Morgunblaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2009
ÁSTRÁÐUR Haraldsson hrl. held-
ur í dag fyrirlestur á Jafnréttis-
torgi Háskólans á Akureyri og
Jafnréttisstofu. Fyrirlesturinn, sem
hefst kl. 12.00 í stofu L 201 á Sól-
borg, ber yfirskriftina: Skiptir skó-
stærð máli þegar ráðið er í stöður
hjá ríkinu? Um skipun í opinber
embætti og stöðu jafnréttislaga.
Ástráður mun ræða um álitaefni
sem tengjast deilum um það að hve
miklu leyti stjórnvöld geti sjálf
ákveðið hvaða sjónarmið liggja til
grundvallar ákvörðunum um val á
milli umsækjenda um opinberar
stöður. Einnig verður sérstaklega
vikið að hlutverki Jafnréttislaga og
staða þeirra skoðuð.
Skiptir skóstærð
máli hjá ríkinu?
FULLTRÚAR í Norðurlandaráði
hittast í Reykjavík í dag og á morg-
un. Á þessum fyrsta fundi ársins
munu Íslendingar kynna for-
mennskuáætlun sína í Norrænu
ráðherranefndinni á þessu ári.
Atvinnumálanefndin og borgara-
og neytendanefndin fjalla um
kreppuna og verða upplýstar um
afleiðingar hennar fyrir atvinnulíf,
íbúa og neytendur á Íslandi.
Þá munu fulltrúar í velferð-
arnefndinni heimsækja Barnahús
sem er miðstöð þar sem börn sem
orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi fá
hjálp og meðferð. Barnahúsið hefur
verið fyrirmynd sambærilegs starfs
annars staðar á Norðurlöndum.
Norðurlandaráð
fundar á Íslandi
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
STJÓRN Samtaka verslunar og
þjónustu skorar á stjórnvöld að
flýta kosningum eins mikið og unnt
er enda er það ljóst að þau aðkall-
andi verkefni sem bíða í þjóðfélag-
inu þola ekki þá kyrrstöðu sem allt-
af fylgir kosningaundirbúningi.
Stjórn SVÞ hvetja einnig for-
ustumenn stjórnmálaflokkanna til
að snúa bökum saman og vinna að
brýnustu úrlausnarefnum sem geta
ekki beðið fram yfir kosningar.
Kosningar strax
NEYÐARSTJÓRN kvenna skorar á
forseta, ríkisstjórn og Alþingi að
skipa utanþingsstjórn hið fyrsta.
Ráðamenn verða að axla ábyrgð
með því að setja stjórn landsins í
hendurnar á færustu sérfræðingum
sem völ er á fram að kosningum.
Til að tryggja lýðræðislegt fyr-
irkomulag er jafnframt nauðsyn-
legt að utanþingsstjórn sé skipuð
jafnmörgum konum og körlum.
Vilja utanþingsstjórn
KAÞÓLSKI bisk-
upinn í Reykja-
vík, Pétur Bürc-
her, hefur skipað
Sigríði Ingvars-
dóttur formann
stjórnar Caritas,
hjálparsamtaka
kaþólsku kirkj-
unnar á Íslandi,
til næstu fimm
ára, en þetta er
hennar fjórða formennskutímabil.
Sigríður hefur annast styrktar-
tónleika Caritas undanfarin ár og
eru þeir orðnir þekktur viðburður í
tónlistarlífi Reykjavíkur hvert
haust.
Með Sigríði í stjórn Caritas eru
séra Patrick Breen, sóknarprestur í
Kristkirkju, Gyða Magnúsdóttir,
Jóhanna Long og Karl Smith.
Nýr formaður sam-
takanna Caritas
Sigríður
Ingvarsdóttir
STUTT
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
NÝÁRSFUNDUR trúnaðarráðs og trúnaðarmanna VR
mun í kvöld kjósa um hvern fundarmenn styðja í emb-
ætti formanns VR. Þrír hafa gefið kost á sér, þeir Gunn-
ar Páll Pálsson, núverandi formaður VR, Kristinn Örn
Jóhannesson og Lúðvík Lúðvíksson. Formannsefnið
verður valið með einstaklingsbundinni kosningu, líkt og
þrír stjórnarmenn og þrír varamenn í stjórn. Formaður
og stjórnarmenn eru kjörnir til tveggja ára.
Halldór Grönvold, formaður kjörstjórnar VR, sagði
nýársfundinn snúast um að stilla upp framboði trún-
aðarmanna og trúnaðarráðs auk þess að velja formanns-
efni fundarmanna þar eð þrír hafa boðið sig fram til
starfans. Það er fáheyrt, ef ekki einsdæmi í sögu félags-
ins, að kosið sé á milli formannsefna. „Þessir þrír munu
kynna framboð sitt og síðan mun fundurinn velja einn
þeirra sem sinn formannskandídat,“ sagði Halldór.
Einnig verður kosið um tillögu uppstillingarnefndar
að lista með fjórum stjórnarmönnum og 82 fulltrúum í
trúnaðarráð VR. Kosið er um helming stjórnarmanna á
hverju ári en 15 sitja í stjórn að formanni meðtöldum.
Alls gáfu 23 einstaklingar kost á sér til stjórnarsetu í
VR og 86 til setu í trúnaðarráði, samkvæmt upplýsingum
frá kjörstjórn VR á heimasíðu félagsins. Framboðs-
frestur til einstaklingsbundins kjörs var auglýstur til há-
degis 22. desember 2008. Kjörstjórn samþykkti að fram-
lengja framboðsfrest einstaklinga til formanns, stjórnar
og trúnaðarráðs til hádegis þann 12. janúar síðastliðinn.
Fresturinn var framlengdur vegna misskilnings sem
gætti meðal vissra frambjóðenda um framboðsreglur.
Einstaklingur, sem býður sig fram til embættis for-
manns, stjórnar eða varastjórnar og nær ekki kjöri á ný-
ársfundinum, hefur tveggja vikna frest til að óska eftir
allsherjaratkvæðagreiðslu í félaginu um framboð sitt.
Halldór sagði að gengi allt að óskum mundi kjörstjórn
væntanlega auglýsa eftir fleiri listum til stjórnar og
trúnaðarráðs á fimmtudaginn kemur. Það verður því
ekki ljóst fyrr en 12. febrúar hvort fleiri framboðslistar
berast en sá sem valinn verður í kvöld.
Óski einhver frambjóðenda í einstaklingskjöri eftir
allsherjaratkvæðagreiðslu, eða fleiri listar til trún-
aðarráðs og listakjörinna stjórnarmanna berast, verður
farið eftir reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæða-
greiðslur. Þar segir m.a. að kynna þurfi atkvæðagreiðsl-
una í a.m.k. viku áður en hún hefst. Leynileg atkvæða-
greiðsla, hvort sem haldin verður póstkosning eða
rafræn, þarf að standa í minnst tvær vikur. Halldór sagði
að niðurstaða kosninganna ætti því að liggja fyrir í
kringum 11. mars.
Kristinn Örn
Jóhannesson
Lúðvík LúðvíkssonGunnar Páll
Pálsson
Í HNOTSKURN
»Á nýársfundi VR í kvöld verður kosið umhvern trúnaðarmenn og trúnaðarráð styðja til
formennsku. Þrír hafa boðið sig fram og stefnir í
fyrstu kosningu milli formannsefna í félaginu.
» Í VR eru um 28.000 félagsmenn. Félagið varstofnað 1891 sem félag launþega og verslunar-
eigenda en varð síðar launþegafélag 1955.
HANN virðist agnarsmár, dreng-
urinn sem skaut íbúatölu Kópavogs
upp í 30 þúsund þann 10. janúar síð-
astliðinn. Gunnar I. Birgisson bæj-
arstjóri og Ómar Stefánsson for-
maður bæjarráðs færðu unga
herranum skjal þessu til staðfest-
ingar auk tannfjár upp á eina krónu
á hvern íbúa bæjarins. Það voru for-
eldrar hans, Jóhannes Kr. Krist-
insson og Brynja Gísladóttir sem
tóku við gjöfinni fyrir hans hönd og
lét sá stutti umstangið ekkert raska
ró sinni á meðan.
Fagnað Ómar Stefánsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Brynja Gísladóttir og
Gunnar I. Birgisson heiðra hinn unga Kópavogsbúa meðan sá stutti sefur.
Íbúi númer 30.000
Dagskrá
28. janúar kl. 15:00 til 17:30
Opinn fundur um tækniþróun og nýsköpun
15:00-16:00 Breyttar aðstæður, nýjar áskoranir
- Þorsteinn Ingi Sigfússon, formaður tækninefndar
- Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris
- Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í vöruhönnun, Listaháskóla Íslands
- Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir á sviði upplýsingatækni
16:00-17:00 Pallborð og umræður
- Fundarstjóri: Leifur Hauksson
4. mars kl. 15:00 til 17:00
Kynning og umræður um drög að nýrri stefnu Vísinda- og tækniráðs
Fundarstaður er Nýi Kaupþing banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 515 5800 eða með tölvupósti á netfangið
rannis@rannis.is í síðasta lagi á hádegi miðvikudaginn 28. janúar.
Vísindanefnd og tækninefnd boða til opinna funda um
mótun nýrrar vísinda- og tæknistefnu miðvikudaginn
28. janúar kl. 15:00-17:30. Kynningarfundur um drög að
nýrri stefnu verður síðan haldinn miðvikudaginn 4. mars.
2009-2012
VÍSINDA- &
TÆKNISTEFNA
Formannsefni sem ekki eru
valin geta óskað eftir alls-
herjaratkvæðagreiðslu
Trúnaðarmanna-
fundur VR kýs í kvöld
TÆPLEGA 22 ára karlmaður var
dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbund-
ið fangelsi fyrir að nefbrjóta annan
mann. Hann veittist að honum fyrir
utan heimavist Fjölbrautaskóla Suð-
urlands á Selfossi.
Árásarmaðurinn neitaði sök en
fjölmörg vitni, þeirra á meðal tveir
lögreglumenn sem kallaðir voru til,
báru fyrir dómi að maðurinn hefði
slegið fórnarlambið.
Í dómsorði segir að ekkert liggi
fyrir um að maðurinn sem fyrir árás-
inni varð hafi áreitt ákærða með
þeim hætti að leitt geti til mildunar
refsingar. 30 daga fangelsi, skilorðs-
bundið til tveggja ára, þótti því hæfi-
leg refsing.
Nefbraut og nú á skilorði