Morgunblaðið - 27.01.2009, Side 4
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
SÍÐDEGIS á sunnudag, á fundi
Geirs H. Haarde, formanns Sjálf-
stæðisflokksins, og Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur, formanns Sam-
fylkingarinnar, varð Geir ljóst að það
stefndi í stjórnarslit. „Þá kom fram
skilyrði um að stjórnarforystan flytt-
ist á milli flokkanna, það sem Sam-
fylkingin kallar verkstjórnarvald en
er í daglegu tali kallað forsætisráð-
herraembættið,“ segir Geir í viðtali
við Morgunblaðið.
„En það var svo ekki fyrr en í dag
[mánudag] á fundi okkar Ingibjarg-
ar Sólrúnar að nafn Jóhönnu Sigurð-
ardóttur var nefnt í því sambandi.
Þegar kom á daginn að það væri
ófrávíkjanlegt skilyrði varð ljóst að
Sjálfstæðisflokkurinn gæti ekki fall-
ist á það, um það var algjör samstaða
í þingflokknum í [gær]morgun.“
Samfylkingin bugaðist
– Er það þitt mat, að þið hefðuð
annars getað náð saman?
„Ég er sannfærður um að náðst
hefði niðurstaða um önnur atriði,
sem til viðræðu voru síðastliðna
daga, ef ekki hefði verið sett skilyrði
af þessu tagi. Við höfum hingað til
borið gæfu til þess formennirnir að
leiða mál til lykta, komið okkur sam-
an um og leyst öll deilumál.
Ég hef ekki orðið var við það fyrr
en núna að það væri sérstök óánægja
í Samfylkingunni með mína verk-
stjórn í ríkisstjórninni – það er nýtt.
En ef það var vandamálið, þá bauðst
ég til þess í gær að ég skyldi stíga til
hliðar og Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir gæti tekið við. Ég sá þá
fyrir mér að við myndum bæði víkja,
formaður Samfylkingarinnar og ég,
og við tæki tíu manna ríkisstjórn
undir forystu Þorgerðar Katrínar.
Vandinn í þessu öllu hefur verið sá
að Samfylkingin er sjálfri sér sund-
urþykk og hún er í grunninn margir
flokkar og flokksbrot, sem frá byrj-
un höfðu ólíka afstöðu til þessa rík-
isstjórnarsamstarfs. Sú sem hélt
þessu öllu saman var formaðurinn,
Ingibjörg Sólrún, en það var áber-
andi að í hvert sinn sem hún var fjar-
verandi varð mikill órói í þing-
flokknum og annars staðar í
flokknum.
Mest áberandi varð það í síðustu
viku, þegar haldinn var fundur í
flokksfélaginu í Reykjavík, þar sem
ýmsir úr þingliðinu mættu, undir
forystu varaformanns flokksins og
formanns þingflokksins, og sam-
þykkt var niðurstaða um að það bæri
að slíta stjórnarsamstarfinu – á með-
an formaður flokksins var erlendis
vegna veikinda!
Þetta er allt með ólíkindum og á
þeim tímapunkti var krafan um að
skipta um stjórnarforystu ekki kom-
in fram. Það gerðist ekki fyrr en í
gær. Þannig að Samfylkingin hefur
ekki getað staðið af sér það ástand
sem skapast hefur í samfélaginu, og
bugaðist í stað þess að standa í lapp-
irnar, og hún er, eins og ég sagði í
dag, í tætlum sem stjórnmálaflokk-
ur.“
Gott samstarf við Ingibjörgu
– Það var eftir því tekið að þú tal-
aðir fallega um formann Samfylking-
arinnar, en hún ekki eins fallega um
þig?
„Ég vil bara segja, að ég tel hana
heiðarlega manneskju, okkar sam-
starf hefur verið með ágætum og
ekkert borið á milli persónulega. Ég
ætla að halda mig við það, ekki að
segja annað en satt og rétt í því efni.
En henni hefur gengið erfiðlega með
sitt bakland; það hefur ekki sýnt
henni nauðsynlega samstöðu og ég
tel uppákomur þegar hún var fjar-
verandi, lýsandi dæmi um það.
Svona myndi Sjálfstæðisflokkurinn
aldrei haga sér.“
Ekki vegna landsfundar
– Það spurðist að stjórnarflokk-
arnir hefðu gert samkomulag um
uppstokkun á ráðherraskipan fyrir
jól?
„Það er kannski ekki rétt að tala
um samkomulag, en við ræddum það
að skipta verkum með nýjum hætti í
ríkisstjórninni, og gera frekari skip-
lagsbreytingar í stjórnkerfinu. Ég
var með ákveðnar tillögur þar að lút-
andi, meðal annars um að formaður
Samfylkingarinnar yrði fjár-
málaráðherra, og við fengjum utan-
ríkisráðuneytið á móti. Síðan yrðu
aðrar breytingar á skipan ráðu-
neyta. Ég tel að með þessu hefði for-
maður Samfylkingarinnar fengið
mikil tækifæri til að fylgja eftir
stefnu síns flokks í ríkisfjármálum
og að þetta hefði verið mjög góð leið
til að þétta samstarfið á milli flokk-
anna, en þessu var slegið á frest,
meðal annars vegna persónulegra
aðstæðna formanns Samfylking-
arinnar, sem allir höfðu að sjálfsögðu
góðan skilning á. Þannig að það er
rangt að það hafi staðið upp á okkur
að gera slíkar tillögur eða ráðast í
slíkar breytingar. Látið var að því
liggja að þetta snerist um að fresta
verkefnum fram yfir landsfund
Sjálfstæðisflokksins, sem hafði ná-
kvæmlega ekkert með þetta að
gera.“
– Það kom ýmislegt upp úr dúrn-
um við stjórnarslitin, sem ekki hafði
heyrst af áður – hefði ekki þurft að
upplýsa almenning um þetta?
„Svona stjórnarsamstarf, og sam-
starf tveggja formanna, byggist á
því að geta unnið að málum í trúnaði
og sýnt ákveðna hollustu gagnvart
sjónarmiðum hvor annars. Og í
þessu máli, varðandi breytingar fyr-
ir áramót, var um það að ræða og ég
sá ekki ástæðu til að segja op-
inberlega frá því, þó að það hefði ef-
laust getað komið mér vel á þeim
tíma. Það verður að vera trúnaður
um mál á viðkvæmu stigi.“
– Kom ekki til greina að upplýsa
það þegar mótmælin urðu háværari
síðustu viku?
„Ég vil halda þessum mótmælum
alveg fyrir utan þessa atburðarás.
En auðvitað var þetta allt mjög
óvenjulegt, formaður Samfylking-
arinnar var fjarverandi í tvær vikur
og það logaði allt í illdeilum á meðan.
Við vorum ekki í stakk búin til að
koma með miklar tilkynningar með-
an ástandið var svona – svo breytt-
ust aðstæður hjá mér og Sjálfstæð-
isflokknum fyrir síðustu helgi.“
Ekki fram í vor
– Hyggstu bjóða þig fram til Al-
þingis í vor?
„Ég hef ekki gert ráð fyrir því.
Það er rökrétt að hætta þá alveg.“
– Það hlýtur að vera ákveðinn létt-
ir að hverfa á braut úr forsætisráðu-
neytinu eftir það sem á undan er
gengið?
„Persónulega er það kannski létt-
ir, á vissan hátt, en maður er búinn
að vera svo á kafi í þessum verk-
efnum, og þekkir vandamálin orðið
svo vel, að ég hef talið það skyldu
mína að hafa forystu um að leysa
vandamálin. Og talið að það væri
ábyrgðarhluti af minni hálfu að
stökkva frá því með einhverjum
hætti. Það höfum við ekki gert. Það
er Samfylkingin sem ákveður að
setja okkur úrslitakosti í þessu sam-
starfi.“
Svona myndum við
aldrei haga okkur
Morgunblaðið/Golli
Umsetinn Geir H. Haarde svarar spurningum blaðamanna eftir að ljóst var að stjórnin væri fallin í gær.
Í HNOTSKURN
»Geir H. Haarde tók viðembætti forsætisráðherra
15. júní 2006, er Halldór Ás-
grímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, sagði af sér
ráðherraembætti.
» Hann varð forsætisráð-herra í nýrri stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar
24. maí 2007.
Geir H. Haarde telur að stjórnin hefði haldið hefði Samfylkingin ekki krafist
forystunnar Uppstokkun frestað vegna persónulegra aðstæðna Ingibjargar
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2009
Samfylkingin vill
stuðla að því að
mynduð verði rík-
isstjórn undir for-
ystu Jóhönnu
Sigurðardóttur
félagsmálaráð-
herra, með stuðn-
ingi Vinstrihreyf-
ingarinnar –
græns framboðs,
Framsóknar-
flokksins og jafnvel Frjálslynda
flokksins. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingarinnar,
sagði frá þessu þegar hún kom út af
fundi Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta Íslands, í gærkvöldi. Hún
taldi ekki útilokað að það tækist í
dag, þriðjudag.
Formaður Samfylkingarinnar
sagði að ekki væri ekki til setunnar
boðið með myndun nýrrar rík-
isstjórnar um kraftmikla aðgerða-
áætlun í þágu heimila og fyrirtækja.
Nefndi hún sérstaklega að það væri
skýrt af hálfu Samfylkingarinnar að
áætlunin sem unnin var í samvinnu
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF)
stæði. Leiða þyrfti til lykta deilur
um Icesave-reikninga Landsbank-
ans og deilur sem Íslendingar ættu í
á alþjóðavettvangi. Fara þyrfti í
breytingar á Seðlabankanum í takt
við það sem búið er að gera í Fjár-
málaeftirlitinu. Loks sagði Ingibjörg
Sólrún að skoða þyrfti stjórn-
arskrármálið og rifjaði upp hug-
myndir um að þjóðþing gæti breytt
stjórnarskrá án þess að efnt yrði til
kosninga. „Ég tel mikilvægt að fyrir
kosningar verði búið að ganga þann-
ig frá málum að þjóðin geti stigið
það skref á næsta kjörtímabili,“
sagði Ingibjörg um umsókn um aðild
að Evrópusambandinu. Síðar á fund-
inum sagðist hún gera ráð fyrir því
að allir flokkar yrðu að svara því í
komandi kosningum, hvað þeir
hygðust gera í þeim málum á næsta
kjörtímabili. helgi@mbl.is
Samfylk-
ingin vill
stjórna
með VG
Segir að efnahags-
áætlun IMF standi
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
GEIR segir að ríkisstjórnarsamstarf-
ið hafi ekki strandað á málefnaá-
greiningi. Hann er spurður út í þau
ummæli Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
tafið mál.
„Það er fyrst og fremst eitt mál,
sem Samfylkingin talar um í því sam-
bandi, því önnur atriði höfum við af-
greitt jöfnum höndum og staðið sam-
eiginlega að því. Það sem
Samfylkingin á við er Seðlabankinn
og yfirstjórn hans. Ég bendi á að það
var fyrst í gær [fyrradag], sem Sam-
fylkingin eða viðskiptaráðherra
ákvað að gera breytingar á Fjármála-
eftirlitinu, en þó ekki fyrr en frá og
með 1. mars, hvað varðar forstjórann.
Við höfum rætt við Samfylkinguna
um að við vildum gera lagabreytingar
sem lúta að Fjármálaeftirlitinu og
Seðlabankanum, og kanna til hlítar
hvort rétt sé að sameina þessar stofn-
anir á nýjan leik. Við fengum erlend-
an sérfræðing til að fara yfir skipu-
lagið á Fjármálaeftirlitinu og höfum
jafnframt leitað ráða hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum um þau mál. Ég er
viss um að hægt hefði verið að leiða
þetta mál til lykta í febrúarmánuði
fyrir 1. mars, sem er dagsetningin
sem valin var gagnvart starfslokum
forstjóra Fjármálaeftirlitsins.“
– Var sú ákvörðun tekin upp á ein-
dæmi viðskiptaráðherra?
„Það virðist vera.“
– Samfylkingin hefur einnig kvart-
að undan því að ekkert miði hvað
varðar undirbúning að stjórnarskrár-
breytingum vegna hugsanlegrar að-
ildar að Evrópusambandinu?
„Þær fara nú yfirleitt ekki fram
fyrr en í aðdraganda kosninga. Það lá
fyrir að ef þingkosningar yrðu í vor,
þá yrði að gera stjórnarskrárbreyt-
ingar, og það stóð ekkert á okkur. Ég
var með tillögu í því efni, að fá lítinn
hóp sérfræðinga sem ég hafði nafn-
greint, til að koma með texta, í stað
þess að fá fulltrúa allra flokka enn
einu sinni að því borði. Þannig að
þetta gat ekki verið ágreiningsmál, að
minnsta kosti ekki á þessu stigi, og
sama má segja um framkvæmd efna-
hagsáætlunarinnar í samstarfi okkar
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Við
berum ábyrgð á því í forsætisráðu-
neytinu og aldrei kom annað til
greina en að fylgja því eftir af okkar
hálfu.“
Hefðum gert breytingar í Seðlabanka
Stóð ekki á sjálfstæðismönnum að gera breytingar á stjórnarskrá vegna ESB
„FUNDUR í
Samfylkingar-
félaginu í Kópa-
vogi haldinn 26.
janúar lýsir yfir
fullum stuðningi
við framgöngu
Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur
formanns og
þingflokks Sam-
fylkingarinnar
undanfarna daga og hvetur þau til
allra góðra verka í þágu lands og
þjóðar,“ segir í stuðningsyfirlýsingu
sem samþykkt var á félagsfundi
Samfylkingarinnar í Kópavogi í
gærkvöldi.
„Við höfum of lengi búið við deyfð
og verkkvíða Sjálstæðisflokksins.
Verkefnin eru ærin og það þarf fum-
lausa starfssama stjórn til að hrinda
í framkvæmd fjölmörgum aðgerðum
til bjargar heimilum og fyrirtækjum
í landinu. Samfylkingunni er best
treystandi til forystu í slíkri stjórn.“
Stjórnin tekur fram að húsfyllir
hafi verið í Hamraborg 11, þar sem
félagið ræddi stöðuna í landsmál-
unum. Á fundinum voru allir þing-
menn flokksins í Suðvesturkjör-
dæmi. Umræðurnar voru líflegar og
í lok fundarins var ályktunin sam-
þykkt einróma.
Hvetja til
góðra verka
Gunnar
Svavarsson
Stjórnarslit
Meira á mbl.is