Morgunblaðið - 27.01.2009, Page 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2009
HUGSAÐU VEL UM HÚÐINA
ÞÚ FÆRÐ DECUBAL
Í NÆSTA APÓTEKI
• Húðin okkar er viðkvæm og veðráttan á
Íslandi getur verið húðinni erfið.
• Decubal viðheldur heilbrigði og ferskleika
húðarinnar – allt árið um kring.
• Kynntu þér eiginleika Decubal og kveddu
þurra húð.
BJÖRN Bjarna-
son dóms- og
kirkjumálaráð-
herra hefur skip-
að Margréti Frí-
mannsdóttur í
embætti for-
stöðumanns
Fangelsisins á
Litla-Hrauni frá
og með 1. febr-
úar nk. Margrét
hefur gegnt embætti forstöðu-
manns fangelsisins undanfarið ár í
forföllum fyrrverandi forstöðu-
manns.
Níu umsóknir bárust um emb-
ættið en umsóknarfrestur rann út
15. janúar síðastliðinn.
Margrét
forstöðumaður
Margrét
Frímannsdóttir
„ÞINGFLOKKUR Vinstri grænna
fordæmir harðlega hvers kyns of-
beldi, sama hver í hlut á. Ofbeldi
í garð lögreglunnar er aldrei og
undir engum kringumstæðum
réttlætanlegt.“ Þetta segir í yf-
irlýsingu frá þingflokki VG, en
tilefnið hennar eru ásakanir
Björns Bjarnasonar dómsmála-
ráðherra í garð tveggja þing-
manna VG á vefsíðu sinni.
„Friðsamleg mótmæli og andóf
eru mikilvægir hlekkir virkrar
þátttöku í lýðræðisríki og það er
ekki að undra að fólk rísi nú upp
gegn því órétti og ranglæti sem
hefur fengið að viðgangast í sam-
félaginu. Slík mótmæli beinast
ekki gegn góðri löggæslu heldur
gegn vanhæfum stjórnvöldum og
þeim sem ábyrgðina bera.“
Í yfirlýsingunni segir að til-
raunir Björns Bjarnasonar dóms-
málaráðherra til að slá ryki í
augu fólks með yfirlýsingum eins
og þeirri að tilteknir þingmenn
VG hafi „beinlínis veist að lög-
reglunni“ séu „veruleikafirrtar
og eigi sér enga stoð í sannleik-
anum“.
Morgunblaðið/Júlíus
Fordæmir ofbeldi
gegn lögreglu
LANDSSAMBAND eldri borgara,
LEB, gagnrýnir harðlega þá
ákvörðun stjórnenda Fjórðungs-
sjúkrahúss Akureyrar að flytja
aldrað fólk nauðugt frá dvalarstað
sínum á Seli yfir á Kristnesspítala
eins og átti sér stað nýlega.
„Hér er um að ræða aldrað og
veikburða fólk sem ekki getur bor-
ið hönd fyrir höfuð sér. Lýsa þessi
vinnubrögð ótrúlega neikvæðu við-
horfi af hálfu stjórnenda í heil-
brigðisþjónustu gagnvart öldruðu
og sjúku fólki.“
Mótmæla flutningi
Í grein um tónlistarhátíð kvenna-
kórsins Vox feminae í blaðinu í gær
var rangt farið með nafn ljósmynd-
ara. Hún heitir Sigríður Soffía
Gunnarsdóttir. Þá var kórverkið
Ave Maria sagt vera eftir Gunnar
Reyni Sveinsson, en það er eftir
Gunnar Þórðarson.
Þetta gerðist
Rangt var farið með nafn Ragnhild-
ar Guðbrandsdóttur í gær, í Þetta
gerðist. Beðist er afsökunar á mis-
tökunum.
LEIÐRÉTT
Nafn ljósmyndara
AUGLÝST verður eftir tilboðum í
nýtt hlutafé Árvakurs, útgáfufélags
Morgunblaðsins, á næstu dögum.
Fyrirtækjaráðgjöf Nýja Glitnis ann-
ast söluferlið, sem verður opið öllum
fagfjárfestum. Gert er ráð fyrir því
að bindandi tilboð berist fyrir 17.
febrúar næstkomandi.
Ferlið verður með þeim hætti að
áhugasamir fjárfestar undirrita
trúnaðaryfirlýsingu sem skila þarf
inn ekki síðar en föstudaginn 30. jan-
úar og er gert ráð fyrir að óskuld-
bindandi tilboðum verði skilað inn 4.
febrúar.
Óumdeild niðurstaða
Þeim sem leggja fram hæstu til-
boðin verður boðin áframhaldandi
þátttaka í söluferlinu og fá þá drög
að kaupsamningi sem og aðgang að
nánari upplýsingum um starfsemi og
fjárhag fyrirtækisins. Þeim ber svo
að skila inn skuldbindandi tilboðum í
síðasta lagi þriðjudaginn 17. febrúar.
„Það er mjög gott fyrir félagið og
blaðið vegna þess að með þessum
hætti verður niðurstaðan alveg óum-
deild,“ segir Einar Sigurðsson, for-
stjóri Árvakurs. „Um leið og ferlinu
lýkur verður óvissunni um framtíð
blaðsins eytt.“
Hann segir að undanfarið hafi ver-
ið unnið að því að kynna félagið
áhugasömum fjárfestum. „Þeim
kafla er nú lokið og nú verður þetta
sett í mjög vel skilgreint söluferli.“
Söluferlið verði gagnsætt og tryggt
að faglega sé að því staðið.
Nýlega var greint frá því að er-
lendir fjárfestar hefðu áhuga á að
kaupa félagið. Einar segir að ferlið
muni tryggja það að allir áhuga-
samir fjárfestar sitji við sama borð
þegar kemur að sölu þess.
Allir fá jafnan aðgang
Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, sett í formlegt sölu-
ferli og auglýst verður eftir tilboðum á allra næstu dögum
Í HNOTSKURN
»Tilkynnt var í byrjun des-ember sl. að hlutafé Ár-
vakurs yrði fært niður í núll
og félagið endurfjármagnað
með nýju hlutafé.
»Samtímis var tilkynnt aðÁrvakur og Nýi Glitnir
myndu vinna sameiginlega að
framtíðarlausn á fjármálum
félagsins.