Morgunblaðið - 23.08.2009, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
– meira fyrir áskrifendur
Glæsilegt sérblað um heilsu
og lífstíl fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 28. ágúst
Heilsa og
lífstíll
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Í blaðinu Heilsa og lífstíll verður kynnt
fullt af þeim möguleikum sem í boði eru
fyrir þá sem stefna á heilsuátak og
bættan lífstíl haustið 2009.
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16
mánudaginn 24. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 netfang: kata@mbl.is
Meðal efnis verður :
• Ný og spennandi námskeið í
heilsuræktarstöðvum
• Flott föt í ræktina
• Andleg vellíðan
• Afslöppun
• Dekur
• Svefn og þreyta
• Matarræði
• Skaðsemi reykinga
• Fljótlegar og hollar uppskriftir
• Líkaminn ræktaður heimafyrir
• Ásamt fullt af fróðleiksmolum og
spennandi efni
Notar þú bara GSM
símann til að vekja
þig eða leggur þú
metnað í að kreista
út lengri svefn á
morgnana?
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
S
vefnvenjur fólks eru eins
og gefur að skilja afar
mismunandi. Talað er um
A- og B-persónur. A eru
þá þeir sem fara snemma
í háttinn en spretta svo á lappir
eins og stálfjöður á morgnana, B
eru auðvitað nátthrafnarnir, sem
sofa fram eftir öllu ef þeir fá tæki-
færi til.
Eðli máls samkvæmt getur fólk
svo samt þurft að vakna til vinnu á
ólíklegustu tímum hvort sem það er
í A- eða B-flokknum – til dæmis
þeir sem vinna vaktavinnu.
Það getur því reynst sumum afar
erfitt að vakna og þetta hafa
vekjaraklukku framleiðendur nýtt
sér með hugvitssamlegri fram-
leiðslu.
Löng saga
Fyrir nokkrum áratugum voru
vekjaraklukkur flestar eins; sígild-
ar, upptrekktar vekjaraklukkur
með stórri bjöllu og litlum hamri
sem saman gátu skapað mikinn há-
vaða.
Vekjaraklukkur eru þó mjög
langt frá því að vera nýleg uppfinn-
ing. Heimildir um fyrstu vekjara-
klukkuna eru eitthvað á reiki en
flestum virðist bera saman um að
fyrsta klukkan með hringingu eða
einhvers konar hljóði hafi verið bú-
in til fyrir tíma Krists, jafnvel svo
snemma sem tvö þúsund árum fyrr.
Með nokkurri vissu má samt
segja að fyrstu vekjaraklukkurnar
hafi verið búnar til í Nürnberg í
Þýskalandi enda bærinn sá nokkuð
þekktur fyrir klukkur sínar. Það á
að hafa verið á sextándu öld þegar
veggklukka var búin til með kopar-
bjöllu áfastri.
Eina fyrstu vekjaraklukkuna
sem á einhvern hátt minnir á
vekjaraklukkur eins og flestir
þekkja þær í dag gerði hins vegar
Levi Hutchins í New Hampshire í
Bandaríkjunum. Klukka Levis var
þó þeim galla haldin að hún hringdi
aðeins klukkan fjögur um nótt og
ekki var hægt að stilla hana öðru-
vísi. Ástæðan fyrir þessu var sú að
það var tíminn sem
Levi fór á fætur til
að sinna vinnu sinni
– hann hefur ef-
laust ekki verið
B-persóna.
Fyrsta alvöru
vekjaraklukkan,
sem enn í dag
myndi uppfylla þær kröfur sem al-
mennt eru gerðar til slíkra tóla, var
hins vegar fundin upp af Seth
Thomas og fékk hann einnig einka-
leyfi fyrir hönnun sinni. Vekjara-
klukka Thomas var upptrekkt
klukka með bjöllu og var hægt að
láta hana hringja á hvaða tíma sem
var. Þetta var því hin fyrsta eigin-
lega vekjaraklukka eins og þær eru
kunnuglegastar.
Ótrúlegt úrval
Síðan þá hafa ýmsar tæknilegar
útfærslur rutt sér til rúms í
vekjaraklukkum. Westclox-
fyrirtækið tók nokkra forystu í
slíkum nýjungum og fékk meðal
annars einkaleyfi á vekjaraklukk-
um sem geymdar voru í öskju, með
klukkuspilshringingu, og svo fram-
leiddi fyrirtækið einnig hina ótrú-
Blætisblundur
lega flottu Moonbeam-vekj-
araklukku árið 1949 sem blikkaði
fyrst og hringdi svo ef blikkið dugði
ekki til.
Árið 1956 kom svo hin vinsæla
viðbót „snooze“-hnappurinn frá
GE-Telechron sem frestar hring-
ingu vekjaraklukkunnar um nokkr-
ar mínútur, fyrir þá sem finnst best
að kreista út nokkrar aukamínútur
í bælinu á morgnana, fimm og tíu
mínútur nánar tiltekið. Eftir það
varð ekki aftur snúið; nánast allar
vekjaraklukkur síðan þá eru með
svipaðri útfærslu og aftur er orðið
auðvelt að sofa yfir sig fyrir þá sem
sækja í blundinn.
Það virðist reyndar vera þörf á
fjölbreyttari lausnum. Útvarps-
vekjarar voru mjög vinsælir á sjö-
unda og áttunda áratugnum þang-
að til einhverjir héldu því fram að
það væri óhollt að sofa með slík
tæki sér við hlið. Tæknilegar
klukkur með LCD- (fljótandi krist-
all) eða LED-skjám (ljósdíóður)
hafa einnig verið vinsælar og ný-