Morgunblaðið - 20.02.2009, Side 40

Morgunblaðið - 20.02.2009, Side 40
40 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009 Fólk DJASSGÍTARLEIKARINN Jón Páll Bjarnason lenti í leið- inlegu atviki á dögunum þegar sjaldgæfum magnara hans var stolið úr bíl hans. „Ég var uppi í Lágmúla að spila snóker á stofu þar, svo þegar ég kom út var magnarinn horfinn úr bílnum,“ segir Jón Páll. „Það var smárifa á rúðunni farþegamegin, þannig að einhver hefur teygt sig inn í bílinn og búmm … magnarinn farinn! Hann var spenntur á kerru með gítarstatífi og sú eining var einnig tekin.“ Magnarinn er stór hluti af einkennandi hljómi Jóns Páls og því súrt að missa hann. Jón segist hafa fengið svipaðan magnara að láni hjá félaga sínum og neyðist til þess að kaupa nýjan, eins, ef sá gamli kemur ekki í leitirnar. En það er hægara sagt en gert. „Hann heitir Polytone Mini Brute IV og er aðallega notaður í djass. Það eru til örfá stykki hér á landi.“ Jón hefur gert ýmsar ráðstafanir sem hindra að þjófurinn geti selt magnarann úti í búð eða til annarra hljóð- færaleikara. Búið er að ræða við allar hljóð- færaverslanir auk þess sem sérstök síða hef- ur verið sett upp á Facebook þar sem fólk er beðið að láta vita ef það verður magnarans vart. Jón segist ekki taka fyrir það að veita þeim sem finnur magnarann allt að tíu þús- und krónur í fundarlaun. „Við erum að spila á Café Cultura á laugardag og ég vil bjóða þeim sem tók magnarann að fara með hann þangað og skilja hann eftir. Það lofa allir að líta undan þegar viðkomandi kemur inn.“ biggi@mbl.is Djassari gerir dauðaleit að magnaranum sínum Órafmagnaður? Jón Páll reynir nú allt til að end- urheimta gítarmagnarann sinn.  Yfirlýsing Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra í gær þess efn- is að hún vildi að listaverkaeign bankanna yrði að ríkiseign er eðli- leg. Um er að ræða stór brot úr lista- sögu landsmanna sem tilheyra sam- eiginlegri arfleifð. Engin ástæða er til að endurtaka þau mistök sem gerð voru er listaverkin fylgdu „óvart“ með í einkavæðingarferli bankanna forðum, heldur tryggja sem fyrst eignarhald þjóðarinnar á þessum menningarverðmætun. Ákvörðuninni fylgir þó heilmikil ábyrgð. Ef ríkislistasafn þjóð- arinnar, Listasafn Íslands, á að taka við verkunum, þarf að skapa því að- stæður til þess. Safnið skortir nú þegar bæði geymslurými og sýning- arrými. Sömuleiðis starfsfólk til að sinna aukinni forvörslu, skráningu og þar fram eftir götunum. Viðbótareignin krefst heilmikils og óhjákvæmilegt að takast á við þann vanda strax fyrst búið er að ákveða að fara þessa leið. Listaverkin; mistökin ekki endurtekin  Og þar sem við erum byrjuð að tala um Katrínu Jakobsdóttur ný- skipaðan ráðherra menntamála er ekki hægt að láta það tækifæri hjá líða að minnast á framkomu hennar á Íslensku tónlistarverðlaununum sem veitt voru í fyrradag. Katrín veitti Sigur Rós verðlaun fyrir bestu plötuna en í stað þess að þar væri mættur ábúðarfullur stjórn- arherra á borð við þá sem lands- menn hafa vanist undanfarna ára- tugi, stóð ungæðislegur stjórnmálamaður klæddur í peysu, gallabuxur og Converse-skó. Katrín er sjálf af krúttkynslóð- inni svokölluðu (hún er í það minnsta jafnaldri strákanna í Sigur Rós) og því ekki óeðlilegt að hún fúlsi við buxnadrögtunum og perlu- eyrnalokkunum sem opinber emb- ættisstörf kölluðu áður á. Má til dæmis frekar búast við múm og Mugison í græjum ráð- herrabílsins en Mahler, Mendels- sohn og Mozart. Kom til hátíðarinnar í réttum skóm Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is MYNDIN sem Kjartan Sveinsson semur tónlistina við kallast Ondine og verður frumsýnd á þessu ári. Það er stórleikarinn og landi Neils Jordans, Colin Farrell, sem fer með aðalhlutverkið. Handritið er eftir Jordan sjálfan og fjallar það um mann í litlu sjávarþorpi í suð- vesturhluta Írlands. Dag einn fangar hann sprelllifandi kven- mann í net sín og er óðar dregin sú ályktun að hér sé um hafmeyju að ræða. Veran torkennilega á svo eftir að setja líf fiskimannsins og þorpsbúa rækilega úr skorðum. Tími aflögu „Þetta eru bara nokkur stef,“ segir Kjartan, spurður um þátt sinn í myndinni. Upptökur á tón- listinni standa yfir núna og sér Kjartan svo gott sem einn um all- an hljóðfæraleik. Félagi hans, Orri Páll Dýrason, trymbill Sigur Rós- ar hefur reyndar eitthvað komið að vinnunni og sömuleiðis hljóð- og upptökumaðurinn Birgir Jón Birgisson. „Þetta eru nokkur lítil stef sem ég bý til og svo ætlar hann líka að nota einhver lög eftir okkur [Sigur Rós].“ Kjartan segir að Jordan hafi haft samband við hljómsveitina og hlutirnir hafi síðan æxlast á þenn- an veg. Hljómsveitin fái stöðugt beiðnir um viðlíka samstarf. „Hins vegar höfum við aldrei tíma til að sinna neinu svona auk þess sem verkefnin eru misspenn- andi eins og gengur. Mér leist hins vegar mjög vel á þessa mynd og svo vildi til að ég hafði smá tíma aflögu til að sinna henni.“ Beðinn um að lýsa tónlistinni sem hann sé að semja segir hann hana vera „litla“ og einfalda. „Það er fínt að reyna sig við eitthvað annað en hljómsveit- arstörf en þetta er samt ekki í fyrsta skipti sem ég legg í svona vinnu,“ segir Kjartan en hann samdi tónlist fyrir stuttmynd Rún- ars Rúnarssonar, Síðasti bærinn (2005), en mynd sú var tilnefnd til Óskarsverðlauna. Auk þess samdi hann tónlistina við myndina Smá- fugla (2008) eftir sama leikstjóra. Þessi stærðargráða … Sigur Rós sem slík hefur komið að tónsetningu íslenskra kvik- mynda, átti t.a.m. tvö lög í mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Engl- ar alheimsins, „Bíum bíum bam- baló“ og „Dánarfregnir og jarð- arfarir“ og samdi auk þess tónlist við stuttmyndina Hlemmur. Tónlist sveitarinnar hefur einnig ómað strítt á erlendum vettvangi, hún samdi t.d. tónlist fyrir bresku stuttmyndina The Loch Ness Kel- pie (2004) og tónlist hennar hefur heyrst í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda af öllum stærðum og gerðum. Þetta er þó í fyrsta skipti sem einn meðlimur tekur að sér að frumsemja tónlist fyrir mynd af þessari stærðargráðu. „Bara nokkur lítil stef …“  Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós semur tónlist fyrir næstu kvikmynd Óskarsverðlaunahafans Neils Jordans  Nokkur lög Sigur Rósar einnig notuð Morgunblaðið/Þorkell Spennandi Kjartani Sveinssyni leist vel á nýjustu mynd Neil Jordans og samþykkti að semja við hana tónlist. Írski leikstjórinn Neil Jordan, fæddur 1950, öðlaðist heims- frægð árið 1992 er mynd hans The Crying Game var tilnefnd til sex Óskarsverðlauna. Jordan hefur gert litlar myndir sem stórar, en Interview with the Vampire með Tom Cruise og Brad Pitt er líkast til hans „stærsta“ mynd. Neil Jordan Lýstu eigin útliti. Í hærri kantinum, stutthærður og eldrauðhærður. Hvort er betra, lakkrís eða hlaup? (spyr síðasti aðalsmaður, Einar Þor- steinsson fréttamaður) Ég er ekki mikill nammigrís en myndi þó velja lakkrísinn ef Einar kæmi til mín færandi hendi. Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfan þig? Að stress er svo gott sem hætt að hafa áhrif á mig. Ertu trúaður? Nei, það er ég ekki. Þó að ég hefði ekkert á móti því svona öðru hverju. Hvernig viltu deyja? Hamingju- samur, sáttur og búinn að klára allt sem mig langar að gera. Ekki of ungur og ekki of gamall. Styðurðu ríkisstjórnina? Ég vil kosningar sem allra fyrst og þá skal ég gera upp hug minn. Uppáhaldslið í ensku knattspyrn- unni? Liverpool. Púlari frá því að amma gaf mér Liverpool-trefil. Hversu pólitískur ertu á skalanum 1 til 10? Ekki mikið meira en svona 7, enda tekur ekki nema örfáa daga að vita ekki neitt um hvað er í gangi. Þið spilið alltaf sömu 5 lögin á tón- leikum, eruð þið búnir að semja fleiri? Heldur betur. Hellingur að gerast í lagasmíðum þessa dagana. Ég get ekki beðið eftir því að spila nýju lögin á tónleikum. Skipta tónlistarverðlaun þig ein- hverju máli? Já, þetta er rosalegur heiður og frábær leið til að innsigla æðislegt fyrsta ár fyrir okkur. Er það satt sem sagt er um rauð- hært fólk? Dagsatt. Fyrir alla bræð- ur og systur mæli ég með bókinni The Ginger Survival Guide eftir Tim Collins sem Arnar söngvari gaf mér í afmælisgjöf. Hver eru þín mestu mistök? Senni- lega að sinna skólanum ekki nógu vel undanfarið ár. Og þinn stærsti sigur? Ætli það sé ekki bara Agent Fresco? Ég er rosa- lega stoltur af okkur strákunum og þakklátur fyrir að hafa kynnst þeim. iPod eða geislaspilari? iPod. Mr.Bungle eða Dr. Spock? Dr. Spock, enda toppmenn þar á ferð. Besta platan? Elton John - Good- bye Yellow Brick Road. Hver yrði titillinn á kvikmynd um ævi þína? The Road to Ginger Pa- lace. Hver myndi leika aðal- hlutverkið? Rupert Grint eða Chuck Norris. Hvers viltu spyrja næsta viðmæl- anda? Honey- nut Cheerios eða venju- legt? ÞÓRARINN GUÐNASON AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER GÍTARLEIKARI ROKKSVEITARINNAR AGENT FRESCO. SVEITIN HLAUT Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN Í FLOKKNUM BJARTASTA VONIN.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.