Morgunblaðið - 26.08.2009, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 6. Á G Ú S T 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
230. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«LEIKHÓPURINN BOTTLEFED
SPUNI UM ÁST
OG SAMBÖND
«INGLOURIOUS BASTERDS
Tarantino og
Brad Pitt daðra
Við höldum með
stelpunum okkar
Ítarleg umfjöllun um
EM 2009 í Morgunblaðinu
EKKI fer á milli mála að tíkinni
Freyju finnst gaman að leika tennis
við Gunnar Kr. Sigmundsson, eig-
anda sinn. Á hverjum degi leika þau
Gunnar sendir boltann og Freyja
hleypur eftir honum. Alltaf.
þennan leik í a.m.k. tuttugu mín-
útur og það er alltaf jafngaman!
HUNDATENNIS Í HAUSTLITUNUM
Morgunblaðið/Kristinn
„HANN heyrði
í mér í óperunni
Luciu di Lamm-
ermoor og bauð
mér þetta í kjöl-
farið,“ segir Stef-
án Ragnar Hös-
kuldsson flautu-
leikari. Það var
flautuleikarinn
heimsþekkti,
James Galway,
sem lagði við hlustir í Metropolitan-
óperunni, þar sem Stefán er fyrsti
flautuleikari, og bauð Stefáni að
vera gestalistamaður í árlegum
sumarskóla sínum í Sviss og halda
þar tónleika fyrir flautunemendur.
„Þetta er heiður.“ »35
Spilaði sig til Sviss með
einleiksstrófum í Luciu
Stefán Ragnar
Höskuldsson
FJÁRFESTINGASJÓÐUR í eigu
Bills Gates, stofnanda Microsoft, er
meðal hluthafa í Magma Energy.
Sjóður Gates, Cascade Investment,
á um 2,5% hlut í fyrirtækinu og seg-
ir Ross Beaty, forstjóri Magma,
Gates sýna áætlunum Magma mik-
inn áhuga. Beaty þvertekur hins
vegar fyrir að íslenskir fjárfestar
standi með einhverjum hætti að
baki Magma Energy og áformum
þeirra hér á landi. »15
Bill Gates í hópi hluthafa
Magma Energy
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
ÍSLANDSBANKI hyggst grípa til þess ráðs að lækka
höfuðstól húsnæðislána í erlendri mynt og hefðbundinna
verðtryggðra lána og breyta þeim í óverðtryggð lán í
krónum. Þetta staðfesti Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við [hjá
Íslandsbanka, innsk. blm.] höfum verið að leita lausna á
þeim skuldavanda sem heimili og fyrirtæki eru í. Við höf-
um verið að vinna að lausn, sem byggist á leiðréttingu
höfuðstóls erlendra húsnæðislána og verðtryggðra
húsnæðislána, í skiptum fyrir það að fara í óverðtryggðar
íslenskar krónur. Nú erum við komin með efnahags-
reikning bankans og sjáum hvaða svigrúm við höfum.“
Birna segir ekki ljóst enn hversu mikil leiðréttingin á
höfuðstól lánanna verður en hún muni skipta sköpum
fyrir marga af viðskiptavinum bankans. Birna segir enn-
fremur að mikilvægt sé að ná samfélagslegri sátt um að-
gerðirnar og að þær verði samræmdar hjá fjármálastofn-
unum, a.m.k. að hluta. Forsvarsmenn Íslandsbanka hafa
átt í viðræðum við skattyfirvöld og stjórnvöld um hvernig
útfæra má lækkun höfuðstóls lána. Samkvæmt lögum
þyrfti að greiða skatt af niðurfellingu lánsins, í hlutfalli
við þá upphæð sem yrði afskrifuð. Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra segir að reglugerðarbreyting frá
því í vor eigi að geta liðkað fyrir afskriftaaðgerðum. „Ef
það mun þurfa lagabreytingu til, svo að lántakendur
þurfi ekki að greiða skatt vegna leiðréttingar á höfuðstól
lána, þá verður því kippt í liðinn. Það ætti ekkert að vera
því til fyrirstöðu, og það er eitt af því sem ráðherranefnd,
sem í sitja félagsmála-, viðskipta- og dómsmálaráðherra,
hefur verið að skoða.“
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur það
komið til umræðu hjá stjórnvöldum og fjármálastofn-
unum að höfuðstóll húsnæðislána í erlendri mynt verði
miðaður við ákveðna gengisvísitölu, til að samræma að-
gerðir. Engar ákvarðanir hafa þó verið teknar enn og
hafa bankarnir, hver í sínu horni, málin til skoðunar.
Gengisvísitalan stóð í lok dags í gær í 238 en fjölmörg
þeirra lána sem tekin voru í erlendri mynt voru tekin
þegar gengisvísitalan var 110 til 130.
Lánum verður breytt | 6
Höfuðstóll lána
verður lækkaður
Íslandsbanki vinnur að útfærslu á lækkun höfuðstóls lána í
erlendri mynt Breyta þarf skattalögum til að liðka fyrir
LÝSINGU hf. er borið á brýn að
sýna enga miskunn þegar skuldu-
nautar lenda í vanskilum og beita
þá bolabrögðum. Halldór Jörgens-
son, forstjóri Lýsingar hf., hafnar
slíkum ásökunum og segir fyrir-
tækið gera allt sem það geti til að
þurfa ekki að taka til sín tæki. »9
Lýsing vænd um
hörku við skuldara
Forsvarsmenn Íslandsbanka sögðust ekki geta svar-
að því á þessu stigi hvaða áhrif umbreyting á lánum
yfir í óverðtryggð lán í krónum myndi hafa á vaxta-
kjör. Greiðslubyrðin á lánum yrði þó alltaf sniðin að
getu viðskiptavina til að greiða. Vextir eru oftast
nær hærri á óverðtryggðum lánum en verðtryggðum.
Óljóst með vexti eftir breytingu