Morgunblaðið - 26.08.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Erum að taka á móti verkum
Listmunauppboð
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Næsta listmunauppboð Gallerís Foldar
verður haldið 7. september
Fyrir viðskiptavini leitum við eftir
góðum verkum eftir Jóhannes S. Kjarval, Þorvald
Skúlason, Nínu Tryggvadóttur, Gunnlaug Blöndal,
Gunnlaug Scheving og Jóhann Briem.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
VIÐRÆÐUM stjórnvalda og að-
gerðarhóps lífeyrissjóða vegna stór-
framkvæmda til að stuðla að aukinni
atvinnu miðar hægt. Fyrsti fundur-
inn var haldinn í seinustu viku og
hefur enn ekki verið boðað til annars
fundar. Í stöðugleikasáttmálanum í
júní er kveðið á um að stefnt skuli að
því að þessum viðræðum stjórnvalda
og lífeyrissjóða verði lokið fyrir 1.
september. Nú er öllum orðið ljóst
að það markmið næst ekki. Vaxandi
óþolinmæði gætir meðal fulltrúa á
vinnumarkaði og meðal lífeyrissjóða
vegna þess hve lítil viðbrögð stjórn-
valda hafa verið til þessa. Líta þeir
svo á að boltinn sé hjá stjórnvöldum.
Enn liggur ekkert fyrir um hver á að
verða forgangsröðun framkvæmda
sem rætt var um við gerð stöðug-
leikasáttmálans í júní. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins urðu
forsvarsmenn lífeyrissjóða og heild-
arsamtaka á vinnumarkaði fyrir von-
brigðum á fundinum í seinustu viku
vegna þess hversu undirbúningurinn
virðist vera skammt á veg kominn í
stjórnkerfinu. Lífeyrissjóðirnir hafa
lýst sig reiðubúna að setja um 100
milljarða kr. í opinberar fram-
kvæmdir og til stofnunar Fjárfest-
ingarsjóðs Íslands á næstu fimm ár-
um. Þeir lýsa sig tilbúna að hefjast
handa og setja sérfræðinga í einstök
verkefni. Var rætt um þessi mál á
fundi aðgerðahóps þeirra í gær-
morgun. Fulltrúar stjórnvalda hafi
hins vegar ekki enn sett fram neinar
hugmyndir um ákveðin verkefni sem
lífeyrissjóðirnir gætu hugsanlega
fjármagnað. Rætt hefur verið um
byggingu háskólasjúkrahúss, tvö-
földun Suðurlandsvegar og Vestur-
landsvegar, Vaðlaheiðargöng, sam-
göngumiðstöð á Reykjavíkur-
flugvelli o.fl. Megin ástæður þess
dráttar sem orðinn er, eru raktar til
Icesave-málsins og samskiptanna
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Lítil viðbrögð
stjórnvalda
Einn fundur en ætluðu að klára 1. sept.
» Tilbúnir að setja 100
milljarða í opinberar
framkvæmdir
» Viðbragðaleysi veld-
ur vonbrigðum
Áfram Ekki liggur fyrir hvernig
forgangsraða á framkvæmdum.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
KRAKKAR sem voru í sveit á Steinabæjunum
undir Eyjafjöllum á árum áður, en löngu
komnir á fullorðinsár, hittust síðastliðinn laug-
ardag ásamt fjölskyldum sínum undir Fjöll-
unum. „Það var rosaflott, alveg meiriháttar,“
sagði Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í
Garðinum, en hann var í sveit í Steinum sumr-
in 1964-1970.
Fjölmenn sveit á fyrri tíð
Í Steinahverfinu eru bæirnir Steinar I, II og
III, Koltunga og Hvassafell. Ásmundur var í
sveit hjá Sigurbergi Magnússyni og Elínu Sig-
urjónsdóttur í Steinum, eða Ellu og Bergi í
Steinum eins og þau voru ævinlega kölluð. Þau
eru bæði látin. Faðir Ásmundar, Friðrik Ás-
mundsson, fyrrverandi skólastjóri og skip-
stjóri í Vestmannaeyjum, var einn af fyrstu
strákunum sem fóru í sveit hjá Bergi eftir að
hann fór að búa.
Byggðin undir Eyjafjöllum einkennist af
nokkrum bæjaþyrpingum og eru Steinabæirn-
ir ein þeirra. Ásmundur sagði að árið 1880,
þegar fólkið var flest í Steinahverfinu, hafi
fleiri búið í Eyjafjallahreppi en í Reykjavík.
„Þarna hefur gríðarlegur fjöldi verið í sveit
og það komu um 140 manns til að hittast og
fara yfir söguna,“ sagði Ásmundur. „Við fórum
fyrst í kirkjugarðinn á Eyvindarhólum og
heiðruðum minningu látinna úr Steinahverf-
inu. Svo fórum við út að Steinum. Þar voru öll
hús, íbúðarhús og útihús, opin. Fólkið skoðaði
húsin þar sem það var í gamla daga. Flestum
fannst íveruhúsin vera minni en þau voru í
minningunni.“ sagði Ásmundur. Eftir kirkju-
garðsheimsókn og húsaskoðun var boðið upp á
kaffi og kleinur í fjósinu á Hvassafelli.
Sjálfsprottin skemmtiatriði
Um kvöldið var veisla á Heimalandi. Þar
grillaði kvenfélagið í sveitinni ofan í gömlu
sumardvalarbörnin. Síðan tók við sjálfsprottin
skemmtidagskrá.
„Hermann Árnason frá Hvolsvelli sagði sög-
ur og hermdi eftir Eyfellingum og sérstaklega
Steinabændum. Leynigestur kvöldsins var svo
Hermann Einarsson, fyrrverandi kennari og
ritstjóri úr Vestmannaeyjum. Það tóku margir
til máls og sögðu sögur. Svo gengu mynda-
albúm með gömlum myndum á milli borða,“
sagði Ásmundur.
Sumarbörnin fóru aftur í sveitina
Hópur fólks sem var í sveit á Steinabæjunum undir Eyjafjöllum á árum áður hittist þar til að rifja
upp gamlar minningar Mörgum þóttu húsakynnin á bæjunum hafa skroppið saman í tímans rás
Ljósmynd/Ásbjörn S. Þorleifsson
Eyvindarhólar Fyrrum sumarbörnin vitjuðu
leiða þeirra sem þau voru í sveit hjá.
VÆTUTÍÐIN undanfarið hefur glatt marga regnhlífina sem hefur verið
spennt upp og fengið að spássera um bæinn. Þessi gula regnhlíf kom að
góðum notum og kátir krakkar á ljósmyndum brostu í rigningunni.
Morgunblaðið/Heiddi
REGNHLÍFARDAGUR
ALLS hafa 595 leyfi verið gefin út til
strandveiða. Síðustu gildu umsókn-
irnar bárust til Fiskistofu á föstudag
og voru gefin út tvö leyfi þann dag. Á
mánudag var fyrsti starfsdagurinn
frá upphafi strandveiða sem ekkert
leyfi var gefið út.
Strandveiðum lýkur með síðasta
degi mánaðarins, sem er næsti mánu-
dagur, en nýtt fiskveiðiár hefst 1.
september. Tveir þeir síðustu til að fá
leyfi höfðu því fimm daga til veið-
anna. Ekki hafa allir nýtt leyfi sem
þeir hafa fengið til strandveiða og
höfðu 548 bátar landað afla í þessu
kerfi í gær.
Strandveiðar voru stöðvaðar á
svæði A, frá Eyja- og Miklaholts-
hrepppi til Skagabyggðar, frá og með
13. ágúst. Á hinum svæðunum er enn
eftir að veiða nokkuð af viðmiðunar-
afla. Í gær höfðu samtals komið að
landi 3.230 tonn af þorski í 6.865 lönd-
unum. Þorskviðmiðunin er 3.955 tonn
sem ekki reiknast til aflamarks eða
krókaaflamarks. aij@mbl.is
Fyrsti dagurinn án veiðileyfis
Strandveiðar Afla landað á Snæfellsnesi.
FYRIRTÆKI, sem heitir því und-
arlega nafni Leiksoppur Akranes-
kaupstaðar ehf., hefur verið tekið
til gjaldþrotaskipta. Skiptafundur
var haldinn fyrir skömmu og þar
var upplýst að lýstar kröfur í
þrotabúið voru á bilinu 10-12 millj-
ónir króna.
Að sögn Jóns Hauks Haukssonar
hdl., skiptastjóra þrotabúsins, er
hér um að ræða verktakafyrirtæki,
sem áður hét Verkfell ehf. All-
nokkru fyrir gjaldþrotið breyttu
eigendur fyrirtækisins nafninu í
Leiksoppur Akraneskaupstaðar
ehf., þar sem þeir töldu sig eiga
óuppgerða bótakröfu á Akranes-
kaupstað.
Forsaga málsins er sú að fyrir-
tækið varð fyrir tjóni við bruna sem
varð á sorphirðusvæði Akurnes-
inga. Brotist var inn og kveikt í og
urðu þar skemmdir á verðmætum í
eigu Verkfells. Lögreglurannsókn
fór fram en málið mun aldrei hafa
verið upplýst. Í kjölfar þessa máls
var nafni fyrirtækisins breytt. Hins
vegar urðu engin málaferli í kjölfar
atburðarins af hálfu Verkfells .
sisi@mbl.is
Leiksoppur
Akraness í þrot
SAMÞYKKT var að skora á rík-
isstjórn Íslands og sveitarfélög að
koma í veg fyrir kaup Magma
Energy á hlutum í HS orku á um
100 manna samstöðufundi sem
haldinn var í Grindavík í gær-
kvöldi.
Í yfirlýsingu fundarmanna seg-
ir að heitið sé „á ríkisstjórn Ís-
lands að standa vörð um sameig-
inlegar auðlindir landsmanna
með langtímahagsmuni þjóð-
arinnar að leiðarljósi“.
Framsal auðlindarinnar í jafn-
langan tíma og gert er ráð fyrir í
tilboði Magma beri að líta á sem
varanlegt og við þær aðstæður
sem nú séu uppi í þjóðfélaginu sé
brýnt að lausafjárvandi sam-
félagsins sé ekki leystur með
bráðræðislegum gjörningum þar
sem miklum hagsmunum sé fórn-
að.
Vilja að stjórnvöld
hindri kaup Magma