Morgunblaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2009
„ÞVÍ miður hefur
það nú gerst sem
ég óttaðist allan
tímann frá því að
bankahrunið varð í
byrjun október að
stjórnarkreppa
mundi bætast ofan
á efnahagskrepp-
una,“ sagði Geir H.
Haarde á Alþingi í
gær og kallaði eftir ábyrgð þingmanna
þannig að björgunaraðgerðirnar færu
ekki út um þúfur. „Rétt er að gera þing-
heimi grein fyrir því að ekki er um
málefnalegan ágreining að ræða milli
flokkanna heldur hefur krafa Samfylk-
ingarinnar um að taka við forsætisráðu-
neytinu valdið trúnaðarbresti sem ekki
er yfirstíganlegur. Öllum má vera ljóst að
krafa um að stjórnarforustan flytjist á
milli flokka í ríkisstjórn getur ekki leitt til
annars en stjórnarslita,“ sagði Geir.
Geir H. Haarde
„ÉG tel að Samfylk-
ingin hafi sýnt mik-
ið langlundargeð
við þessar að-
stæður. Ýmislegt
sem varðar breyt-
ingar í fjármálakerf-
inu okkar, sem lýtur
ekki síst að Seðla-
bankanum og því
að endurreisa
traust á þessari
æðstu stofnun efnahagsmála í landinu,
hefur mistekist. Við viljum að á því verði
breyting eigi síðar en strax,“ sagði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingarinnar, á Alþingi og hafnaði út-
skýringum Geirs á því hvers vegna
ríkisstjórnin féll. Samfylkingin hefði boð-
ið fram krafta Jóhönnu Sigurðardóttur í
að leiða ríkisstjórnina þar sem hún hefði
hvað mestan trúverðugleika.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
„ÞAÐ eru stór tíð-
indi sem gerst hafa
hér í dag en við
framsóknarmenn
fögnum því að rík-
isstjórnin hafi loks-
ins axlað ábyrgð.
Um leið segjum við:
Þótt fyrr hefði ver-
ið. Í hugum okkar
framsóknarmanna
hefur það blasað
við að hér væri ekki bara bankakreppa
og efnahagskreppa heldur einnig stjórn-
arkreppa. Ríkisstjórnin hefur í rauninni
aldrei verið í stakk búin til þess að taka á
þeim vanda sem blasir við íslensku þjóð-
inni,“ sagði Höskuldur Þór Þórhallsson,
þingmaður Framsóknar og áréttaði til-
boð flokksins um að verja minni-
hlutastjórn Samfylkingar og VG falli.
Höskuldur Þór
Þórhallsson
„RÍKISSTJÓRN sem
í raun hefur verið
óstarfhæf um
margra vikna ef
ekki mánaða skeið
hefur orðið að játa
sig sigraða. Þessi
stjórnarslit fara
nokkuð harkalega
fram,“ sagði Stein-
grímur J. Sigfús-
son, formaður VG,
á Alþingi í gær og furðaði sig á hörðum
orðum fráfarandi forystumanna. „Við er-
um tilbúin til að axla ábyrgð og leggja
okkar af mörkum. Við útilokum engan
kost fyrir fram og við göngum ekki til
slíkra viðræðna með fyrirframskilyrði,
allra síst um menn eða verkaskiptingu
því að það er málefnið og verkefnið sem
skiptir öllu hér,“ áréttaði hann.
Steingrímur J.
Sigfússon
HVERJIR SÖGÐU HVAÐ
„RÍKISSTJÓRNINNI
hefur með engum
hætti tekist að
höndla þau vanda-
mál sem nú blasa
við þjóðinni, því
miður. Ekki verður
undan því vikist að
þingheimur allur
komi að því að
reyna að sigla mál-
um í höfn,“ sagði
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjáls-
lyndra, á Alþingi í gær og þótti dapurlegt
að ríkisstjórnarsamstarfið endaði með
því að menn stæðu upp og færu strax að
hnýta harkalega hver í annan. Vonaðist
hann til þess að það tækist að mynda
starfhæfa þjóðstjórn.
Guðjón A.
Kristjánsson
FRÉTTASKÝRING
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ALÞINGISHÚSIÐ varð enn einu
sinni að miðstöð fjölmiðlamanna í
gær. Þingmenn sem mættu til
vinnu gátu baðað sig í skæru ljósi
myndavéla og væru þeir líklegir til
að hafa áhrif á framvindu mála
fengu þeir fljótt upptökutæki og
hljóðnema að munninum. Enginn
vildi þó gerast spámaður um hver
niðurstaða af þingflokksfundum
stjórnarflokkanna yrði en þeir hóf-
ust kl. 10.
Nokkrir mótmælendur tóku sér
stöðu fyrir utan Alþingi. Einn
starfsmanna þingsins hvíslaði að
blaðamanni að hann væri orðinn
dálítið þreyttur á þessum tromm-
um. Kannski ekki að furða. Dag-
arnir í taktinum orðnir margir.
Fjölmiðlamenn voru beðnir að
halda sig á neðri hæð nýbyggingar
Alþingishússins. Fyrir vikið var
þétt staðið fyrir utan þingflokks-
herbergi Samfylkingarinnar en
sjálfstæðismenn eru í gömlu bygg-
ingunni og gátu því brugðið sér af
fundi án þess að fá yfir sig spurn-
ingaflóð.
Síðasti fundur forystufólks
Að þingflokksfundum loknum fór
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á fund
Geirs H. Haarde. Það varð þeirra
síðasti fundur sem forystumenn
ríkisstjórnarinnar. Þaðan gengu
þau út með þunga brún en kvödd-
ust að eigin sögn með kossi, eins
og þau heilsuðust þegar samstarfið
hófst snemmsumars 2007.
Geir H. Haarde greindi fjöl-
miðlum frá því að ríkisstjórnarsam-
starfinu væri slitið. Ástæðan væri
sundurlyndi innan Samfylking-
arinnar, sem væri í tætlum og hefði
ekki haft þrek til að ljúka sam-
starfinu.
Annað var hins vegar upp á ten-
ingnum þegar Ingibjörg Sólrún tal-
aði við blaðamenn. Sagðist hún
hafa gert Geir tilboð um að Jó-
hanna Sigurðardóttir tæki við verk-
stjórn í ríkisstjórninni en að hún
sjálf og Geir myndu stíga til hliðar.
Geir hefði hafnað því og þótti Ingi-
björgu það hrokafull afstaða hjá
Sjálfstæðisflokknum, sem bæri
meginábyrgð á bankahruninu.
Þó að Geir og Ingibjörg legðu
bæði áherslu á að samstarf þeirra
hefði alltaf verið gott voru sam-
starfsslitin sannarlega ekki sárs-
aukalaus. Pillur gengu á milli
flokkanna tveggja, sem vísuðu
ábyrgðinni hvor á annan.
Þrátt fyrir það var létt yfir þing-
mönnum beggja flokkanna, eins og
þeir væru lausir úr vondu hjóna-
bandi. Nú gátu þeir loks sagt allt
sem þeir vildu. Og það gerðu þeir.
Ný hlutverk í hreinu húsi
Áðurboðaður þingfundur hófst
kl. 15. Geir H. Haarde tilkynnti
formlega um stjórnarslitin og hann
og Ingibjörg Sólrún endurtóku sína
útgáfu af því hvers vegna til þeirra
kom. Fulltrúar annarra flokka
sögðu líka sitt og síðan var þessum
stutta fundi slitið. Geir hélt á
Bessastaði til að segja forsetanum
tíðindin og þingmenn tíndust smám
saman úr húsi.
Fyrir utan magnaðist trommu-
slátturinn að nýju. Þar var kominn
saman hópur fólks í rigningunni til
að fagna og að venju kipptu margir
einhverju tilfallandi úr eldhús-
skápnum með. En varlega var
fagnað, enda óljóst hvert fram-
haldið yrði.
Þegar trommuveislunni lauk var
þrifum á utanverðu þinghúsinu
haldið áfram. Eggin eru horfin og
málningarslettur hverfa smám
saman.
Þingmenn mæta næst til vinnu í
nýjum hlutverkum. Húsið verður
hreint.
Morgunblaðið/Golli
Og hvað? Spurningarnar dundu á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í gær en hún og Geir H. Haarde gáfu mjög ólíkar skýringar á því hvers vegna ríkis-
stjórnin liðaðist í sundur. Ingibjörg sagðist myndu draga sig í hlé en Jóhanna Sigurðardóttir er forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar.
Hófst með
kossi og lauk
með kossi
Þingmönnum beggja flokka virtist létt
þegar stjórnarsamstarfinu var slitið
Morgunblaðið/Kristinn
421. ræðan Geir H. Haarde flutti fyrst ræðu á Alþingi sem forsætisráð-
herra 3. október 2006. Í gær steig hann í pontu í 421. skiptið síðan þá og um
leið að öllum líkindum í síðasta sinn.
Morgunblaðið/Golli
Knús Formaður og varaformaður fjárlaganefndar, Gunnar Svavarsson og
Kristján Þór Júlíusson, féllust í faðma í gær en þeir hafa starfað náið saman
frá því að ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks tók við völdum.
Morgunblaðið/Golli
Næstu skref Nú mæðir mikið á leiðtogum stjórnarandstöðunnar en allar
líkur benda til þess að mynduð verði minnihlutastjórn Samfylkingar og VG
með stuðningi Framsóknar og Frjálslyndra.