það sameiginlegt að hafa
verið bráðabirgðastjórnir sem aðeins
var ætlað að sitja í skamman tíma. »8
Minnihlutastjórnir
afar fátíðar hérlendis
Fráfarandi ríkisstjórn byrjaði með
stærri þingmeirihluta en gengur og
gerist en lenti í meiri ólgusjó en flest-
ar á öðru ári sínu. Stiklað er á stóru í
sögu ríkisstjórnarinnar. »15
Stiklað á stóru í sögu
Þingvallastjórnar
Landið var án ríkisstjórnar í tvo mán-
uði fyrir 22 árum en stjórnin sem þá
tók við sprakk í beinni sjónvarps-
útsendingu eftir rúmt ár. »14
Síðasta stjórnarkreppa
var árið 1987
Forystugreinar | 20
„Ég sá þá fyrir mér að við myndum
bæði víkja, formaður Samfylking-
arinnar og ég, og við tæki tíu manna
ríkisstjórn undir forystu Þorgerðar
Katrínar,“ segir Geir H. Haarde um
aðdraganda stjórnarslitanna. »4
Geir stakk upp á tíu
manna ríkisstjórn
Einn af öðrum mættu formenn stjórnmálaflokkanna til viðræðna við Ólaf Ragnar Grímsson forseta á Bessastöðum í gær. Umræðuefnið var hvaða möguleikar væru á myndun nýrrar ríkisstjórnar.