Morgunblaðið - 23.08.2009, Síða 50
50 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Bórisfrísa
Eftir: Þorgrím Kára Snævarr
LABRADORHUNDURINN Trölli slóst í för með eiganda sínum í ferð frá
Sveinstindi í Hólaskjól. Á meðan mennirnir notuðust við reiðhjól þurfti Trölli
að hlaupa 45 km. langa leið en það tók á, jafnvel fyrir hraustan hvuttann.
Morgunblaðið/hag
Trölli á Fjöllum
Er Alþingi í „sand-
kassaleik“ í dag?
Mér varð á að kveikja á
alþingisumræðum í
sjónvarpinu fimmtu-
dagskvöldið 20. ágúst,
og sá að umræður voru
enn í gangi frá kl. níu
um morguninn.
Eftir klukkutíma
hlustun varð mér að
orði með sjálfri mér:
„Eru þingmennirnir
farnir að leika sér í
„sandkassa“ eins og í
vetur?“
Ég hélt að IceSave-
málið væri alvarlegra
en svo að þingmennirnir væru að
eyða dýrmætum tíma í að skvetta
orðum hver á annan og hrópa og
kalla úr þingsal.
Mér blöskraði alveg, þingmenn-
irnir verða að snúa bökum saman og
komast að góðri niðurstöðu í þessu
slæma máli til hagsmuna fyrir þjóð-
ina.
261132-7969.
Nytjamarkaður Rauða krossins
ÉG kíki oft inn á nytjamarkað
Rauða krossins og um daginn brá
mér heldur í brún. Lopapeysur sem
verðlagðar voru fyrir mánuði á
2.000-3.500 kr. voru nú verðlagðar á
7.000 krónur.
Ég spurði hverju þetta sætti og
svarið var: „Nú, sjáðu bara hvað
peysurnar kosta hjá Álafossi.“
Ha? Er verðbólgan
farin að teygja sig með
ljóshraða inn í Rauða
krossinn? Nú er nytja-
markaðurinn mest með
notuð föt, gefins og
enginn söluskattur eða
önnur gjöld þar á bæ.
Mér finnst því ekki
hægt að líkja þessu við
hverja aðra stór-
verslun sem kaupir inn
og þarf að leggja á
skatta og gjöld úr öll-
um áttum.
Eða er þetta annars
konar útgáfa af
græðgisvæðingu?
Harpa Karlsdóttir.
Kókó er týndur
KÓKÓ fór frá
Samtúni í
Reykjavík fyrir
tveimur vikum og
ekkert hefur
spurst til hans
síðan. Hann er
eins árs gamall, blandaður hálfur
persi, svartur á lit, loðinn og með
rauða ól og er mjög ljúfur köttur.
Hans er sárt saknað. Ef einhver hef-
ur orðið hans var vinsamlegast hafið
þá samband við okkur í síma 555-
3781 eða 892-6780.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Afmælisþakkir
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem glöddu mig í tilefni 100 ára
afmælis míns 11. ágúst sl. með
heimsóknum, kveðjum og gjöfum
til Ástjarnar eða Gídeonfélagsins.
Guð blessi ykkur öll og lifið heil!
Irene Gook,
dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri., ,ímorgungjöf?