Morgunblaðið - 23.08.2009, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
LÆKJARGATA - TIL SÖLU/LEIGU
GRANASKJÓL 88 - GLÆSILEGT RAÐHÚS
Glæsilegt 185,8 fm endaraðhús á eftirsóttum stað í Vesturbænum. Bílskúr. Þrjár stofur, þrjú
svefnherbergi. Risloft.Gróinn og fallegur garður er við eignina. Hiti er í bílaplani. Eignin er
staðsett innanlega í botnlanga. V. 55,0 m. 4050
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 14:00-15:00.
REYKJAFLÖT - MOSFELLSDALUR
REYKJAVÍKURVEGUR - UPPGERÐ 3JA
Góð 66,6 fm 3ja herbergja íbúð í Reykjavík.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með mikilli lofthæð.
Mikið endurnýjuð íbúð á góðum stað í hjarta
Reykjavíkur. V. 21,0 m. 4965
SOGAVEGUR - GÓÐ SÉRHÆÐ
Góð 4ra herbergja 119 fm sérhæð við Sogaveg
í Reykjavík. Íbúðin er á tveimur hæðum og laus
strax. Íbúðin skiptist þannig: anddyri, snyrting,
stofa, borðstofa, eldhús og á efri hæð eru þrjú
svefnherbergi og baðherbergi. V. 21,9 m. 4944
KÓRSALIR - EFSTA HÆÐ
Falleg 145,3 fm íbúð á efstu hæð ásamt stæði í
bílskýli. Íbúðin er á tveimur hæðum. Á neðri
hæðinni er n.k. forstofa, gangur, þvottahús,
baðherbergi, svefnherbergi, stofur og eldhús. Úr
holinu er gengið upp á efri hæðina en þar er
sjónvarpshol og tvö svefnherbergi. Góðar sval-
ir. V. 30,5 m. 4941
ÁNALAND - FOSSVOGI - LÆKKAÐ VERÐ
Glæsilegt 248,6 fm einbýli á tveimur hæðum, samtals ca. 388 fm. Húsið stendur neðarlega
í Fossvoginum á stórri lóð til suðurs. Í húsinu eru 5 svefnherbergi. Garðurinn er skjólgóður
með verönd og heitum potti. V. 99,0 m. 4581
Stórglæsileg skrifstofuhæð í nýlegu lyftuhús við Lækjargötuna í Reykjavík. Húsnæðið er á
annari hæð og skiptist í 10 vinnustöðvar, fundarsal, snyrtingar og geymslu/tækjarými. Hús-
næðið er búið vönduðm tækjum og skrifstofubúnaði m.a tölvum, flatskjáum, skrifborðum og
eldhúsbúnaði, kæliskápum og kaffivél. Húsnæðið er með loftræsikerfi og kælikerfi. Húsnæð-
ið er tilbúið til notkunnar strax. Staðsetningin er einstök og fallegt útsýni er yfir Lækjargötuna.
Stæði í bílageymslu fylgir. Til afhendingar strax. V. 60 m. 4280
Vel staðsett 156,1 fm einbýlishús í Mosfellsdal. Húsið stendur á 6.367 fm gróinni lóð. Húsið
skiptist í anddyri, þvottahús, baðherbergi, eldhús, stofu, borstofu og fjögur svefnherbergi.
Húsið er laust strax. V. 26,5 m. 4947
OPIÐ HÚS
Andrésbrunnur - efsta hæð Falleg
fimm herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í
góðu lyftuhúsi ásamt stæði í þriggja bíla bíla-
geymslu. Húsið er fallegt og stendur á góðum
stað. Stórar skjólgóðar suðursvalir. Um er að
ræða góða og vel skipulagða íbúð í nýlegu
þriggja hæða lyftuhúsi. V. 24,9 m. 4946
Selvað - sérverönd Falleg og vel skipu-
lögð 4ra herb. endaíbúð á 1. hæð í fjögurra
hæða lyftuhúsi. Sérmerkt stæði er í bílag.
Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi,
stofu, eldhús, baðherbergi og þvottaherbergi.
Í sameign er sérgeymsla. V. 24,5 m. 4945
Lautarsmári - laus strax Vel skipulögð
5 herb. eldaíbúð á annarri hæð. Íb. skiptist í
anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi, þvotta-
hús og fjögur svefnherbergi, í sameign er sér
geymsla og hjónageymsla. V. 22,5 m. 4859
Sóltún - 82 fm auk bílag. 2ja herb. 82
fm glæsileg íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi
ásamt stæði í bílageymslu. Sérþvottah. Íbúð-
in gæti losnað fljótlega. 4962
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð
Samkoma kl. 17.00
,,Ávöxtur andans er gæska og
góðvild” Ræðumaður
Haraldur Jóhannsson. Lofgörð
og fyrirbæn.
Allir velkomnir.
Almenn samkoma
kl. 16:30 þar sem Deborah
Guðjónsson prédikar.
Lofgjörð og fyrirbænir, kaffi og
samvera.
Allir velkomnir!
Fríkirkjan Kefas
Fagraþingi 2a v/Vatnsendaveg
www.kefas.is
Samkoma sunnudag kl. 20
Umsjón: Mótorhjólaklúbburinn
Salvation Riders. Ræðumaður:
Séra Gunnar Sigurjónsson.
Kaffi Amen á föstudögum
kl. 21 með lifandi tónlist.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6.
Opið alla virka daga kl. 13-18.
Kl. 13 Alþjóðakirkjan í kaffi-
salnum. Ræðumaður: Helgi
Guðnason.
Kl. 16:30 Almenn samkoma
Ræðumaður: G. Ólafur
Zophoníasson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.filadelfia.is
Íslenska Kristskirkjan,
Fossaleyni 14.
Samkoma kl. 20 Reiner Har-
nisch frá Þýskalandi predikar.
Þáttur kirkjunnar „Um trúna og
tilveruna“ er sýndur á Ómega
kl. 13.
Fimmtudagur kl. 13
Bænastund fyrir innsendum
bænaefnum.
Föstudagur kl. 20
Samkoma fyrir ungt fólk.
www.kristskirkjan.is
Samkoma í dag kl. 16.30
Gunnar Þorsteinsson predikar.
Þriðjud. Samkoma kl. 20.00.
Miðvikud. Bænastund kl. 20.00.
Fimmtud. Ungmenni kl. 20.00.
Laugard. Samk. kl. 20.30.
www.Krossinn.is
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
UNDIRRITUÐ fór
ásamt nokkrum fulltrú-
um úr borgarráði til
Osló á dögunum til að
kynna sér sparnaðar-
leiðir í borgarrekstri.
Eðli málsins sam-
kvæmt var rýnt í þá
þjónustu sem borgin
veitir, en Oslóborg hef-
ur náð að spara umtals-
vert með því að flytja
þjónustu borgarinnar út í hverfin.
Það vakti athygli mína og aðdáun að
þegar þjónusta við íbúa var kynnt var
ekki tíundað neitt um aldur eða að-
stæður íbúanna, heldur einungis sagt
frá þjónustuþáttum. Einn úr hópnum
spurði: „Heyrir ekki þjónusta við fatl-
aða undir sveitarfélagið?“ Svarið var
einfalt: „Jú, fólk með fötlun á rétt á
þjónustu okkar eins og aðrir.“
Samþætt hverfaþjónusta við
íbúa skilar hagræðingu
Eins og aðrar norrænar borgir hef-
ur Oslóborg mun víðtækari þjónustu
á sinni könnu, en norræn sveitarfélög
bera ábyrgð á allri almennri félags-
og heilbrigðisþjónustu við sína íbúa.
Fjármálastjóri Osló telur að sam-
þætting verkefna sé lykillinn að
sparnaði í opinberum rekstri og lagði
áherslu á að ábyrgð verkefna sé sem
næst notandanum. Við samþættingu
nýtast fjármunir betur í þágu þeirra
sem njóta þjónustunnar, en á kostnað
stjórnunar og fjölda stofnana. Hverf-
avæðing er svo hinn galdurinn þar
sem ábyrgð á fjármunum og veittri
þjónustu er dreift til 30-45000 íbúa
hverfa. Samkvæmt reynslu Oslóborg-
ar af dreifstýrðri þjónustu hefur gætt
meira aðhalds og nær-
samfélagið finnur
lausnir í nærumhverf-
inu. Þær lausnir fást oft
ekki þegar þjónustan er
miðstýrð og verður oft
of stofnanamiðuð. Þeg-
ar bæði ríki og sveit-
arfélög bera ábyrgð á
þjónustu við fólk, fer
nær alltaf of mikið fjár-
magn í kerfið sjálf. Nú
þegar opinbert fé er af
mjög svo skornum
skammti, getum við
ekki leyft okkur slíkt og þurfum að
koma nánast hverri krónu í þjón-
ustuna sjálfa. Því vona ég svo sann-
arlega að samkomulag núverandi rík-
isstjórnarflokka verði að veruleika,
en þar segir: „Hlutverk sveitarfélaga
í velferðarþjónustu við börn, fatlað
fólk, aldraða og fjölskyldur verði auk-
ið með flutningi verkefna frá ríki til
sveitarfélaga.“ Ég tel raunar að ekki
séu sömu möguleikar hér á sparnaði í
velferðargeiranum og náðist t.d. í
Osló þar sem sparaðist 20% í rekstr-
arkostnaði við hverfavæðinguna.
Ástæðan er sú að mun minna fjár-
magn er veitt til félags- og heilbrigð-
ismála hér og eðli málsins samkvæmt
er hægara um vik þar sem smjörið
drýpur af hverju strái en þar sem
sparnaður og aðhald hefur verið leið-
arljós þrátt fyrir góðæristíma. Mögu-
leikarnir hér eru því í sameiningu
stofnana ríkis og sveitarfélaga, sem
hvort eð er eru í verkefnum sem
skarast verulega, en þannig mætti
spara í stjórnun og húsnæði.
Sýn Samfylkingarinnar
Á síðasta landsfundi Samfylking-
arinnar var samþykkt velferð-
arstefna undir yfirskriftinni: „Vökum
fyrir velferðinni – eitt samfélag fyrir
alla.“ Ákveðið var að hafa ekki sér-
staka kafla um aldraða og öryrkja
eins og tíðkast hefur. Samfylking-
arfólk vildi að hvert orð ætti við um
alla, enda stefnan að tryggja jöfn
tækifæri og jafnan rétt allra íbúa
landsins til að rækta hæfileika sína og
nýta í þágu eigin velferðar, samfélags
síns og komandi kynslóða. Að sjálf-
sögðu snúa síðan einstök verkefni að
því að bæta hag þeirra sem fátækir
eru og þeir eru vissulega margir úr
röðum lífeyrisþega. Það má því segja
að landsfundarfulltrúar Samfylking-
arinnar hafi verið á Oslólínunni þar
sem fólk er ekki flokkað eftir getu til
athafna dagsleg lífs eða aldurs, enda
um eitt samfélag fyrir alla að ræða. Á
meðan persónuleg félagsþjónusta við
fólk er skipt á milli ríkis og sveitarfé-
laga á grundvelli aðstæðna og/eða
aldurs þjónustuþega munum við hér
á landi tala um þjónustu við fatlaða og
aldraða. Það er einlæg von mín að
fyrirhugaður flutningur verkefna til
sveitarfélaga verði að veruleika þann-
ig að samþætta megi og bæta nær-
þjónustu við íbúa. Þegar því er lokið
vona ég að við hættum að flokka fólk
og veitum þeim sem á þurfa að halda
þá þjónustu sem þeir þurfa og eiga
rétt á.
Eftir Björk
Vilhelmsdóttur » „Heyrir ekki þjón-
usta við fatlaða undir
sveitarfélagið?“ Svarið
var einfalt: „Jú, fólk með
fötlun á rétt á þjónustu
okkar eins og aðrir.“
Björk Vilhelmsdóttir
Höfundur er félagsráðgjafi og borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar.
Fatlaðir ekki til í Osló