Morgunblaðið - 23.08.2009, Síða 1
ALI NAYEF FER HULDU HÖFÐI Í
DANMÖRKU. HANN Á YFIR HÖFÐI
SÉR BROTTVÍSUN TIL ÍRAKS. LITLI
SONUR HANS ER Á ÍSLANDI »12
2 3. Á G Ú S T 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
227. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Við höldum með
stelpunum okkar
Ítarleg umfjöllun um
EM 2009 í Morgublaðinu
TENGSL
Áslaug og
Jenna
Jensdætur
KLÁRAR Í SLAGINN
Á EM Í FINNLANDI
STELPURNAR
OKKAR
GL
ÓS
UB
ÓK
IN
SUNNUDAGUR
MANNFJÖLDI Á ÍSLANDI»6
LÍÐAN LÖGGJAFANS»8
Tilfinningaþrungið
álit meirihluta fjár-
laganefndar um
Icesave-frumvarpið
á sér ekkert for-
dæmi.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson, sem
situr í fjárlaganefnd, viðurkennir að
hafa komið að ritun álitsins – og að
hann hafi verið hvað virkastur við skrif-
in um siðferðileg álitamál.
Tilfinningar
nefndarmanna
Í fyrsta skipti í
120 ár fækkar
fólki á Íslandi,
fyrst og fremst
vegna þess að
útlendingar eru
að flytja frá
landinu. Sú
þróun mun halda áfram ef fæðingar-
tíðni lækkar og Íslendingar flytja frá
landinu í meira mæli en áður.
Fæðingartíðni hér á landi er enn mun
hærri en í flestum öðrum ríkjum Evr-
ópu.
Flutningar
og fæðingar
„ÉG er þeirrar
skoðunar að tján-
ingarfrelsi sé
mikilvægasta
frelsið í sam-
félaginu,“ segir
leikstjórinn
margverðlaunaði
Milos Forman, en
hann verður heið-
ursgestur Alþjóð-
legrar kvikmyndahátíðar í Reykja-
vík dagana 17. til 27. september.
Hann líkir stjórnmálaviðhorfum
almennings við pendúl sem „sveifl-
ast frá hægri til vinstri og frá vinstri
til hægri. Undanfarin ár hefur hann
sveiflast til hægri og þess vegna er
þrýstingur til baka núna. En ef
hann sveiflast of langt til vinstri,
eins og í Rússlandi, þá mun fólk á
endanum ýta honum aftur á miðjuna
og síðan áfram til hægri. Pendúllinn
má aldrei stöðvast í miðjunni, því
það er dauði. Hægri, vinstri, hægri,
vinstri, hægri, vinstri, hægri,
vinstri.“ | 18
Tjáningar-
frelsi mikil-
vægast
Stjórnmálaviðhorf
eins og pendúll
Milos Forman