Morgunblaðið - 27.01.2009, Síða 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2009
Akureyrarmót
í sveitakeppni
Mótið er komið í fullan gang og
nú er 6 leikjum lokið af þeim 14
sem verða í tvöfaldri umferð. Efstu
sveitir eru nú:
Sv. Frímanns Stefánssonar 118
Sv. Unu Sveinsdóttur 108
Sv. Péturs Gíslasonar 99
Sv. Stefáns Vilhjálmssonar 90
Niðurstöður í butler útreikningi
spilara má finna á www.bridge.is .
Hjónasigur í Kópavogi
Hjónin Hildur og Helgi héldu
heldur betur haus og höfðu sigur
með harðfylgi, heppni og hamingju
í tveggja kvölda tvímenningi.
Lokastaðan:
Hildur Sveinsd. – Helgi Viborg 517
Baldur Bjartmars. – Sigurjón Karls. 502
Egill Brynjólfss. – Snorri G. Steinss. 487
Jörundur Þórðars. – Þórður Jörunds. 484
Björn Jónsson – Þórður Jónss. 474
Fimmtudaginn 29. jan. er ekki
spilað hjá BK vegna Bridshátíðar,
en 5. febrúar hefst 4-5 kvölda Ba-
rómetertvímenningur.
Bridsfélag Borgarfjarðar
Mánudaginn 19. janúar hófu
Borgfirðingar að spila aðalsveita-
keppnina með þátttöku 11 sveita.
Keppnisformið er Patton. Formað-
urinn Jón á Kópa og Ingimundur í
Deildartungu tóku sér alræðisvald,
svona rétt eins og landsfeðurnir,
og skipuðu pörum í sveitir. Hvort
það er þessari röðun að þakka eða
ekki þá fer keppnin vel af stað og
töluverð spenna á toppnum.
Sveitir Önnu Einars og Sindra í
Bakkakoti leiða keppnina með 45
stig en rétt í kjölfarið kemur sveit
Bjarkar með 42 stig. Í 4. sæti er
svo sveit Lundasystra með 41 stig
og í 5. sveit Kópakallsins með 40
stig. Keppnin heldur áfram næsta
mánudag.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 19. jan-
úar. Spilað var á 13 borðum. Með-
alskor 312 stig.
Árangur N-S
Ragnar Björnss. – Guðjón Kristjánss. 388
Björn E. Pétursson – Gísli Hafliðas. 379
Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 370
Árangur A-V
Soffía Theodórsd. – Elín Guðmannsd. 370
Jóhann Benedikts. – Oddur Halldórss. 359
Jón Lárusson – Ólafur B. Theodórs 350
Tvímenningskeppni spiluð
,fimmtud. 22. jan. Spilað var á 12
borðum. Meðalskor 216 stig. Ár-
angur N-S
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 277
Agúst Helgason - Haukur Harðars. 253
Ragnar Björnss. - Jón Lárusson 238
Árangur A-V
Eyjólfur Ólafss. - Sveinn Sveinsson 253
Hilmar Valdimarss. - Óli Gíslas. 237
Soffía Theodórsd. - Elín Guðmannsd. 230
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 18.1. sl. var fyrsta
spilakvöld í fimm kvölda tvímenn-
ingskeppni. Spilað var á 13 borð-
um. Hæsta skor í N/S:
Sveinn Ragnarss. – Runólfur Guðms. 360
Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 345
Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfsson
342
Austur/Vestur
Sveinn Sveinsson – Gunnar Guðmss. 394
Kristín Óskarsd. – Freyst. Björgvinss. 357
Bergsv. Guðmss. – Kristján Guðmss. 340
Spilað er í Breiðfirðingabúð
Faxafeni 14 á sunnudögum klukk-
an 19.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði.
Föstudaginn 16. janúar var spil-
að á 16 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S:
Bragi Björnss. – Bjarnar Ingimarsson 356
Sæmundur Björnss. – Örn Einarsson 353
Skarphéðinn Lýðss. – Oddur Jónsson 353
Magnús Oddss. – Oliver Kristófersson 347
A/V:
Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 370
Jón Lárusson – Halla Ólafsdóttir 366
Haukur Guðmss. – Ólafur Ólafsson 353
Sveinn Snorrason – Gústav Nilsson 350
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
✝ Jónatan Hallfæddist í Reykja-
vík 15. nóvember
1942. Hann lést á
heimili sínu, Hátúni
12, þriðjudaginn 20.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Garðar Hall, f. 17. jan-
úar 1907, d. 20. des-
ember 1997 og Bryn-
hildur Jónatansdóttir
Hall, f. 3. september
1910, d. 23. janúar
1973. Systkini Jón-
atans eru: Guðrún, f.
16. mars 1935, maki Agnar Ein-
arsson, f. 21. október 1931, þau eiga
3 börn og átta barnabörn; Jónas, f.
20. júní 1946, maki Ólafía Jónsdóttir,
f. 25. apríl 1945, þau eiga 3 dætur og
tvö barnabörn; og Hjördís Anna, f.
14. september 1950, maki Sigurjón
Stefánsson, f. 29. október 1950, þau
eiga 2 dætur og sex barnabörn.
Jónatan kvæntist 12. mars 1966
Sigrúnu Jónsdóttur, f. 8. september
1939. Þau skildu. Foreldrar hennar
voru Jón Brynjólfsson, f. 31. maí
1904, d. 21. ágúst 1979 og Kristrún
Helgadóttir, f. 20. ágúst
1909, d. 19. apríl 1950.
Jónatan og Sigrún eign-
uðust tvö börn: 1) Garð-
ar, f. 28. apríl 1966,
maki Rannvá Kristína
Hansen, f. 11. október
1976, synir þeirra eru
Bárdur, f. 22. maí 1999,
og Martin, f. 13. októ-
ber 2005. 2) Brynhildur,
f. 2. janúar 1969, maki
Jónas Egilsson, f. 16.
júlí 1969, börn þeirra
eru Sigrún, f. 16. júli
1992, Sylvía, f. 14. maí
1997, og Egill, f. 6. nóvember 2006.
Jónatan lærði rennismíði og fór
síðan í Lögregluskólann og útskrif-
aðist frá honum 1971. Jónatan starf-
aði sem lögregluþjónn þar til hann
lét af stöfum vegna veikinda sinna,
en hann greindist ungur með MS-
sjúkdóminn. Jónatan hefur átt heim-
ili að Hátúni 12 Reykjavík síðustu 18
ár og naut þar frábærrar umönn-
unar hjá einstöku starfsfólki.
Útför Jónatans verður gerð frá
Laugarneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
í dauðans dimmum val.
Úr inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(Valdimar Briem.)
Elsku pabbi og afi, nú er ljósið
slokknað og þú kominn á góðan
stað, laus við þrautir sjúkdómsins.
Minning um þig lifir í hjörtum
okkar.
Kveðja frá Færeyjum,
Garðar, Rannvá,
Bárdur og Martin.
Kveðja frá barnabörnum
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Elsku afi, nú ertu kominn á góð-
an stað hjá englunum og laus við
sjúkdóminn sem þú varst með svo
lengi.
Hvíl í friði elsku afi, þú munt
lifa í minningum okkar.
Guð blessi þig.
Sigrún, Sylvía og Egill.
Góður drengur er látinn. Jón-
atan Hall, til heimilis í Hátúni 12,
húsi Sjálfsbjargar.
Nú er hann laus úr viðjum sjúk-
dóms sem batt hann við hjólastól
síðustu tólf ár ævinnar. Jónatan
var næstelstur fjögurra barna
hjónanna Garðars Hall og Bryn-
hildar Jónatansdóttur Hall. Hann
fæddist í hjarta Reykjavíkur og
Ljósvallagatan var leikvangurinn
fyrstu árin. Svo verða þáttaskil í
búsetu.
Hús reist að Bústaðabletti 4,
austast í Fossvogsdalnum. Þangað
fluttist fjölskyldan fyrir miðja síð-
ustu öld – nánast síðasta bæinn í
dalnum. Blesugrófin hinum megin
viö götuna. Æskuárin blómstruðu
meðal góðra leikfélaga. Iðjagræn
tún svo langt sem augað eygði í
vesturátt – hestar, kýr og kindur á
beit. Hugurinn hlýtur að mótast af
slíku umhverfi. Jónatan var Ijúfur
í lund eins og náttúran umleikis en
ákveðinn að eðlisfari. Unglingsárin
liðu í lygnum straumi.
Að lokinni hefðbundinni skóla-
skyldu lá leið Jónatans í Iðnskól-
ann þar sem lauk námi í renni-
smíði. Á þessum árum kynntist
hann konuefni sínu, Sigrúnu Jóns-
dóttur. Jónatan og Sigrún giftu sig
1966 og eignuðust tvö mannvænleg
börn sem skírð voru í höfuðið á
foreldrum Jónatans, Garðar og
Brynhildur. Barnabörnin eru orðin
fimm talsins.
Næsti vettvangur Jónatans var
Lögregluskólinn. Hann vildi auka
möguleika sína í lífinu og frá þeim
skóla útskrifaðist Jónatan árið
1971 og starfaði sem lögreglu-
þjónn til fjölda ára. Um það leyti
skildi leiðir Sigrúnar og Jónatans
en Sigrún sýndi honum mikla um-
hyggju í veikindum hans síðar
meir.
Sjúkdómurinn lá í leynum en
sótti fram hægt og hljótt. Svo kom
sá tími aö Jónatan gat ekki lengur
sinnt starfi sínu. Eftir nokkur erf-
ið ár birtist ljós í myrkrinu og
Jónatan fékk vistun í Hátúni 12.
Það varð hans gæfa að lenda hjá
því frábæra fólki sem þar starfar.
Innileg umhyggja umlék Jónatan á
þessum íverustað. Við aðstandend-
ur fáum seint fullþakkað alla þá al-
úð sem honum var sýnd. Svo rann
stundin upp. Jónatan andaðist að
kvöldi 20. janúar sl. Blessuð sé
minning hans.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V.Briem.)
Agnar og Sigurjón.
Jónatan Hall
Manstu þegar ég
hitti þig fyrst? Ég var
ekki nema fimmtán ára
þegar ég bankaði uppá
í Byggðaveginum.
Komin til að spyrja eftir yngsta syni
þínum, Sverri. Fiðringurinn í magan-
um hvarf um leið og þú komst til
dyra. Rólyndiskona með hlýtt og gott
hjarta. Það fór ekki framhjá mér. Áð-
ur en ég vissi af var ég komin með
annan fótinn inn á heimilið ykkar
Gests. Ég vissi að ég var komin til að
vera, þvílíkt gæfuspor.
Nærvera þín var einstök. Mikið
leið mér alltaf vel í kringum þig Rúna
mín. Alltaf varstu til staðar. Það var
alveg sama á hvaða tíma komið var í
Byggðaveginn, allir voru svo innilega
velkomnir og kræsingar voru bornar
fram í hvert skipti. Gestrisni þín var
með eindæmum. Tíminn líður. Ég og
Sverrir fluttum til Reykjavíkur í
nám. Þar bjuggum við í 10 ár. Öll árin
tókst þú vel á móti okkur um jól og
páska. Einnig eru mér minnisstæð
þau sumur sem ég bjó hjá ykkur
Gesti en þá var Sverrir að vinna í
borginni. Já, þá áttum við góðan tíma
saman elsku Rúna.
Stundirnar og spjallið, sötrið og
smjattið við eldhúsborðið þitt gleym-
ist seint. Þú varst fljót að læra inn á
tengdadótturina. Í stað þess að bjóða
mér upp á nýsteiktar kleinur eða ný-
bakaða snúða voru niðurskornir
ávextir í skál. Í langan tíma þurftir þú
að berjast við illvígan sjúkdóm. Það
gerðir þú af þvílíkum krafti og dugn-
aði. Ég þurfti oft að minna mig á það
sem þú varst að ganga í gegnum. Það
var aðdáunarvert hvað þú sýndir
mikinn styrk og hvað þú barst þig vel.
Þú hafðir oft orð á því hversu rík og
Guðrún Sigurðardóttir
✝ Guðrún Sigurð-ardóttir fæddist á
Rauðuskriðu í Suður-
Þingeyjarsýslu 7.
febrúar 1931. Hún
lést á heimili sínu 27.
desember síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Akureyr-
arkirkju 5. janúar.
lánsöm þú værir að
eiga stóra fjölskyldu
og fullt af yndislegum
ömmubörnum. Satt
var það. En við vorum
líka lánsöm að fá að
kynnast og vera með
þér. Dýrmætt var það.
Einstaklega ábyrgðar-
full varstu, umhyggju-
söm og góð amma.
Krakkarnir mínir,
Salka og Sólon, eru
yngst af ömmubörnun-
um. Sólon litli fékk því
miður ekki mikinn
tíma með þér en margar góðar sögur
verða honum sagðar um ókomin ár.
Aftur á móti spyr Salka ömmustelpa
þín mikið þessa dagana um lífsins
gang sem erfitt er að skilja. En eins
og hún sagði sjálf þá á hún góðar
minningar um ömmu Rúnu og þær
mun hún geyma í litla hjartanu sínu.
Það gerum við öll.
Elsku Rúna, innilegar þakkir fyrir
að vera alltaf til staðar fyrir okkur öll.
Ástar- og saknaðarkveðja. Þín
tengdadóttir og ömmubörn
Hrefna, Salka og Sólon.
Kæra amma.
Það er með miklum söknuði sem
við ritum þessa grein. Frá okkur er
farin sú besta amma sem hægt er að
hugsa sér. Heimili þitt var okkar ann-
að heimili. Þær eru margar gleði-
stundirnar sem við áttum í Byggða-
veginum þar sem þú bjóst í yfir hálfa
öld. Í Byggðaveginum var mikið
frelsi til athafna og framkvæmda, þar
var alltaf einstaklega þægilegt and-
rúmsloft og gott að vera. Þegar þang-
að var komið fékk maður fyrsta
flokks þjónustu og í raun eina press-
an á mann var að borða meira. Oft sat
maður við eldhúsborðið og hlustaði á
samræður eldra fólksins enda var
mikill gestagangur alla tíð og greini-
legt að mörgum öðrum þótti gott að
koma í heimsókn. Lund þín var ein-
stök, alltaf í góðu skapi, fyrirmynd í
viðmóti og jákvæðni til alls og allra.
Samband þitt og afa var einstakt, þið
voruð sannir sálufélagar og lengi höf-
um við talað um hve samband ykkar
var fallegt. Það var ykkar og er okkar
gæfa að þið kynntust á sínum tíma.
Við búum að því alla ævi að hafa
kynnst sambandi sem einkenndist af
slíkri gagnkvæmri virðingu og kær-
leika.
Guð veri með þér amma og takk
fyrir okkur.
Gestur og Viktor.
Elsku amma.
Það er erfitt að hugsa sér tilveruna
án þín.
Að koma í Byggðaveginn og engin
amma þar, með svo mikla ást og um-
hyggju.
Það var alveg sama hvenær við
komum og hverjir komu með okkur,
alltaf voru það sömu góðu viðtökurn-
ar sem við fengum.
Þegar við hugsum til þín kemur afi
upp í hugann líka, því þið voruð alltaf
saman og það var svo einstaklega
gott sambandið á milli ykkar.
Við erum þakklát fyrir að eiga
svona margar minningar um ykkur
afa og segir það heilmargt að hver
einasta þeirra er af hinu góða.
En við trúum því að þú sért með
okkur áfram og gætir okkar og vakir
yfir okkur.
Takk fyrir allt, elsku amma.
Aldís Rúna og Oliver Helgi.
Það er með virðingu og einlægu
þakklæti sem við minnumst hennar
Rúnu móðursystur sem alltaf reynd-
ist okkur svo vel. Hún var hæglát og
hlý kona sem auðvelt var að ræða við
um það sem var efst í huga hverju
sinni. Ferðalangar að vestan fundu
glöggt á viðmóti þeirra hjóna, Rúnu
og Gests, hve velkomnir þeir voru á
heimili þeirra og þar var fastur við-
komustaður á ferðalagi norðan heiða.
Þótt stundum væri erill á Byggða-
veginum virtist alltaf tími til að sinna
hverjum og einum af alúð og natni.
Við þökkum Rúnu innilega samfylgd-
ina sem skilur eftir sig dýrmætar
minningar um góða konu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Gesti, börnum og fjölskyldum
þeirra sendum við innilegar samúðar-
kveðjur og biðjum Guð að styrkja
þau.
Hulda, Arna, Linda,
Kristmann og fjölskyldur.
Elsku Rúna frænka. Það liggur við
að ég ætti að segja systir, því við ól-
umst upp í sama húsi, í Rauðuskriðu.
Feður okkar voru bræður og mæður
okkar systur. Við lékum okkur saman
sem börn í stórum barnahópi, systk-
ina minna og þinna, en alls vorum við
börnin 11 á heimilinu. Svo vorum við
auðvitað saman í barnaskóla, fæddar
á sama ári. Þú í febrúar og ég í sept-
ember. Við vorum fermdar saman og
létum mynda okkur saman í hvítu
heimasaumuðu fermingarkjólunum
okkar. Við fórum saman á skemmt-
anir í sveitinni. Stundum gangandi
yfir hálsinn að kvöldi til að fara á ball
í Hólmavaði. Þar stóðu böllin til
klukkan sex eða sjö á morgnana svo
það var kominn fótaferðartími þegar
við komum heim aftur. Svo vorum við
saman í húsmæðraskólanum á Laug-
um og það var frábær tími. Síðan höf-
um við skólasysturnar, sem vorum á
Laugum árin 1951-1952, hist af og til
og það hefur verið mjög gaman. Einn
vetur vorum við svo saman í Reykja-
vík og þá varst þú búin að kynnast
Gesti, þínum góða eiginmanni. Þið
stofnuðuð ykkar fallega heimili á Ak-
ureyri og hafið búið þar alla tíð síðan
og eignast fjögur mjög myndarleg
börn. Það var mikið gaman og gott að
heimsækja ykkur. Gestrisni í há-
marki og heimilið prýtt alls konar fal-
legum munum eftir þig. Í þínum erf-
iðu veikindum ertu búin að standa þig
eins og hetja. Þú hefur fengið styrka
stoð frá Gesti manni þínum, börnum
og fleirum. Ég sakna þín en segi góða
ferð og hafðu þökk fyrir allt og allt.
Hugurinn verður hljóður
við hugleiðum stundir tvennar.
Vertu guð öllum góður
og gættu ástvina hennar.
Sigríður.