Morgunblaðið - 27.01.2009, Side 19
Daglegt líf 19ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2009
Jón Gissurarson vekur máls á þvíað timburmenn geti verið ansi
duglegir. „Ef maður verður leiður á
þeim er þó hægt að hugga sig við
það að þeir taka sér stundum frí.“
Þó að vínið létti lund,
er lýkur dagsins önnum.
Gefur ætíð gleðistund
gnægð af timburmönnum.
Daginn eftir vinna vel
vert um þá að ljóða.
Starfsmenn afar trausta tel
timbursmiði góða.
Oft og tíðum fer þó frá
fjalasmiður mætur.
Þegar svefninn sígur á
seinni hluta nætur.
Kristján Runólfsson bendir á að
um 100 dagar eru liðnir síðan neyð-
arlögin voru sett, en enginn hefur
enn verið dreginn til ábyrgðar:
Nú skal heimild neyðarlaga,
nýta til að góma seka.
Hafa þeir um hundrað daga,
haft, en engan viljað reka.
VÍSNAHORN | pebl@mbl.is
Af timbri og
neyðarlögum
Hestamennska nýtur sívaxandi
vinsælda í Þingeyjarsýslu og er nú
orðin valgrein í nokkrum skólum.
Reiðnámskeið eru í boði fyrir börn
á öllum aldri og í Hestamiðstöðinni
í Saltvík hefur verið unnið gott og
gagnlegt starf með ungu fólki sem
hefur haft mikla ánægju af því sem
þar er verið að gera. Þá hafa hesta-
mannafélagið Þjálfi og Rækt-
unarbúið Torfunes boðið upp á
reiðkennslu í vetur og er þar um að
ræða kennslu fyrir bæði hópa og
einstaklinga. Kennslan fer fram í
nýju reiðhöllinni og er boðið upp á
fyrirlestra og sýnikennslu auk þess
sem verið er með föndur og fleira
fyrir börn á aldrinum 4-7 ára þann-
ig að allir geti verið með, líka
yngsta fólkið.
Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu
snertir Þingeyinga eins og alla
landsmenn og fjölmenntu íbúar
sýslunnar á fund til Húsavíkur á
dögunum til þess að mótmæla þeim
breytingum sem framundan eru.
Þingeyingar eru þreyttir á nið-
urskurði því margt hefur horfið úr
héraðinu sem áður þótti sjálfsagt
að hafa. Má þar nefna flug-
samgöngur, fæðingardeild, kaup-
félag með dagvöruverslun, mjólk-
ursamlagi, búvéladeild og
tilheyrandi. Þá var sú tíð að skatt-
stofa var starfandi á Húsavík, þar
var bólstrari, gullsmiður, skó-
smiður, rækjuverksmiðja o.m.fl.
Allt er þetta horfið í dag og mat-
vöruverslunin er ekki lengur í
höndum heimamanna.
Dýralæknaþjónustan er líka undir
skurðarhnífnum og nú er einungis
einn dýralæknir með Þingeyj-
arumdæmi því öðrum dýralækn-
inum af tveimur hefur verið sagt
upp störfum. Erfitt er að sjá hvaða
sparnaður þetta verður því það
þarf að kaupa afleysingar um helg-
ar og í sumarfríum. Þá væri dýrt
spaug ef dýralæknirinn tæki upp á
því að verða veikur því oft þarf að
hafa hraðar hendur þegar skepnur
veikjast. Bændur hafa áhyggjur af
þessari þróun en héraðið er víðlent
og varla hægt að ætla það einum
manni til langframa.
Margar kýr hafa borið á sumum
bæjum að undanförnu og hefur
mjólkurinnlegg aukist á svæðinu.
Þrátt fyrir kreppuna ríkir ákveðin
bjartsýni hjá bændum enda hafa
þeir ekki misst vinnuna því það
þarf að sinna gegningum hvað sem
er að gerast í þjóðfélaginu. Öllum
finnst gaman þegar mikið fæðist af
kálfum því þá er eitthvað að gerast
og gott getur verið að slökkva á út-
varpinu þegar fréttirnar af þjóð-
inni fara á versta veg. Hins vegar
er því ekki að neita að óvissan er
mikil á mörgum sviðum en vonandi
fer að rakna úr mörgum málum,
t.d. óvissunni um áburðarverð o.fl.
Þorrinn er genginn í garð og er
hann jafnan mikil gleðitími í Þing-
eyjarsýslu eins og víðar. Þorrablót
voru haldin í Bárðardal, Mývatns-
sveit og á Tjörnesi um síðustu
helgi en um næstu helgi verða
haldin blót í Aðaldal og Reykjadal.
Síðar koma svo Fnjóskadalur,
Kinn og Reykjahverfi auk þess
sem þorrablót eru haldin í öllum
grunnskólunum. Mörg dæmi eru
um að fólk fari á fimm blót og hafa
engar samkomur slegið þessum ár-
legu blótum við en þar fara menn á
kostum á leiksviðinu og dansa sér
til gleði. Gamall bóndi orðar þetta
svo:
Á þorrablótin mæta menn,
matast vel hjá kertaljósi.
Mjöltum samt þeir sinna enn,
en syfjar oft í morgun-fjósi.
LAXAMÝRI
Atli Vigfússon fréttaritari
Morgunblaðið/Atli Vigfússon.
Thelma Dögg Tómasdóttir í Víðiholti Suður-Þingeyjarsýslu kann vel að
meta þegar mikið fæðist af kálfum í fjósinu.
ÍBÚAR Ísafjarðar efndu til Sólar-
kaffis á sunnudag í tilefni af því
að sú gula heiðraði bæinn með
nærveru sinni á ný eftir um
tveggja mánaða hlé.
„Þessi hefð þekkist í fleiri lands-
hlutum en ég held að Ísfirðingar
hafi byrjað með þetta. Það eru all-
tént ekki margir staðir á landinu
þar sem sólar nýtur við í skemmri
tíma yfir veturinn. Hún hverfur
héðan í nóvember og kemur ekki
aftur fyrr en 25. janúar og það er
hinn formlegi sólrisudagur okkar
Ísfirðinga. Á þeim degi sér til sól-
ar yfir fjöllin í fjarðarbotninum.
Hún gægist yfir fjallbrúnina og
sendir fyrstu geislana niður á Sól-
götuna á eyrinni sem dregur nafn
sitt vitaskuld af því. Það tekur sól-
skinið síðan nokkra daga að
skríða niður eftir kirkju bæjarins
og hitta jörðina,“ segir Ólína Þor-
varðardóttir þjóðfræðingur á Ísa-
firði.
Til siðs er að baka pönnukökur
með kaffinu á þessum ánægjulega
degi og lengi hefur verið haldinn
síðkjóladansleikur kenndur við
Sunnukórinn fyrsta laugardag eft-
ir 25. janúar en kórinn var stofn-
aður á sólrisudegi. Nema hvað?
Dansleikurinn verður á sínum stað
á laugardaginn en nú hefur hann
hlotið yfirskriftina Sólardans-
leikur. „Þetta er fínasta og virðu-
legasta ballið í bænum og allir
sem vettlingi geta valdið mæta á
staðinn. Það er ekki nóg fyrir okk-
ur Ísfirðinga að borða pönnukökur
og drekka kaffi af þessu tilefni,
við verðum að stíga sólardansinn
líka,“ segir Ólína.
Brottfluttir Ísfirðingar láta ekki
sitt eftir liggja og á föstudaginn
kemur efnir Ísfirðingafélagið í
Reykjavík til Sólarkaffis á Hilton-
Nordica-hótelinu. „Það er líka ball
sem oftast hefst með kaffi og
pönnukökum að sjálfsögðu. Svo er
dansað. Það er jafnan mikið fjöl-
menni á þessu balli enda hafa Ís-
firðingar alltaf gaman af því að
hittast,“ segir Ólína. orri@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Í sól Ísafjarðarkirkja stendur við Sólgötu, þar sem fyrstu geislar sólarinnar falla eftir dimman vetur.
Ísfirðingar stíga sólardansinn
GALLHÖRÐ avókadó eða þurrar
óætar perur hafa valdið mörgum
vonbrigðum í gegnum tíðina. Það
getur nefnilega verið erfitt að meta
það í grænmetisdeildinni, hvort
ávextir séu á því þroskastigi sem
neytandinn óskar eftir.
En nú gæti lausn verið í sjónmáli
því til stendur að prófa nýja ávaxta-
skynjara í stórmörkuðum Tesco í
Bretlandi. Skynjararnir nema lykt
frá ávöxtunum og sýna rautt þegar
ávöxturinn er óþroskaður, appels-
ínugult þegar hann er mátulegur
og gult þegar hann er orðinn of-
þroskaður. jmv@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þroskað eða
óþroskað?
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast.
Þvottavélar - verð frá kr. 164.995
Þurrkarar - verð frá kr. 139.995
TILBOÐ
Sparðu
með Miele