Morgunblaðið - 26.08.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Fyrirvararnir styrktir
Meirihluti fjárlaganefndar afgreiddi í gær Icesave-frumvarpið út úr nefnd til 3.
og síðustu umræðu Fyrirvararnir styrktir Á að tryggja hagsmuni Íslands
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
MEIRIHLUTI fjárlaganefndar náði samstöðu
um fyrirvara við ríkisábyrgð Tryggingasjóðs inni-
stæðueigenda vegna Icesave-skulda um miðjan
dag í gær. Þar með var ljóst að nefndin hafði lokið
umfjöllun sinni um málið og Alþingi fær það nú til
3. umræðu. Stefnan er sett á að ljúka málinu í dag
og samþykkja þar með frumvarpið.
Nefndin hefur sett nokkuð veigamikla fyrirvara
við frumvarpið í upphaflegri mynd. Breytingartil-
lögur við frumvarpið eins og það var samþykkt
eftir 2. umræðu eru einkum tvær. Í fyrsta lagi fyr-
irvari um að ríkisábyrgð á lánum tryggingasjóðs-
ins frá Bretum og Hollendingum nái til ársins
2024. Þá verði hins vegar gengið að nýju til við-
ræðna við Breta og Hollendinga.
Í öðru lagi er síðan að tryggt verði að fyrirvar-
arnir á ríkisábyrgðinni haldi þegar á hólminn er
komið, það er að Bretar og Hollendingar sam-
þykki þá.
Samkvæmt samningnum, sem undirritaður var
5. júní, er gert ráð fyrir að endurgreiðslur á Ice-
save-lánunum hefjist ekki fyrr en eftir sjö ár, eða
árið 2016. Samkvæmt frumvarpinu, og þeim fyr-
irvörum sem sátt hefur náðst um, munu lánin frá
Bretum og Hollendingum endurgreiðast á árun-
um 2016-2024.
Frekari skorður verða þó á endurgreiðslunum
þar sem þróun efnahagsmála hér á landi muni
ráða því hversu mikið verður greitt af láninu á
hverju ári. Þar mun sérstaklega verða miðað við
hagvöxt, en ef hann er enginn eða minnkar milli
ára falla greiðslur af lánunum niður.
Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður Stein-
gríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og einn
þeirra sem sátu í samninganefndinni fyrir Íslands
hönd, segir Breta og Hollendinga ekki ætla að tjá
sig um fyrirvarana við ríkisábyrgðina fyrr en Al-
þingi hefur endanlega afgreitt þá.
Eftir Sigrúnu Ásmundar
sia@mbl.is
„SÁ ÁGREININGUR sem færi fyr-
ir gerðardóm væri fyrst og fremst
lagalegs eðlis,“ segir Gísli Tryggva-
son, talsmaður neytenda. Hann hef-
ur, að höfðu samráði við Hagsmuna-
samtök heimilanna, Félag fasteigna-
sala, Búseta og Húseigendafélagið
o.fl. hagsmunaaðila, sent fyrirtækj-
um og lífeyrissjóðum sem veitt hafa
neytendalán, svo og félags- og
tryggingamálaráðherra vegna
Íbúðalánasjóðs, tilmæli með ósk um
viðræður við þá um gerðarsamning í
því skyni að leysa með skjótum
hætti úr réttarágreiningi um for-
sendubrest og öðrum lagalegum
álitamálum um gengis- og verð-
tryggð neytendalán. Gísli segir
gerðardómsleiðina ekki bara færa
heldur líka hent-
uga.
„Margir hafa
nefnt forsendu-
brest, til dæmis,“
segir Gísli. „Það
eru margvísleg
lagarök, þannig
að þetta er ekki
eins og stjórn-
málamenn virð-
ast hafa haldið að verið sé að veita
einhvern afslátt eða lækkun. Þetta
er þjóðfélagslega hagkvæm leið til
að leysa úr mjög brýnum ágreiningi.
Ein röksemdin er meira að segja að
það hafi verið bannað að veita geng-
isbundin lán,“ segir Gísli.
Fjögurra mánaða bið
Hann kveðst hafa, sl. vor, beðið
stjórnvöld um að leysa úr málinu.
„Það mistókst og nú hefur biðin eft-
ir lausn varað í fjóra mánuði og þá
er að biðja bankana, kröfuhafana,
lífeyrissjóðina, að gangast inn á það
sama eftir gildandi lögum. Ég var að
biðja um sérlög um sérlausn en þó
eftir gildandi efnisreglum. Nú er ég
hins vegar búinn að gefast upp á að
bíða eftir stjórnvöldum, má segja,
og þá er að nýta gildandi lög um
gerðarsamninga, sem gjarnan eru
notaðir í viðskiptalífinu, til dæmis ef
menn vilja leysa mál með skilvirkum
hætti,“ segir Gísli og bendir á að í
gerðardómi sé ekki áfrýjunarstig og
þess vegna taki gerðardómsleiðin
alltaf mun styttri tíma.
„Allir neytendur sem vilja fá úr-
lausn og allir bankar og sparisjóðir
sem vilja fá úrlausn hratt gætu
gerst aðilar að þessum gerðardómi,“
segir Gísli.
Voru gengisbundin lán
bönnuð samkvæmt lögum?
Vill mynda gerðardóm til að skera úr um lögmæti neytendalána
Gísli Tryggvason
EFLAUST geta þessi ungmenni tekið undir orðin
„í skólanum í skólanum er skemmtilegt að vera“.
Í það minnsta skemmta þau sér konunglega
þar sem þau eru við leiki við Austurbæjarskóla.
Nú eru skólarnir byrjaðir á ný og þá iða skólalóð-
irnar af ljúfum barnaröddum með reglulegu
millibili, nefnilega í frímínútunum. Þess á milli
dettur á mikil þögn þangað til bjallan hringir út
úr síðustu kennslustundinni og raddirnar ungu
fylla loftið á ný – fullar gleði yfir því að skóladegi
er lokið og enn á ný gefst tími til leikja.
sia@mbl.is
Gleði og gáski á skólalóðunum á ný
Enn gefst tími til leikja á skólalóðinni
Morgunblaðið/Eggert
„EKKI fara
margir erlendir
innflutnings-
aðilar að keppa
um þennan litla
markað,“ segir
Jón Bjarnason
sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra. Hann
tók málefni Sem-
entsverksmiðjunnar á Akranesi upp
á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun,
en fram hefur komið að erfiðleikar
eru þar í rekstrinum. Jón bendir
sérstaklega á að á Íslandi er ekki
stór markaður fyrir sement og ef
verksmiðjunni á Akranesi verður
lokað sé hætt við að eingöngu verði
flutt inn sement frá Danmörku.
„Við vitum öll að það er sam-
dráttur í bygginga- og steypufram-
kvæmdum,“ segir Jón. „Það er fyr-
irsjáanlegt að að óbreyttu verður
að skera mikið niður vinnu þarna
og jafnvel loka henni um tíma,“ seg-
ir Jón og bendir á að slíkt geti haft
alvarlegar afleiðingar. „Það er oft
svo að ef fyrirtækjum sem byggja á
sérhæfðum starfskröftum er lokað
um tíma tapast þekkingin og erfitt
getur reynst að koma starfseminni
aftur í gang.“
Hann telur að huga eigi að því að
kaupa íslenskt sement til opinberra
framkvæmda. „Við erum líka í
þeirri stöðu að við búum við neyð-
arlög á sviði fjármála- og viðskipta-
lífs í landinu. Við búum við lög um
gjaldeyrishöft og það er ljóst að
gjaldeyrir er mjög af skornum
skammti. Þess vegna ber okkur að
horfa til allra þeirra starfa sem
geta verið til verðmætasköpunar í
landinu og spara innflutning.“
Iðnaðarráðherra og umhverfis-
ráðherra var falið að kanna stöðu
málsins og leggja fram minnisblað í
ríkisstjórninni. sia@mbl.is
Ísland ekki eftir-
sóttur markaður
Jón Bjarnason
BÚIÐ er að veiða 89 langreyðar af
þeim 150 dýra kvóta sem gefinn var
út. Hvalbátarnir hafa legið inni á
Hvalfirði í tvo daga vegna brælu en
þeir héldu til veiða á ný í gærkvöldi.
Að sögn Kristjáns Loftssonar, for-
stjóra Hvals hf., hafa veiðar og
vinnsla gengið vel. Hann segir að
vertíðin geti staðið út september en
það fari eftir veðri og veiði hve
lengi hún muni standa. Talsvert er
um að ferðafólk komi og fylgist með
hvalskurðinum í Hvalfirði enda að-
stæður til þess ágætar. sisi@mbl.is
Búið er að veiða 89
langreyðar í sumar